Fjarðarpósturinn - 30.04.2009, Blaðsíða 8
Oftsinnis hafa bæjarbúar
kvart að yfir ófullkomnum
fund ar gerðum ráða og nefnda
bæj arins. Í þær vantar oft
upplýsingar um hvað sé verið
að samþykkja og gjarnan er
vísað í gögn sem ekki eru
aðgengileg. Nýjasta fundargerð
framkvæmdaráðs er gott dæmi.
Þar samþykkir framkvæmdaráð
í 1. lið tillöguna en hvergi er
minnst á tillögu, aðeins að lagt
hafi verið fram minnisblað
garðyrkjustjóra og af fyrirsögn
má ætla að minnisblaðið hafi
verið um Víðistaði, trjálund.
Í 2. lið tekur ráðið undir
bókun skipulags- og bygg -
ingar ráðs frá 24. mars sl. en í
fundargerð frá þeim degi er
bókunin skilmerkilega fram -
sett. Í nútíma tölvuvæðingu
mætti ætla að hægt væri að
tengja í viðkomandi gögn og
minnisblöð svo bæjarbúar gætu
betur fylgst með því sem fram
fer.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 30. apríl 2009
auglysingar@fjardarposturinn.is
Auglýsingasími:
565 3066
Haldlitlar fundargerðir
Lítið gagn af fundargerðum ef samþykktir vantar
Heilsuhús fyrir hunda og
ketti, er nýjung á Íslandi. Nínó,
heilsu hús var opnað sl. laugar -
dag að Reykjavíkurvegi 68.
Eigendur eru þau María Þor -
varðardóttir og Héðinn Gilsson
og segir María að þau leitist við
að bjóða upp á vörur sem eru
hollar og góðar fyrir gæludýrin
og geta þannig fyrirbyggt ýmsa
sjúkdóma gæludýra og komið í
veg fyrir aukinn kostnað eig -
end anna.
„Við bjóðum upp á fóður frá
Happy Dog og Happy Cat, en
framleiðandi þess fóðurs er
einn elsti fóðurframleiðandi í
heimi og hefur verið starfandi í
yfir 250 ár,“ segir María.
„Einn ig bjóðum við upp á fóð -
ur frá Belcando en báðar þessar
fóðurtegundir eru þýskar og
framleiddar undir strangasta
gæðaeftirliti sem völ er á. Við
munum leggja okkur fram við
að bjóða þetta hágæðafóður á
mjög góðu verði.“
Ýmsar aðrar vörur eru á
boðstólunum í Nínó s.s. ólar frá
Red Dingo og Hurtta, hlífðar -
fatnaður fyrir hunda og fólk frá
Hurtta og sjampó frá Green -
fields. Á staðnum er einnig
snakk bar þar sem selt er eftir
vigt og smakkbar þar sem
gælu dýrin fá að smakka það
sem í boði er.
Opið er mánudaga til föstu -
daga kl. 11 til 18.30 og kl. 10 til
13 á laugardögum.
Heilsuhús fyrir hunda og ketti
Ný verslun opnuð í Hafnarfirði
Eigendurnir María Þorvarðardóttir og Héðinn Gilsson t.h.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
María við nammibarinn
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Bikarmeistaramót Íslands í
sundi var haldið í sundlauginni
Vatnaveröld í Reykjanesbæ um
helgina. Mótið er liðakeppni
sundfélaga þar sem reiknuð eru
saman stig fyrir hvert sund
sam kvæmt stigatöflu Alþjóða -
sundsambandsins. Sundfélög
þurfa að beita ákveðni tækni
við að raða í sundgreinar því að
mestu skiptir að fá sem flest
stig enn ekki endilega að vinna
sem flestar greinar.
Karlalið Sundfélags Hafnar -
fjarðar sigraði í spennandi
keppni og hlaut 15.037 stig en
Ægir varð í öðru sæti með
14.630 stig. Kvenna lið SH
varð hins vegar í 6. sæti í
kvenna flokki með 12.464 stig.
Undirbúningur SH liðsins
skilaði sér vel og voru SH
sundmennirnir í fyrsta sæti í
öllum skriðsundsgreinunum.
Sigurður Friðrik Kristjánsson
bætti sig mest en hann synti
200 m flugsund á 2.21,87 mín
bætti sig um 3,29%. Einnig
bætti Bragi Þorsteinsson sig
vel í 100 m bringusundi, Njáll
Þrastarson í 200 og 400 m
skrið sundi, Björgvin Guð -
mund ur Björgvinsson í 400 m
fjórsundi og Orri Freyr Guð -
munds son í 100 og 200 m
skrið sundi. Aðrir sem höluðu
mörg stig inn fyrir félagið voru
Mladen Tepavcevic, Sindri
Snævar Friðriksson, Konráð
Hrafn kelsson, Magnús Kár
Ótt arsson, Kolbeinn Hrafn -
kelsson, Árni Guðnason, Egill
Valur Hafsteinsson og yngsti
liðsmaðurinn, Aron Örn Ste f -
áns son.
Eftir mótið voru þrír sund -
menn úr SH valdir til að keppa
á Smáþjóðaleikan, þau Bragi
Þorsteinsson (21), Ingibjörg
Kristín Jónsdóttir (16) og
Hrafnhildur Lúthersdóttir (17)
en hún hefur einnig unnið sér
rétt til að keppa á heims meist -
aramótinu í sundi.
SH bikarmeistarar karla í sundi
Þrír sundmenn úr SH valdir til að synda á Smáþjóðaleikunum
Bikarmeistarar Sundfélags Hafnarfjarðar kampakátir.
Bruggari
handtekinn
Sl. föstudag gerðu rann -
sókn ar lögreglumenn í Hafn -
ar firði, húsleit í íbúð í austur -
hluta bæjarins. Var grunur um
að þar væri framleiddur og
seldur landi. Þegar lögreglan
kom á staðinn var landafram -
leiðsla í fullum gangi í íbúð -
inni. Var lagt hald á töluvert
magn af tilbúnum landa auk
tækja til framleiðslunnar.
Karl maður á fertugsaldri,
sem býr í íbúðinni, var hand -
tekinn og yfirheyrður.