Fjarðarpósturinn - 19.02.2009, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. febrúar 2009
3 herbergja íbúð með yfirbyggðum
stórum svölum til leigu á Daggar -
völlum. Íbúðin er laus fljótlega,
einnig er bílastæði í bílakjallara.
Hafið samband:
svalaheidberg@gmail.com eða í
síma 0045 35133846
2ja herb. 70 fm² íbúð í
Norðurbænum til leigu. Leiga 80
þús. Laus fljótlega.
Uppl. í síma 694 5412
Rúmgóðar 2ja,og 4ra herb. íbúðir
á Völlunum. Leigjast með öllum
tækjum, ljósum og gardínum. Leigu -
verð 2ja herb. kr. 95.000
+hússjóður kr. 6.362,-. 4ra herb.
kr. 126.493 + hússjóður kr. 7.637,-
Langtímaleiga.
Upplýsingar í síma 869 3469.
Einbýlishús til leigu á besta stað í
Hafnarfirði. 5 herb, bílskúr, heitur
pottur o.fl. á Vesturvangi í Hfj. Laus
1. Mars nk. Leiguverð: TILBOÐ
(lágm. 200 þús.kr.)
Uppl. Í síma 896 4557.
Hugguleg 2ja herbergja íbúð
(65m²) á Álftanesi til leigu. Allt
nýtt. Stór stofa með glænýrri
eldhúsinnrétt ingu og háu barborði.
Glænýtt parket í stofunni. Stórt
svefn herbergi með sjávarútsýni.
Strætóskýli á götunni. Leigist mjög
ódýrt. Sími 699 4613.
Tilboð! Til sölu Michelin
heilsársdekk, 195/50R15, low
profile dekk sem ný. Passa undir
Getz og fleiri smábíla. Verð ný kr.
100 þ. Seljasat á 30 þús. kr. Uppl. í
s. 555 2369/894 8311.
Sparaðu 100 þúsund kr.!
Nokkurra mánaða, nær ónotað
„Sælurúm“ með nuddi frá RB-
rúmum til sölu. 120 cm breitt,
stillanlegt m. þráðlausri fjarstýringu,
vönduð springdýna. Rúmteppi og
púðar geta fylgt.
Uppl. í s. 896 4613.
Óska eftir að kaupa góðan,
nýlegan og vel með farinn
kerruvagn á sanngjörnu verði.
Guðný s. 856 6751
Óska eftir gömlum pc tölvum
gefinst til nota í kennslu.
Uppl. 896 9410.
Tek að mér að stytta buxur og
annan fatnað. Er klæðskeri og bý í
Hafnarfirði. Uppl. í síma 866 2361
eftir kl. 16 alla daga.
Förðun og neglur.
Förðun fyrir öll tækifæri, einnig
gelneglur.
Uppl. gefur Laufey förðunar- og
naglafræðingur, s. 699 4603
Viltu léttast, styrkjast eða auka
snerpu? Ég tek að mér einkaþjálfun
upp í Kaplakrika á sanngjörnu verði.
Upplýsingar í síma 895 2705 eða
the@mi.is. Þórey Edda
Svartur STIGA sleði með rauðu
sæti hvarf heimanfrá sér við
Blikaás fyrir nokkrum dögum.
(Sleðinn hefur ein kenni sem eigandi
einn veit um). Ef einhver hefur orðið
sleðans var þá vin samlega hafið
samb. í s. 695 1976.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r@f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
Tapað - fundið
Til sölu
Þjónusta
Húsnæði í boði
Heilsa
Óskast
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Nudd, slökun
og ráðgjöf
Er einnig með nuddbekk sem er
sérhannaður fyrir barnshafandi konur.
Er staðsett í Hafnarfirði.
Eygló B. Sigurðardóttir
Vægt verð
sími 562 7798 og 861 1677
eybjork@centrum.is
Heilsunudd
Nýtt í Hress! (bak, aðeins 1999,-)
Einnig heilsu með ferð (kinezio logic,
meridians, viðbragðs meðferð)
eða ert þú stressuð(aður)?
Sími: 841 0968, Hress: 565 2212
Valentínusargjöf:
kr. 3500,- 60mín. – algjör slökun.
Við afgreiðslu bæjarstjórnar á
lóðaafsölum var afsali fjögurra
lóða hafnað þar sem fram -
kvæmdir voru hafnar. Álögð
gjöld á þessum lóðum voru um
23 millj. kr. Lóðirnar eru á Fífu -
völlum, Glitvöllum og Hnoðra -
völlum.
Hins vegar var samþykkt afsal
á einni íbúðarhúsalóð og 2
atvinnulóðum með álögðum
gjöld um að upphæð um 36,5
millj. kr. Þessar lóðir eru á
Möðru völlum og Norðurhellu.
Fá ekki að skila lóðum
Ekki hægt að skila ef framkvæmdir eru hafnar
Viltu losna við skattframtalið í ár?
1. mars nálgast
Þá er ég lausnin.
Sé um gerð framtala fyrir einstaklinga.
Er viðskiptafræðingur, M.sc. og með reynslu.
Fullum trúnaði heitið og MJÖG gott verð.
Vinsamlega hafið samband og leitið upplýsinga á
skattframtal2009@hotmail.com
Hlakka til að heyra frá ykkur!
Viljum ráða starfsmenn í aðhlynningu á hjúkrunarheimilið
Sólvang. Um er að ræða tímabundið starf og þar á meðal
fastar næturvaktir.
Einnig vantar starfsfólk til sumarafleysinga.
St. Jósefsspítali, Sólvangur er vinnustaður sem leggur áherslu á
umhyggju fyrir starfsfólki, jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi og að
sérhver starfsmaður fái að njóta sín.
Nánari upplýsingar veitir:
Erla Helgadóttir, erla@solvangur.is og í síma 590 6590.
Laun ofangreindra starfa eru samkvæmt gildandi samningi vikomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást á heimasíðu stofnunarinnar www.stjs.is og
skrifstofu Sólvangsvegi 2, Hafnarfirði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
St. Jósefsspítali – Sólvangur
www.stjs.is
Ég get ekki orða bundist leng ur
hvað varðar lokun leikskól anna
hér í Hafnarfirði. Nú hefur það
verið ákveðið af Fræðsluráði að
loka í 4 vikur frá 8. júli til 5. ágúst,
sem sagt ekkert val. Svona
einhliða lokanir verða til þess að
margar fjölskyldur ná ekki að vera
saman í sumarfríi sem kem ur til af
því að margir foreldrar eru
skipaðir í sumarfrí á sínum vinnu -
stað á öðrum tíma. Ég spyr, er ekki
hægt að breyta þessu? Er ekki það
sem skiptir máli að fjöl skyldan nái
að vera saman?
Þegar ég talaði við formann
fræðslu ráðs Ellý Erlingsdóttur
tjáði hún mér að þetta væri gert í
sparn aðarskyni fyrir bæinn, hag -
ræðing, nú væru erfiðir tímar fjár -
hagslega. Er ekki mikilvæg ast á
þessum tíma að fjölskyldan geti
verið saman? Er þetta virki lega
sparn aður? Er ekki betra að fá fólk
inn til afleysinga á leik skólum yfir
sumarið heldur en að það sé at -
vinnulaust? Við höfum öll fundið
fyrir „kreppunni“ fjár hags lega en
ég væri svo sannar lega til í að
borga 12 mánuði á ári í leik -
skólagjöld heldur en 11 og að eins
betur til þess eins að geta verið
með fjölskyldunni minni í fríi.
Vísa ég hér með í fjöl skyldu -
stefnu Hafnarfjarðarbæjar 2008-
2010 sem segir meðal annars:
„Fjölskyldan gegnir lykil hlut verki
í mótun einstaklingsins og er
grundvöllur fyrir tengsla myndun
og heilbrigðum tilfinn inga þroska.
Allir tilheyra fjöl skyldu hvort sem
þeir búa einir eða með öðrum.
Ennfremur að skilyrði til upp -
eldis barna séu ákjósanleg og að
fullorðnir geti sem best notið sam -
vista með börnum sínum og
barnabörnum.
Leggja skal áherslu á mikil vægi
samveru fjölskyldunnar og
einstaklinga á ólíkum aldri.
• stuðla að því að jafn vægi ríki á
milli atvinnu- og fjöl skyldu lífs,
• hvetja til þess að foreldrar geti
borið jafna ábyrgð á heim -
ilishaldi, umönnun og uppeldi
barna.“
Ég veit til þess að Garðabær er
ekki með ákveðnar sumarlokanir í
leikskólum en skylda er að börn
fái frí yfir sumartímann í 4 vikur.
Þetta er til þess að fjölskyldan
getur notið þess að vera saman í
fríi sem veitir ekki af á þessum
síðustu og verstu tímum.
Vil ég í lokin hvetja aðra for -
eldra sem standa í sömu sporum að
láta í sér heyra.
Hlíf Berg Gísladóttir,
útivinnandi móðir með barn á
leikskóla.
Opið bréf til Fræðsluráðs Hafnarfjarðar
Fjölskyldan í fyrirrúmi
Nokkrir áhugamenn um borð -
tennis hafa verið að skoða mögu -
leika á að stofna deild í Hafnar -
firði jafnvel sem deild í Bad min -
ton félagi Hafnarfjarðar en hug -
myndir um slíkt eru á byrjunar -
stigi.
Borðtennis er íþrótt sem auð -
velt er að stunda og allir geta tek -
ið þátt. Því eru hugmyndirnar
sem unnið er út frá, að gera þetta
að fjölskylduvænni almennings -
íþrótt jafnframt því að gefa
keppnis mönnum nægt svigrúm
til æfinga undir handleiðslu
þjálf ara. Í Hafnarfirði hafa fjöl -
margir verið virkir í gegnum tíð -
ina í borðtennis, í skólum,
félags miðstöðvum og í bíl -
skúrum.
Verið er að safna saman fólki í
undirbúningshóp en forsvars -
menn hópsins eru Geir Bjarna -
son, Haukur Haraldsson og Jó -
hanna Fleckenstein en þau hafa
það sammerkt að vera að sýsla
með ungu fólki og vinna að
uppeldis málum.
Þau segja að í dag á tímum
kreppu, offitu og hreyfingar -
leysis sé kjörið að hugsa jákvætt
og ýta undir mann leg samskipti
og hreyfingu og mun því verða
lögð rík áhersla á félagslega þátt -
inn í kring um íþróttina.
Svona verkefni styrkjast eftir
því sem fleiri koma að undir -
búningi og áhugasömum er bent
á að hafa samband við Geir í
gegnum netfangið geb7@hi.is
Borðtennisfélag