Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.04.2009, Síða 6

Fjarðarpósturinn - 22.04.2009, Síða 6
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 22. apríl 2009 Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is Demparar FRÁ TÓNLISTARSKÓLA HAFNNARFJARÐAR Innritun í Forskóla – Börn fædd 2002 Innritun í Forskóla Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fer fram dagana 27.-30. apríl frá kl. 9-12 og 13- 17 á skrifstofu skólans eða í síma 555 2704. Einnig er hægt að innrita í gegnum Íbúagáttina á www.hafnarfjordur.is. Einungis verða teknir inn 50 nemendur í Forskólann að þessu sinni. Skólastjóri Fyrir nokkrum mánuðum síðan ætlaði þáverandi heil - brigðisráðherra að gerbreyta allri starfsemi á St. Jósefs - spítala í Hafnarfirði. Eftir breytingarnar hefði stofnunin varla verið nema svipur hjá sjón. Bæjarbúar risu upp gegn þessum áform um – allir sem einn. Eftir að ný rík is - stjórn tók við völd um, var horfið frá upp - runalegum áform um, þótt enn sé ekki ljóst hver end anleg niður - staða verður í mál efn - um spítal ans. Ákveðnir þættir í starf semi spítalans gegna mik il - vægu hlut verki í almennri heil - brigð isþjónustu við bæjar búa í Hafn arfirði. Þannig styðja þeir við bakið á þeirri almennu heilsu gæslu sem veitt er á heilsu - gæslustöðvunum í bæn um. Heilsugæslan til bæjarins Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur marglýst þeirri skoðun sinni að heilsugæslan sé mikil - vægur þáttur í nærþjónustu við bæjar búa, ásamt með mál - efnum aldraðra og málefnum fatlaðra. Bæjar stjórn in hefur litið svo á, að þessi verk efni eigi betur heima á forræði bæjarins en ríkisins. Það var skref í þver - öfuga átt þegar heilsu gæslu stöðv - arnar í Hafnar firði voru sam einað ar heilsu gæslu höf uð - borgar svæðis ins . Þessu viljum við breyta og höfum ítrek að óskað eftir viðræðum um að taka heilsu gæsl una yfir. Ögmundur Jónas son, núverandi heil - brigðis ráð herra féllst á slíkar viðræður, um leið og hann tilkynnti að horfið hefði verið frá áformum um stórfelldan niðurskurð á starf semi St. Jósefsspítala. Hann óskaði jafn framt eftir því að bærinn til - nefndi fulltrúa í slíkar viðræður. Það var gert strax, en ekkert hefur gerst, þótt liðnir séu nokkrir mánuðir síðan. Ráð - herrann hefur enn ekki boðað fulltrúa bæjarsins til fundar. Það er ekki síður áhyggju efni, að á sama tíma og fulltrúar bæjarins bíða eftir þessum viðræðum, fréttist af stór - felldum samdrætti í þjón ustu heilsugæslunnar, vegna niður - skurðar. Það eru mikil von brigði að heil brigð isráð herra skuli ekki hafa séð ástæðu til að fylgja eftir boð uðum áformum um við ræður og samráð við bæjar - yfirvöld. Það er orðið nokkuð ljóst að þessar viðræður munu ekki fara fram fyrir Alþingis - kosningar. Það er jafn ljóst, að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði munu knýja dyra hjá heil - brigðisráðherra eftir kosning - arnar, hver svo sem það verður. Höfundur er formaður fjölskylduráðs og bæjarráðs. Hvað með heilsugæsluna, Ögmundur? Guðmundur Rúnar Árnason Á morgun, sumardaginn fyrsta kl. 15 mun Lúðvík Geirs - son, bæjarstjóri, taka fyrstu skóflustunguna að uppbyggingu Garð- og listmiðstöðvar sem mun rísa á Þorlákstúni á næstu árum . Samkvæmt deiliskipulagi verð ur keyrð fylling í Þorlákstún og því lyft upp fyrir Reykja - nesbraut. Á neðra svæðinu verða ræktunarhús, handverks - hús og gróðurreitir en á efri hluta svæðisins nær Lyngbarði verð ur söluaðstaða og stjórn - stöð. Göngustígar sem liggja um svæðið munu halda sér og að - gang ur um þá verður óhindr - aður. Fyrsti áfangi framkvæmdanna er í anda þess að varðveita og vernda, Marteinshús, timburhús sem staðið hefur við Suðurgötu 41 frá fyrrihluta síðustu aldar verður flutt á staðinn og nýtt sem stjórnstöð plantað verður út trjágróðri til skjóls og yndis - auka. Í Þorlákstúni verður rækta ð, byggt og skapað eins mik ið og mögu legt er úr ís lensku náttúru - efni fyrir landsmenn alla og ekki síður fyrir þá hundruðir þúsunda ferðamanna sem hér fara hjá á hverju ári. Ætlunin er að gera svæð ið aðlaðandi og forvitnilegt til þess að fanga athygli ferða - langa og fá þá til að staldra við. Steinþór Einarsson, skrúð - garð yrkjumeistari hefur fengið til liðs við sig Kára Eiríksson, arki tekt til þess að hanna þau mannvirki sem fyrirhugað er að reisa og eru þeir m.a. með hug - myndir að bjálkahúsi úr íslensk - um skógarviði. Á það að vera með lyngklæddu þaki. Hand - verks mönnum og mynd höggv - urum verður veittur að gangur að svæðinu til þess að koma sköp - unarverkum sínum á framfæri. Að sögn Steinþórs verður byggt upp með þolinmæði og hugar - fari garðyrkjumannsins. Allt tekur sinn tíma. Garð- og listmiðstöð á Þorlákstúni Fjórði flokkur karla í hand - bolta í Hauk um sigraði Gróttu á sunnu daginn í æsi spennandi og mikl um markaleik. Með sigr - inum tryggði liðið sér Íslands - meistara titilinn. Í liðinu eru þeir Brynjólfur, Egill, Adam, Alexander, Herg - ils, Hallur, Arnar Ingi, Arnar Sesar og markmennirnir Bjarki og Gunnar Örvar. Gunnar Örvar náði þeim glæsta árangri að verða bæði Íslandsmeistari í knattspyrnu með 4. flokk karla og Íslands - meistari í handbolta. Kampakátir strákarnir eftir leikinn á sunnudag. Haukar Íslandsmeistarar í 4. flokki Opnum á laugardaginn að Reykjavíkurvegi 68 United Pets • Carnello • Happy Dog • Happy cat • Hurtta • Red Dingo • Greenfields Hundar og kettir velkomnir – takið eigendura gjarnan með. Opið kl. 11-16

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.