Fjarðarpósturinn - 19.02.2009, Síða 2
Hvað er jafnrétti, jú, jöfn réttindi til einhverra
hluta. Jafnrétti kynjanna er því að konur, jafnt
sem karlar hafa sinn rétt óháð kyni. Þýðir það þá
að alls staðar eigi að vera jafn margar konur og
karlar? Nei, ekki aldeilis. Sjálfur á ég sex stráka
og verð seint kærður fyrir brot á jafnréttislögum.
Nýverið bárust fréttir af brölti Samfylkingar -
manna sem ekki vildu tryggja konu annað af
efstu 2 sætunum og gengu þá konur á dyr. Þær
ætluðust sem sagt til að kynferði þeirra réði hvar þær enduðu á
framboðslista. Er þetta jafnrétti? Nei. Í jafnréttisbaráttunni (lesist
kvenréttindabaráttunni) gleymist oft réttur hvers einstaklings. Það er
undarlegt að ef ekki á að skipta kyn manna þá þurfi annað kynið að
víkja vegna þess að ekki séu jafn margir frá hvoru kyni. Greyið
Mörður Árnason varð t.d. fyrir barðinu á þessu. Konur eru að verða
í stórum meirihluta í kennarastétt, a.m.k. í grunnskólum. Enginn
segir neitt við því þrátt fyrir að þar geti spilað inn uppeldisleg mark -
mið. Auðvitað hlýtur að vera eðlilegt að ákveðnar stéttir verði ekki
karla- eða kvennastéttir eingöngu og auðvitað hlýtur það að vera jafn
áhugavert fyrir konur sem karlmenn að taka þátt í stjórnmálum. En
þetta er einstaklingsbundið val og hver og einn hefur líka rétt á að
taka ekki þátt.
Aukið fæðingarorlof hefur gefið konum sem vilja taka virkan þátt
í atvinnulífinu mun auðveldara fyrir en áður. Nú er frekar viðurkennt
að kona í áhrifastöðu taki sér frí vegna barnseigna enda er geysilega
mikilvægt að foreldrar geti verið sem lengst heima með börnum
sínum. Eðlilegri krafa er að foreldrar verði lengur heima frekar en að
hægt sé að koma börnum á leikskóla fyrr. Það er börnunum að
jafnaði fyrir bestu. En ekki gleyma að börnin okkar eiga að hafa
jafnan rétt - óháð kyni - og óháð kynjakvóta.
Guðni Gíslason
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. febrúar 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 860-7537
Helgi Gíslason sýnir í
Hafnarborg
Verund er yfir -
skrift sýningar
á nýjum verk -
um eftir Helga
G í s l a s o n a r
mynd höggv ara
sem opnuð
verð ur í Hafn ar -
borg á laugardaginn kl.15.
Á þessari umfangsmiklu sýningu eru
nýjar lágmyndir, teikningar og skúlp -
túrar þar sem mannslíkaminn er meg -
in viðfangsefnið eins og í fyrri verk um
lista mannsins. Þema sýningarinnar er
rannsókn á manninum og mæli kvörð -
um hans þar sem listamaðurinn tefl ir
saman mannslíkamanum og verk fær -
um sem notuð eru til að mæla heim inn
og kortleggja. Helgi er á meðal þekkt -
ustu myndhöggvara þjóð arinnar og
þekkja margir skúlptúra hans og stærri
verk sem sett hafa verið upp opin ber -
lega víða um land til dæmis á Höfn í
Hornafirði, Halla r garðinum í Reykjavík
auk lágmyndar í Fossvogskapellu.
Helgi átti hafnfirska móður, Kristjönu
Guðrúnu Kristjánsdóttur.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safn Íslands japönsku myndina
Rashomon frá 1965.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
myndasafnið bandarísku Óskars verð -
launa myndina Hannah and Her Sisters
(1986) eftir Woody Allen. Myndin fjall -
ar um þrjár systur, fjöl skyldur þeirra,
vini og elskhuga og sýn ir hversu ólíkt
fólk getur verið þrátt fyrir að alast upp
innan veggja sama heimilis.
Aðalfundur Hringsins
Aðalfundur Kvenfélagsins Hringsins
verður haldinn miðvikudaginn 25. febr.
kl. 20 í Hringshúsinu við Suðurgötu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI: 565 9775 ALLAN SÓLARHRINGINN
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 22. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Eigum góða stund saman með börnunum!
Æðruleysismessa kl. 20
Fluttur verður vitnisburður og
Fríkirkjubandið leiðir sönginn
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
Dauðsfall enn
í rannsókn
Sirrey María Axelsdóttir, sem
fannst látin í dúfnakofa í
Kapelluhraun á móts við álverið
5. febrúar var jarðsungin á
mánudaginn. Hún var 37 ára
göm ul og lætur eftir sig tvo
syni.
Sambýlismaður konunnar var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
20. febrúar, grunaður um að
hafa átt þátt í dauða Sirreyjar.
Málið er í rannsókn hjá lögreglu
höfuðborgarsvæðisins.
Hnífar og kylfur
Um helgina var tilkynnt um
þrjár líkamsárásir í Hafnarfirði
og voru hnífar og kylfur notað -
ar í árásunum. Á plani við
Reykjavíkurveg hittust tveir
hópar manna sem áttu sökótt
við hvorn annan og urðu átök á
milli mannanna. Átök á milli
hópanna hófust reyndar á plani
við bensínstöð í bænum. Voru
kylfur og barefli notaðar í árás -
unum. Einn maður var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið
eftir átökin. Á gististað við
Bæjar hraun kom til átaka á
milli konu og karls. Hótaði
kon an manninum með hnífi.
Þá var tilkynnt um þrjá menn í
slags málum utan við veitinga -
stað við Flatahraun. Einn
maður lá eftir, aðallega sökum
ölvunar, og var hann látinn
sofa úr sér ölvímuna í fanga -
klefa. Þá var tilkynnt um þrjú
innbrot. Brotist var inn í bíl í
Set bergshverfi og stolið úr
honum staðsetningartæki.
Brot ist var inn í Hval eyrar -
skóla og stolið tölvubúnaði og
sjón varpi. Þá var farið inn á
skrif stofur við Sólvang en
sennilega engu stolið.
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju
Aðalfundur
Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju
verður haldinn í safnaðarheimilinu
fimmtudaginn 26. febrúar kl 20:30 í Vonarhöfn
Hefðbundin aðalfundarstörf
Bingó og kaffiveitingar
Sunnudagurinn 15. febrúar
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna
fer fram í loftsal kirkjunnar.
Guðsþjónusta kl. 11.00
Frímúrarakórinn syngur
undir stjórn Jóns Kristins Cortez.
Organisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Prédikun: Eysteinn Orri Gunnarsson stud.theol.
Prestur: Bragi J. Ingibergsson
www.vidistadakirkja.is
Óskemmtileg aðkoma.