Fjarðarpósturinn - 30.04.2009, Qupperneq 2
Kosningaúrslitin voru nokkurn veginn eftir
bókinni. Verð ég þó að viðurkenna að árangur
Borgarahreyfingarinnar kom mér á óvart.
Auðvitað má leika sér að prósentum og segja
að Framsóknarflokkurinn hafi verið sigur -
vegari kjördæmisins og VG í öðru sæti. En
prósentuútreikningur af atkvæðamagni segir
ekki allt. Þegar fylgið er lítið verða allar
hreyfingar stórar. Þorgerður Katrín er eini
þingmaður Hafnfirðinga og bæjarstjórinn missti sæti sitt til
samflokksmanns síns og Gaflara í NA-kjördæmi við síðustu
talningu. Erfitt er að lesa út úr niðurstöðunum. Ekkert er afgerandi
um ESB, engar lausnir eru fyrir heimilin né fyrir fyrirtækin. Fólk
situr enn uppi með svívirðilega há gjaldeyrislán og uppspennt
verðtryggð lán. Sumir hafa fengið að fresta greiðslum en fyrir þá
sem voru skuldsettir er bara verið að lengja í hengingarólinni.
Umræðan um Evrópubandalagsaðild er nokkuð sérstök. Þrátt
fyrir ákveðnar skoðanir stjórnmálamanna hefur ekki verið sett upp
upplýsingaveita sem metur kosti og galla einstakra mála. Þegar
slíkt er hægt að sjá er fyrst hægt að taka afstöðu. Hugmyndir um
þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort eigi að sækja um finnst mér
bruðl á peningum. Norska leiðin hlýtur að vera einföldust, þjóðin
fái að taka afstöðu til samnings sem liggur fyrir. Þá ætti ekkert að
vera óljóst og þjóðin getur tekið upplýsta ákvörðun. Annars held
ég ekki að aðild ein og sér eða tenging krónunnar við annan
gjaldmiðil ein og sér leysi nein mál. Við þurfum að vinna okkur út
úr fjárhagsvandanum, við þurfum og snúa baki við bölsýni og
horfa björtum augum fram á við. Öll él birtir upp um síðir.
Guðni Gíslason.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 30. apríl 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudaginn 3. maí
Helgiganga á Helgafell eftir
stutta bænastund kl. 11
Lagt af stað á bílum frá kirkjunni að Kaldárbotnum
og gengið þaðan á fjallið. Stuttar helgistundir við fjallsrætur,
í hlíðum og á tindi Helgafells. Nesti í boði kirkjunnar.
Prestar: sr. Gunnþór Þ.Ingason og sr. Kjartan Jónsson
Göngustjórar: Claus Hermann Magnússon og Sigurjón
Pétursson ásamt Gönguklúbbi Kvenfélagsins.
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Styrktartónleikar
Í kvöld, fimmtudag kl. 20 verða
haldnir tónleikar í Bæjarbíói til
styrktar Kidda málara sem er með
MND sjúkdóminn. Þar koma fram
Tríó Björns Thoroddsen og Andrea
Gylfadóttir, Bjargræðistríóið, Kór
Fríkirkjunnar í Reykjavík, Alla og
Anna Sigga auk gamalla félaga Kidda
úr leikarastéttinni. Miðasala er í
Dalakofanum í Firði.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safnið mynd sænska kvik -
mynda gerðarmannsins Bo Wider -
berg, Ådalen ’31 frá árinu 1969.
1. maí ganga
Kröfuganga verkalýðsfélganna verð -
ur að venju á 1. maí. Safnast verður
saman við Ráðhúsið á Strandgötu
og lagt af stað kl. 14. Gengið verður
upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu,
Smyrlahraun, Arnar hraun, Slétta -
hraun og að Flatahrauni 3, Hraunseli
þar sem hátíðarfundur verður. Karl
Rúnar Þórsson flytur ávarp dagsins
og Halldór Grönvold flytur ræðu.
Hundur í óskilum skemmta. Kaffi -
veitingar.
Hreinsunardagar
Fram til 6. maí standa yfir hreins -
unar dagar í Hafnarfirði og starfs -
menn þjónustumiðstöðvar bæjarins
fara um bæinn og fjarlægja garða -
úrgang sem settur hefur verið út fyrir
lóðamörk. Er kjörið tækifæri fyrir íbúa
að sameinast um að halda götuhátíð
í lok tiltektar og auðga mannlífið í
hverfinu.
KK í Fríkirkjunni
Prime stendur fyrir tónleikum KK í
Fríkirkjunni á morgun, föstudag og
hefjast tónleikarnir kl. 21. Miðasala
er við innganginn og á midi.is.
Veðurskrift í Hafnarborg
Sýningin Veðurskrift með verkum
Guðrúnar Krtistjánsdóttir stendur yfir
í Hafnarborg. Sýningunni lýkur 10.
maí.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 3. maí
Guðsþjónusta kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson
héraðsprestur.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
Góð kjörsókn
Á kjörskrá í Hafnarfirði voru
17.991 en alls kusu 15.318, eða
85,14% þeirra sem voru á
kjörskrá. Er það meiri kjörsókn
en í alþingiskosningunum 2007
en þá var kjörsókn 82.3 %.
Unnur
verkefnastjóri
landsliðsmála
FH ingurinn Unnur Sigurðar -
dóttir var nýlega ráðin verk -
efnastjóri lands liðsmála hjá
FRÍ í tíma bundið starf til 1. júlí
nk.
Helstu verkefni sem Unnur
mun sinna á þessum tíma er
undirbúningur og stjórn lands -
liðs Íslands á Smáþjóða leik -
unum á Kýpur 1.-6. júní nk. og
Evrópubikarkeppni landsliða,
3. deild, 20.-21. júní nk. í
Sarajevo.
Unnur hefur starfað lengi
innan frjáls íþrótta hreyfingar -
inn ar, sem keppandi, þjálfari,
stjórnarmaður í FRÍ og sem
liðs stjóri og fararstjóri í verk -
efnum landsliðsins m.a. á síð -
ustu Ólympíuleikum sem
flokks stjóri FRÍ.
Gamli Hafnargarðurinn
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n