Fjarðarpósturinn - 19.02.2009, Blaðsíða 6
Sumarblóm
fyrir 1,1 milljón
48% munur var á hæsta og
lægsta tilboði í sumarblóm fyrir
Hafnarfjarðarbæ. Gróðrastöðin
Mörk átti lægsta tilboðið, 1135
þús. kr. sem var 92,7% af kostn -
aðar áætlun. Alls bárust 4 tilboð.
Skipulagsdagar
ekki skv. óskum
skólastjórnenda
Fræðsluráð samþykkti 12.
janúar sl. að velji grunnskólar að
hafa vetrarfrí skulu allir hafa það
á sama tíma. Einnig að starfs -
dagar í leik- og grunn skól um
verði samræmdir nú þegar þeir
verða jafnmargir á báðum skóla -
stigum á starfstíma skóla frá og
með næsta skólaári.
Í framhaldi af þessu gerði
sviðstjóri fjölskyldusviðs til lögur
að vetrarfrí í grunnskólum verði
dagana 29. og 30. október 2009.
Einnig að starfsdagar í leik- og
grunnskólum verði 29. sept. og
18. nóv. 2009 og 4. jan., 26. feb.
og 25. maí 2010. Ennfremur að
skólasetningardagur allra grunn -
skóla verði 21. ágúst.
Skólastjórar Hraunvallaskóla
og Víðistaðaskóla voru ekki
sáttir við tillöguna og lögðu fram
bókun og mótmæltu því að
skipulagsdagur yrði settur
mánudaginn 4. janúar. Því til
rökstuðnings nefna þeir að í
Hraunvallaskóla og Víði staða -
skóla sé tveggja anna kerfi.
Haustönn ljúki formlega 14.
janúar og þá taki við frágangur
námsmats og foreldraviðtöl.
Telja þeir nauðsynlegt að hafa
skipulagsdag í kringum 20. jan -
úar. Með því að setja alla skólana
undir sama hatt er verið að koma
til móts við óskir foreldra, en
jafnframt er vegið að sjálfstæði
skólanna og því skipulagi sem
þar er í gangi.
Ekki var tekið tillit til athuga -
semda skólastjóranna og var
tillaga sviðsstjórans sam þykkt
með þremur atkvæðum en tveir
sátu hjá.
Bókaði fulltrúi Sjálfstæðis -
flokks og taldi tillöguna vega að
sjálfstæði skóla og skóla stjórn -
endum bæjarins með til skipun af
þessu tagi.
Eins og kom fram í síðasta
Fjarðarpósti hefur Bláfjallavegur
oft verið ófær í vetur vegna snjóa.
Skv. upplýsingum Péturs Matt -
híassonar upplýsingafulltrúa
Vega gerðarinnar er vegurinn á
milli Bláfjalla og Vatnsskarðs
ekki á áætlun um vetrarþjónustu,
snjómokstur eða hálkuvörn og
hefur ekki verið undanfarin ár.
Hann segir ekki venju að
merkja vegi þó þeir séu ekki
ruddir eða ófærir vegna snjóa. Því
verða Hafnfirðingar að fara í
gegnum Garðabæ, Kópavog og
Reykjavík til að komast á skíða -
svæði höfuð borgar svæð isins
nema þeir vilji eiga á hættu að
festast eða þurfa að snúa við.
Það er yfirstjórn Vega gerð -
arinnar sem tekur ákvörðun um
snjómokstur en snjómokstri á SV-
svæði er stýrt frá þjónustu mið -
stöð Vegagerðarinnar í Hafnar -
firði.
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. febrúar 2009
Hluti Bláfjallavegar ekki
á snjómokstursáætlun
Lengir leiðina fyrir Hafnfirðinga á skíðasvæðin
HS Orka hf / HS Veitur hf óska eftir að ráða tímabundið
í starf þjónustufulltrúa staðsettan í Hafnarfirði
Þjónustufulltrúi – starfsstöð Hafnarfirði
Ráðið er til ársloka 2009
HS Orka hf var stofnuð 1. desember 2008 þegar Hitaveita Suðurnesja hf (HS hf) var skipt í HS Orku hf og HS Veitur hf.
HS Orka hf framleiðir heitt vatn og raforku í orkuveri sínu í Svartsengi ásamt því að framleiða rafmagn í raforkuveri á
Reykjanesi.
HS Veitur hf annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, á Álftanesi, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum
og í Árborg.
HS Veitur hf annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á
Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum.
Starfsstöðvar HS Orku hf / HS Veitur hf eru 5 þ.e. í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Árborg og í Svartsengi.
Hjá HS Orku hf starfa um 128 starfsmenn.
Í starfi þjónustufulltrúa fellst m.a.:
• taka á móti símtölum sem koma inn í fyrirtækið og vísa til
viðeigandi aðila
• skrá þjónustubeiðnir í upplýsingakerfi HS
• taka á móti þeim viðskiptavinum sem þurfa að hafa samskipti
við starfsmenn HS
• skráning og fullnaðar úrvinnsla ofl.
Hæfniskröfur:
• góð þekking og reynsla í tölvunotkun
• reynsla af almennum skrifstofustörfum
• sjálfstæð vinnubrögð
• góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu HS Orku hf / HS Veitum hf,
Bæjarhrauni 14, Hafnarfirði eða Brekkustíg 36, Njarðvík.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu fyrirtækisins www.hsorka.is.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri. Umsóknir skulu berast
þangað eigi síðar en föstudaginn 6. mars 2009.
Í 72. gr.laga um fjöleignarhús
nr. 26 frá 1994 og með síðari
breytingum segir: „Stjórnin skal
sjá um að bókhald húsfélagsins
sé fært og haldið á réttan og
fullnægjandi hátt.
Skulu á tíðkanlegan
hátt færðir glöggir
efna hags- og rekstrar -
reikn ingar.“
Það sækir á mig sá
grun ur að í mörgum
hús félögum sé sá hátt -
ur hafður á að gjald -
keri húsfélagsins inn -
heimtir húsgjöld eða
lætur banka inn heimta þau,
greið ir reikninga, færir bók -
haldið, býr til efnahags- og
rekstr ar reikning sem síðan ef til
vill er endurskoðaður af ein um
eiganda í húsfélaginu.
Ég er eiginlega viss um að
þess ir hlutir eru framkvæmdir í
mörg um húsfélögum af van -
kunnáttu enda ekki nema von þar
sem það er ekki á allra færi að
færa bókhald og stilla upp efna -
hags- og rekstrarreikningi þann -
ig að úr verði glögg reikningsskil
sem gefa rétta mynd af rekstri og
eignum félagsins.
Almennt er það álit þeirra sem
vinna við bókhald og reikn -
ingsskil að ekki sé talið eðlilegt
að gjaldkeri sjái um innheimtu
hús gjalda, greiðslu reikninga,
færslu á bókhaldi og
upp setningu á efna hags-
og rekstrar reikn ingi,
þrátt fyrir að ein hver fari
yfir færslur gjald kerans
af hálfu hús félagsins.
Góð vinnu brögð væru
ef óvið komandi aðili
sæi um færslu bókhalds
og uppsetningu á rekstr -
ar- og efnahags reikn -
ingi og væri þar með eftirlit með
færslum gjald kerans og síðan færi
kjörinn skoð unarmaður hús -
félags ins yfir bækurnar.
Einhver sakamál hafa komið
upp í gegnum tíðina vegna mis -
færslna gjaldkera sem orðið hafa
til þess að eigendur hafa tapað
stórfé.
Ég vil eindregið benda hús -
eigendum í fjöleignarhúsum á að
skoða hvernig þessum málum er
háttað í þeirra húsfélagi.
Höfundur er viðurkenndur
bókari og framkvæmdastjóri
Bókhaldsstofunar ehf.
Gjaldkerar húsfélaga
Magnús Waage
Neyðarlínan og barnaverndar -
yfirvöld hafa verið sam starfs -
aðilar frá því í ársbyrjun 2004 til
að tryggja öryggi barna og að -
gengi þeirra að aðstoð þegar upp
koma aðstæður í lífi þeirra sem
gera það að verkum að þau
þarfn ist hjálpar. Samskiptin fara
fram í fullum trúnaði gagnvart
öðrum en barnaverndarnefnd.
Hægt er að hringja í neyðar -
línuna allan sólarhringinn og fá
samband við barnaverndar -
nefnd ir í landinu.
Vafi kemur upp í hugann – en
það er betra að hringja en að
sleppa því. Það er veitt ráðgjöf
sím leiðis varðandi vandann og í
ein staka tilfellum mun barna -
verndarstarfsmaður fara á heim -
ili viðkomandi barns og kanna
aðstæður.
Hvað er neyð? Neyð er að barn
búi við ofbeldi, drykkju, fíkni -
efnaneyslu foreldra eða aðra
van rækslu sem skapar því hættu.
Tilkynningaskylda samkvæmt
barnaverndarlögum
Samkvæmt barnaverndar lög -
um er „hverjum þeim sem hefur
ástæðu til að ætla að barn búi við
óvið unandi uppeldisaðstæður,
verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða
stofni heilsu sinni og þroska í
alvar lega hættu er skylt að til -
kynna það barnaverndarnefnd.“
Í barnaverndarstarfi eru hags -
munir barna alltaf hafðir í fyrir -
rúmi. Reynt er að vinna með
fjölskyldu barnsins til að bæta
þær aðstæður sem það býr við.
Markmið barnaverndarvinnu
er að styrkja fjölskyldur í upp -
eldishlutverki sínu og beita úr -
ræðum til verndar börnum þegar
það á við.
Barnaverndarstarfsmenn í
Hafnarfirði.
Barnaverndarnúmerið
1 1 2
Látum börnin okkur varða, hringdu þótt þú sért í vafa
Bókhaldsuppgjör • Skattaframtöl
Fyrir einstaklinga og fyrirtæki - lítil sem stór
Rekstrargreining ehf.
Bæjarhrauni 2, 2.h. • sími 555 1090
Ólafur Haukur Magnússon,
viðskipta- og rekstrarhagfræðingur