Fjarðarpósturinn - 19.02.2009, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 19. febrúar 2009
Komdu á æfingu!
www.haukar.is
Maður lést
eftir vinnuslys
við Bæjarhraun
Banaslys var í húsnæði við
Bæjarhraun er verið var að
þrýstiprófa loftkút. Lok af
kútnum fór í höfuð manns sem
stóð þar hjá og lést hann sam -
stundis.
Hinn látni hét Sigurður Þór ir
Hansson til heimilis að Mið -
mundarholti í Ásahreppi.
Hann var bílamálari og kenn -
ari við Borgarholtsskóla. Hann
var 59 ára gamall og lætur eftir
sig eiginkonu, tvö uppkomin
börn og tvö barnabörn.
Þrestir syngja
fyrir konur á
konudaginn!
Karlakórinn Þrestir heldur
upp á konudaginn, 22. febrúar
nk., sem jafnframt er fyrsti
dagur Góu, með því að bjóða
kon um í Hásali í Hafnarfirði
milli kl. 15 og 17. Þar verður
boð ið upp á söng en einnig
kaffi og meðlæti. Þetta eru
ekki hefðbundnir tónleikar
held ur mun kórinn koma fram
og syngja af og til og þess á
milli geta gestir gætt sér á kaffi
og meðlæti. Konur fá að sjáf -
sögðu frían aðgang en karlar
borga litlar 1.000 krónur. Börn
eru velkomin.
Afdrif togar -
ans Júlí GK
Fróðleiksmolar Byggða -
safns ins verða í kvöld í Pakk -
húsinu, Vesturgötu 8 þar sem
Steinar J. Lúðvíksson, blaða -
maður, flytur fyrirlestur sem
ber yfirskriftina „Nýfundna -
landsveðrið 1959“ þar sem
rifjaðir verða upp atburðir er
bæjarútgerðartogarinn Júlí GK
21 fórst við Ný fundna land
með allri áhöfn. Í fyrir lestr -
inum mun Steinar fjalla um
ástæður þess að Íslendingar
sóttu á Ný fundna landsmiðin á
þessum árum, veðurofsann og
raunir þeirra sem þar voru. Þá
mun hann fjalla sérstaklega
um Júlí og leitina að honum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og hefst hann kl. 20 í húsa -
kynnum Byggðasafns Hafnar -
fjarðar, Pakkhúsinu, Vestur -
götu 8 og er aðgangur ókeypis.
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
Neglur neglur neglur
..fallegar gel neglur
Rúmlega eitt þúsund manns eru
skráðir atvinnulausir í Hafn ar -
firði. Flestir atvinnulausra koma
úr byggingariðnaði eða 23% og
næst mest úr verslun, um 17%.
Lang flestir atvinnulausra,
tæpur helmingur er með grunn -
nám en um 23% iðnlæðra eru
atvinnulausir, háskóla mennt aðir
koma þar á eftir með um 14%
atvinnuleysi.
Ef atvinnuleysi er skoðað eftir
aldri kemur í ljós að um fjórð -
ungur atvinnulausra eru á aldr -
inum 30-39 ára og litlu færri eru
á aldrinum 16-24 ára. Minnst
atvinnuleysi er hjá fólki yfir
fimmtugt, sérstaklega milli 60-
69 ára. 135 á aldrinum 50-59 eru
atvinnulausir og 54 á aldrinum
60-69 ára. Rétt er þó að geta að
hlutfall fólks í elsta aldurs hópn -
um er lægra á vinnumarkaði en
hinna aldurshópanna.
Í janúarlok voru 108 ein stakl -
ingar með erlent ríkisfang skráð -
ir atvinnulausir í Hafnarfirði.
Þessar upplýsingar koma fram
í skýrslum Hagstofunnar.
6% atvinnuleysi í Hafnarfirði
45% atvinnulausra aðeins með grunnnám og flestir atvinnulausra koma úr byggingariðnaði
Þunnar og flottar „ekkert loft“
endast 4 til 6 vikur
Tilboð gel neglur
Ásetning: kr. 5.500,-
Lagfæring: kr. 4.000,-
Greinilegt er að Hafnfirðingar,
jafnt sem aðrir sækjast í lágt
vöruverð. Það mátti sjá þegar ný
verslun Krónunnar var opnuð sl.
fimmtudag á mótum Reykja -
víkurvegar og Flatahrauns og
hafa góð opnunartilboð ekki
spillt fyrir.
Nýja verslunin er hin glæsi leg -
asta og mun stærri en Krónu -
versl unin við Hvaleyrarbraut og
vöruúrval mun meira. Sérstaka
athygli vakti gott úrval af fersk -
vöru, grænmeti og ávöxtum auk
þess sem Krónan býður einnig
gott úrval af ferskum kjötvörum
en kjöt er pakkað ferskt á
staðnum enda er góð aðstaða í
nýju versluninni.
Hafnfirðingar taka nýrri verslun vel
Örtröð þegar ný glæsileg verslun Krónunnar var opnuð við Reykjavíkurveg
Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss, Kristinn Skúlason,
rekstrarstjóri Krónunnar og Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri
Kaupáss voru stoltir af nýju versluninni og móttökunum.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n