Fjarðarpósturinn - 09.10.2008, Blaðsíða 11
Úrslit:
Handbolti
Karlar:
Víkingur 2 - FH: 22-45
Haukar 2 - Selfoss: 31-43
Grótta 2 - Haukar U: 27-21
Haukar - Saporozhye: 26-25
Víkingur - FH: 27-29
HK - Haukar: 25-23
Konur:
HK - Haukar: 29-35
Fylkir - FH: 23-28
Körfubolti
Konur:
Keflavík - Haukar: 75-63
Næstu leikir
Handbolti
10. okt. kl. 18, Flensburg
Flensburg - Haukar
(meistaradeild Evrópu)
11. okt. kl. 14, Kaplakriki
FH - Valur
(úrvalsdeild kvenna)
11. okt. kl. 16, Kaplakriki
FH - Valur
(úrvalsdeild karla)
11. okt. kl. 16, Ásvellir
Haukar - Fylkir
(úrvalsdeild kvenna)
11. okt. kl. 16, KA heimilið
Akeyri 2 - FH 2
(Eimskipsbikar karla)
15. okt. kl. 19.30, Hlíðarendi
Valur - Haukar
(úrvalsdeild karla)
Körfubolti
11. okt. kl. 15, Egilsstaðir
Höttur - Haukar
(1. deild karla)
15. okt. kl. 19.15, Keflavík
Keflavík - Haukar
(úrvalsdeild kvenna)
Íþróttir
Fjardarpósturinn 25 ára Fimmtudagur 9. október 2008 www.fjardarposturinn.is 11
STÆRÐFRÆÐI
Þarftu aðstoð?
Hringdu þá í síma
898 7725 eða 565 1045
SÖLUSTÖRF
Frjáls vinnutími, árangurstengdar
tekjur. Hentar fólki um allt land sem
auka- eða aðalstarf
Uppl. 565 1045 l 865 4052 l 898 7725
Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir
Kristinn Magnússon, sjúkraþjálfari
Tímapantanir í síma 555 66 44
Vantar góða dyraverði
Upplýsingar gefur Unnur í síma 691 1422.
Einnig er hægt að sækja um á:
gamlavinhusid@gamlavinhusid.is
Vesturgötu 4 • www.gamlavinhusid.is
Kaffisetur 60+ í Hafnarfirði
verður með opið hús í Samfylkingarhúsinu,
Strandgötu 43 – tvo morgna í viku,
þriðjudaga og föstudaga frá kl. 10-12.
Næsti morgunfundurinn verður á morgun,
föstudaginn 10. október.
Heitt á könnunni, lifandi umræður.
Allir velkomnir.
Eigum við að leyfa ungling un -
um okkar að vera ein heima um
helgar? Eigum við að
leyfa þeim að halda
partý heima? Eigum
við ekki að treysta
börnunum okkar og
gefa þeim tækifæri til
að hitta vini sína heima
hjá sér um kvöldin?
Það er ekki auðvelt
að svara þessum
spurn ingum en ég ætla
að reyna það. Börnin
okkar eru ekki tilbúin til að axla
þá ábyrgð að sjá ein um heilt
heimili yfir helgi. Samfélagið
hefur breyst það mikið og
allskonar hættur steðja að. Því
miður eru enn dæmi um það að
börn/unglingar séu ein heima um
helgar og bjóði nokkrum vinum
heim. Í kjölfarið getur
hálfur bærinn frétt af
þessu og breytt litlu
vinapartýi í opið hús
án vilja hins unga
húsráðanda. Í þessum
opnu húsum hverfa
oft verð mæti heimil -
isins, auk áfengis og
lyfja.
Við skulum treysta
börn um okkar við að
takast á við eðlileg og krefjandi
verkefni sem hæfa þeim. Ef við
viljum leyfa heima partý þá verða
foreldrar að gjöra svo vel að vera
á staðnum.
Höfundur er forvarnafulltrúi.
Opið hús! Heimapartý
Geir
Bjarnason
Dagana 17.-18. október verður
keppnin Sterkasti fatlaði maður
heims haldin en mótið fer nú
fram í sjötta sinn hér á Íslandi.
Arnar Már Jónsson landsliðs -
þjálfari Íþróttasambands fatlaðra
í lyftingum og lyftingaþjálfari
hjá Íþróttafélagi fatlaðra í
Reykjavík er forvígismaður
keppn innar og býst hann við
hörkukeppni þetta árið.
„Þetta er eina mótið sinnar
tegundar í heiminum og er haldið
í nafni Íþróttafélags fatlaðra í
Reykjavík. Mótið verður stærra
með hverju árinu og búist er við
harðri keppni þetta árið. Ég skora
á sem flesta að leggja leið sína á
keppnisstaðina og fylgjast með
þessum afreksmönnum í hrika -
legum aflraunum,“ sagði Arnar.
Á morgun, föstudag verður
keppt í Smáralindinni frá kl. 14
en á laugardaginn verður farið
víða og hefst keppni kl. 10 við
Fjörukrána. Þaðan verður farið í
Intersport í Lindum kl. 13 og
lýkur keppni í ÍFR Húsinu að
Hátúni 14 í Reykjavík þar sem
keppni hefst kl. 16. Þar verður
sterkasti fatlaði maður heims í
hjólastólaflokki og standandi
flokki krýndur.
Þorsteinn Magnús Sölvason
Ólympíumótsfari verður á meðal
keppenda í mótinu en hann og
Ulf Eriksson frá Svíþjóð eru einu
tveir fötluðu lyftingamenn heims
sem hafa lyft 90 kg Atlas -
steininum í steinatökunni.
Ulf er ríkjandi meistari og má
búast við því að hann fá mikla
samkeppni frá Finnanum og
fjórföldum heimsmeistara Tafo
Jettajorvi en vissulega munu
íslensku keppendurnir láta vel
fyrir sér finna og gera atlögu að
öllum þeim verðlaunum sem í
boði verða.
Hver er sterkasti
fatlaði maður heims?
Keppt við Fjörukrána á laugardaginn kl. 10
Arnar Már Jónsson og Þorsteinn
Magnús Sölvason á Ólympíuleikum
fatlaðra í Peking.
Hef hafið störf í
Ásmegin, sjúkraþjálfun ehf
í Ásvallalaug
Sýningin Sigurjón Ólafsson og
Þorvaldur Skúlason - tveir
módernistar var opnuð í Hafnar -
borg fyrir skömmu.
Sigurjón Ólafsson mynd -
höggvari og Þorvaldur Skúlason
listmálari voru í hópi fram sækn -
ustu listamanna sinnar sam tíðar
og á rúmlega hálfrar aldar starfs -
ferli sínum beindu þeir nýjum
straumum inn í íslenska myndlist
á 20. öld undir samheitinu mó -
dern ismi. Í ár eru liðin eitt hundr -
að ár frá fæðingu Sigurjóns og
aldar afmælis Þorvalds var
minnst árið 2006. Þeir voru því
næstum jafnaldra og aðeins liðu
tvö ár milli andláts þeirra.
Í tilefni af þessum tímamótum
hafa Listasafn Sigurjóns Ólafs -
sonar og Listasafn Háskóla Ís -
lands efnt til samstarfs í boði
Hafn ar borgar um sýningu á
völdum verkum þeirra félaga.
Öll verkin eru úr fórum safnanna
tveggja og auk lykilverka eftir
báða listamennina koma fyrir
almenningssjónir í fyrsta sinn
um 100 vinnuteikningar eftir
Þorvald.
Tilgangur sýningarinnar er
m.a. að bjóða sýningargestum að
upplifa þöglar samræður milli
málverka Þorvalds Skúlasonar
og höggmynda Sigurjóns Ólafs -
sonar.
Tveir Modernistar
Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason
Ber enginn ábyrgð á svona skemmdum fremur en í bankakrepp -
unni? Hafnfirskir skattgreiðendur eru látnir borga brúsann!
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Elsku ég!
..og bíllinn minn