Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Page 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Komdu á æfingu!
www.haukar.is
Skólamálaþing
Laugardaginn 7. mars stend -
ur Foreldraráð Hfj. fyrir mál -
þingi um skólamál. Þingið
verður í Víðistaðaskóla kl. 10-
14 og eru foreldrar hvattir að
taka frá tímann.
Sérstök tilboð á Fjörukránni
Hvunndagsmatseðill
Tveggja rétta matseðill á kr. 1.500 - Sértilboð - gildir á kvöldin mánudaga-fimmtudaga
Helgartilboðsmatseðill
Þriggja rétta matseðill á kr. 4.200 - gildir á kvöldin föstudaga-sunnudaga .
www.fjorukrain.is - Pöntunarsími 565 1213
Í gær mættu flest börn í
búningum enda var öskudagur.
Voru búningarnir af öllum
gerðum, keyptir skrautbúningar
og haglega heimagerðir bún -
ingar. Börnin höfðu mörg hver
málað andlit sín og gengu á milli
fyrirtækja og sungu og þáðu
góðgæti í staðinn.
Kötturinn var sleginn úr
tunnunni á Thorsplani og fjöl -
margir þáðu heitt kakó hjá
Rauða krossinum enda var
dagur inn kaldur. Yfir 500 börn
komu á Hæfingarstöð fatlaðra á
Bæjarhrauni og sungu fyrir
vistmenn og starfsfólk og allir
fengu góðgæti úr körfunni. Ríkti
óvenju mikil kátína á staðnum
enda ekki á hverjum degi sem
skrautbúnir krakkar koma í
heimsókn.
Búningar, nammi og einstaka öskupokar
L
jó
s
m
y
n
d
ir
:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n