Fjarðarpósturinn - 30.04.2009, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 30. apríl 2009
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 3. maí:
Fjölskylduhátíð í Kaldárseli
Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Fríkirkjubandið heldur upp í fjörinu.
Dagskrá hefst kl. 11.
Þeim sem ekki koma á eigin bílum er bent á rútuferð frá
Kirkjunni kl.10.30. Pylsur og góðar veitingar
Batamessa kl. 17
www.frikirkja.is
Upplýsingar og skráning á netinu: www.ulfljotsvatn.is
Fyrir hressa stráka og stelpur 8-12 ára – skipt í hópa eftir aldri
Jaðarnámskeið fyrir unglinga sem þora 13-16 ára
Messan er á vegum þeirra sem tekið
hafa þátt í 12 spora starfi kirkjunnar
og er haldin í samstarfi við
Laugarneskirkju, Vídalínskirkju
og Hjallakirkju.
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Sunnudagur 3. maí
Messa kl. 11
Prestur sr. Bára Friðriksdóttir.
Tónlistarstjóri Helga Þórdís Guðmundssdóttir og
kór Ástjarnarkirkju styður sönginn.
Fermingarbörn næsta vetrar og foreldrar
þeirra eru sérstaklega boðin velkomin í
messu en að henni lokinni verður fundur um
fermingarstörfin næsta vetur.
Í kirkjukaffinu verður nýja merki kirkjunnar kynnt,
höfundi sigurtillögu veitt verðlaun og
viðurkenningar fyrir sæti nr. 2 og 3.
Miðvikudaga kl. 16.30 Opin bænastund.
Vertu hjartanlega velkomin(n) í kirkjuna þína.
www.astjarnarkirkja.is
Bjartsýni
ríkjandi
Grillhöllin opnar í
byrjun júní
Fyrirtækið JS veitingar
hefur hafið undirbúningi að
opnun veglegrar verslunar í
220 m² húsnæði að Tjarnar -
völlum 15, við hlið bakarísins
Kornsins. Að sögn Jóns
Péturssonar hjá JS veitingum
rekur fyrirtækið fyrir sjoppu í
Kópavogi, við hlið Toyota og
Grillhöllina í Grafarholti en
nýja verslunin mun einnig
bera það heiti.
Þetta verður alvöru sjoppa
með grilli, ísbar og öllu sem
tilheyrir og segist Jón hafa
fengið hvatningu til að opna
verslun þarna.
Það má segja að bjartsýni
ríki í verslunarrekstri í Hafn -
ar firði því annars staðar í
blað inu er einnig sagt frá
opnun verslunar við Reykja -
vík ur veg auk þess sem nýtt
kaffi hús verður opnað í gamla
Sjálfstæðishúsinu á morgun.
Orka og slökun
Viltu koma jafnvægi á líf þitt?
Komdu þá á námskeið hjá Sjúkraþjálfaranum í maí.
Hulda S. Jeppesen, sjúkraþjálfari
Sex kennslustundir, léttar æfingar, fræðsla,
slökun og heimaverkefni.
Uppl. í síma 824 7454.
Vox feminae kórinn syngur
um ástina og vorið í Hafn ar -
borg miðvikudaginn 6. maí kl.
20. Listrænn stjórnandi tónleik -
anna „Þar sýprus grær“ er
Margrét J. Pálmadóttir kór -
stjóri. Einsöngvarar koma úr
röð um kórkvenna, Símon Ív -
ars son leikur á gítar og Mar ion
Herrera á hörpu. Á efnis skránni
eru madrigalar og fleiri mið -
alda söngvar m.a. eftir Monte -
verdi, Passerau, Gast oldi, Dow -
land, Morley, Gibb ons og
Vecchi.
Á tímum endurreisnarinnar
störf uðu litlir sönghópar við
ítalskar hirðir. Sungið var um
ástina í margbreytileika gleði,
unaðar, angistar og söknuðar,
hús bændum og hjúum til
ánægju og yndisauka Þetta
form tónlistar breiddist út og
átti t.a.m. miklum vinsældum
að fagna á Englandi. Kvenna -
kórnum Vox feminae er unun
að flytja þessa fjölradda verald -
legu söngva enda höfða þeir
enn í dag sterkt til allra sem
þekkja ástina. Þeir sem dálæti
hafa á þessari tegund tónlistar
ættu ekki að láta þetta tækifæri
fram hjá sér fara.
Sungið um ástina
Vox femine syngur á miðvikudaginn í Hafnarborg
Bragi Bergþórsson verður
gestur Antoníu Hevesi á hinum
gríðarlega vinsælu há degis tón -
leikum Hafnarborgar fimmtu -
daginn 7. maí. Yfirskrift tón -
leik anna er Tenórinn og tilfinn -
ingarnar en á dagskrá verða
ljóð eftir Schubert og ítalskar
óperuaríur.
Bragi hefur farið með hlut -
verk í ýmsum óperu uppfærsl -
um, s.s. frumflutningi á Gretti,
óperu Þorkels Sigur björns -
sonar, í Þýskalandi og Kanada,
Flamand í Capriccio eftir
Strauss, Basilio og Don Curzio
í Brúð kaupi Fígarós, Fraccasso
í La finta semplice eftir Mozart
og Charles í The Long Christ -
mas Dinner eftir Hindemith.
Hausti ð 2007 söng hann
hlutverk Dansmeistarans í
óper unni Ariadne á Naxos eftir
Richard Strauss í Íslensku
óperunni. Bragi hlaut árið 2007
viðurkenningu og styrk úr
tónlistarsjóði Rótarý.
Tenórinn og tilfinningarnar
Bragi Bergþórsson á hádegistónleikum