Fjarðarpósturinn - 30.04.2009, Page 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 30. apríl 20096 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 30. apríl 2009
Ávarp verkalýðsfélaganna
í Hafnarfirði á 1. maí 2009
Verkalýðsfélagið Hlíf Sjómannafélag Hafnarfjarðar Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
- Lúðrasveit - Kröfuganga - Ræðuhöld - Skemmtiatriði - Kaffihlaðborð -
Dagskrá
1. maí hátíðarhaldanna í Hafnarfirði 2009
Kl. 13.30 Safnast saman fyrir utan Ráðhús Hafnarfjarðar
Kl. 14.00 Kröfuganga leggur af stað
Gengið verður upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu, Smyrlahraun, Arnarhraun,
Sléttahraun og að Flatahrauni 3.
Kl. 14.30 Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3
Athugið, húsið ekki opnað fyrr en kröfugangan kemur.
Fundarstjóri: Jóhanna M. Fleckenstein
Ávarp dagsins: Karl Rúnar Þórsson
varaformaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar
Ræða: Halldór Grönvold
aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Skemmtiatriði: Hundur í óskilum
Kaffihlaðborð í boði stéttarfélaganna að fundi loknum
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
09
04
–
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
Félögin leggja áherslu á:
Launafólk
Tökum höndum saman, sláum skjaldborg um fjölskyldur okkar og heimili, lífskjör og réttindi
• að ríki og sveitafélög dragi ekki úr framkvæmdum
• að sköpuð verði störf fyrir alla
• að tekið verði á skuldavanda heimilanna
• að komið verði í veg fyrir að heimilunum blæði út
• að látið verði af okurvaxta - starfseminni
• að verðtrygging lána verði afnumin
• að lífeyrisréttindi allra launþega verði jöfnuð
• að tekin verði upp evra
Það eru erfiðir tímar - það er atvinnuþref
Þessar ljóðlínur úr Maístjörnu Halldórs Laxness á vel við um
ástandið á Íslandi í dag, þótt þær hafi verið ortar á fjórða áratug
síðustu aldar. Já það eru vissulega erfiðir tímar og atvinnuhorfur
ekki góðar.
Atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega á örfáum mánuðum og bend -
ir allt til þess að það aukist enn frekar. Samfélag okkar þolir ekki
svo mikið og viðvarandi atvinnuleysi til langs tíma.
Sú græðgisvæðing sem hófst í kjölfar framsals kvótans, einka væð -
ingar bankanna og annarra ríkisfyrirtækja hefur leitt íslenskt þjóð -
félag í þær ógöngur sem það er nú í. Íslenskir bankar í samstarfi
við útrásarvíkinga hófu að spila Mattador með íslenskt fjármagn
og fyrirtæki fengu í skjóli stjórnvalda og sofandi Alþingis að taka
að veði framtíðar áform íslensks launafólks og atvinnulífs um
mann sæmandi afkomu næstu árin. Það sér hvergi nærri fyrir end -
ann á afleið ingum þessarar misheppnuðu einkavæðingar stefnu.
Og eins og alltaf ber launafólk þyngstu byrðarnar. Sú stefna sem
ráðið hefur ríkjum á Íslandi undangengna áratugi hefur beðið
skipbrot.
Verkalýðshreyfingin varaði við því lengi að illa gæti farið. Samt
hvarflaði ekki að nokkrum manni að skipbrotið yrði svo afgerandi
– svo algjört. Við vöruðum við því að ríki og sveitafélög ykju á
þensl una með því að setja af stað dýrar framkvæmdir á þenslu -
tímum. Í slíkar framkvæmdir ætti að ráðast á samdráttartímum.
Svo virðist sem hið opinbera ætli að halda sig við sama gamla
heygarðshornið. Nú þegar samdráttur er meiri en nokkru sinni
áður þá draga ríki og sveitafélög úr öllum sínum framkvæmdum
og halda að sér höndum. Þvílíkur öfugsnúningur og stjórnleysi.
ÞAÐ VANTAR VINNU NÚNA.
Framundan er gríðarlega umfangsmikið endurreisnarstarf íslensks
samfélags. Það verður krefjandi og mun taka mörg ár og kosta
miklar fórnir. Það þarf að byggja upp á nýtt, og núna skal byggja á
bjargi, ekki sandi. Eitt skiptir þó mestu. Það þarf að skapa ný
atvinnu tækifæri í stað þeirra sem hafa glatast. Það þarf að skoða
alla kosti, einskis má láta ófreist að til að koma hjólum atvinnu -
lífsins í gang.
Um leið og unnið er að uppbyggingu atvinnulífsins, verður að
huga að þeim sem misst hafa vinnuna og huga að fjöl skyld unum í
landinu. Það verður að tryggja að sam dráttur í tekjum heimilanna
leiði ekki til aukinnar misskiptingar. Það verður að sjá til þess að
atvinnuleysið bitni ekki á mögu leikum fólks og fjölskyldum þeirra
til heilbrigðrar þátttöku í félags-, íþrótta- og tónlistarstarfi. Þess
vegna er mikilvægt að hafa vakandi auga með ástandinu og líðan
fjölskyld unn ar, svo hægt verði að grípa inn í ef vart verður hættu -
merkja.
Meðan á uppbyggingarstarfinu stendur er mikilvægt að gripið
verði til víðtækra og raunhæfra aðgerða til að bjarga heimilunum
í landinu. Það er ekki í boði lengur að heimilin verði áfram fórnar -
lömb, verðtryggingar, okurvaxta, gengis sveiflna og aðgangshörku
banka og lánastofnana gagnvart skuldsettum heimilum. Á sama
tíma þurfa þessi sömu heimili í mörgum tilvikum að glíma við
samdrátt í tekjum og atvinnumissi.
Undanfarið hafa verið kynnt til sögunnar ýmis úrræði til að draga
úr hættunni á því að fjölskyldur missi eignir sínar, eða gera þeim
mögulegt að búa áfram í íbúðum sínum, jafnvel þótt þær missi
formlega yfirráð yfir þeim vegna greiðslu þrots. Þetta er allt góðra
gjalda vert og spor í rétta átt. En það þarf miklu meira að koma
til. Vandinn er ekki bundinn við lítinn hóp skuldsettra heimila.
Hann er miklu umfangs meiri en svo. Óvenjulegar aðstæður kalla
á óvenjulegar aðgerðir.
Á þessum erfiðu tímum verður íslenska þjóðin að fjalla um –
fordómalaust og af yfirvegun – hvort mögulegt er að taka upp
sterk ari gjaldmiðil en íslensku krónuna. Aðild að Evrópu -
samband inu er líka mikilvægt mál sem þjóðin verður að ræða og
taka afstöðu til án fyrirframgefinnar niðurstöðu. Fara þarf í
samningaviðræður, fá uppá yfirborðið kostina og gallana. Að
þeim loknum höfum við forsendur til þess að taka ákvörðun um
inn göngu í ESB.
Þá ákvörðun tökum við, fólkið í landinu, í þjóðar atkvæða greiðslu.
Það er lýðræði.
Hafnfirskt launafólk!
Stjórnvöld hefðu betur hlustað á varnaðarorð og sjónarmið
samtaka launafólks á undangengnum árum. Það er nauðsynlegt að
halda því til haga þótt að það leysi ekki þann mikla vanda sem við
blasir. Samtök launafólks krefjast þess að öðruvísi verði farið að í
komandi framtíð. Uppbyggingar starfið verður ekki unnið nema
með víðtækri sátt og í samráði við okkur, FÓLKIÐ Í LANDINU.
Þrátt fyrir erfiða stöðu, verðum við að horfa fram á veginn, vera
jákvæð, uppbyggjandi í orði og gjörðum og umfram allt ekki tapa
gleðinni í hjörtum okkar. Þrátt fyrir allt eru mikil sóknarfæri sem
við eigum að nýta okkur. Gildismatið hefur breyst. Þess vegna er
styrkur verkalýðshreyfingarinnar aldrei mikilvægari en nú.
Síðasta erindi Maístjörnunnar á því vel við í dag – jafnvel enn
betur en oft áður.
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns
og á morgun skín maísól
það er maísólin hans
það er maísólin okkar,
okkar einingarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.