Fjarðarpósturinn - 30.04.2009, Qupperneq 9
Fyrir skömmu bauð Gáma -
þjónustan bæjarfulltrúum að
skoða starfsemi félagsin við
Berghellu þar sem fyrirtækið
rekur móttökustöð, „Gáma -
velli“, flokkunarstöð og jarð -
gerð. Þar tóku á móti þeim
stjórnarmennirnir Sveinn
Hannes son, Elías Ólafsson og
Jón Ísaks son auk Ingþórs
Guðmunds sonar, stöðvarstjóra.
Í máli Elíasar Ólafssonar,
stjórnarformanns kom fram að
starfsemi fyrirtækisins hafi
aukist mikið hér í Hafnarfirði
og hafi fyrirtækið verið mjög
ánægt með þá fyrirgreiðslu sem
það hafi fengið hér. Síðasta
skrefið verði að flytja skrifstofu
félagsins líka en hún er nú við
Súðarvog í Reykjavík. Fyrir -
tækið reki nú dótturfyrirtæki í
öllum landshlutum auk þess
sem fyrirtækið á Hafnarbakka-
Flutningatækni ehf. sem m.a.
selur og leigir vinnuskúra og
gámahús auk þess að reka
geymslusvæði fyrir gáma. Öll
starfsemi Hafnarbakka er við
Hringhellu.
Var bæjarfulltrúum sýnd
fullkomin jarðvegsgerð sem
þarna er rekin í lokuðum gám -
um og gefst bæjarbúum nú
kost ur á að fá moltu í beð og
garða. Þá voru bæjar fulltrú un -
um sýndir Gámavellir, mót -
töku stöð fyrir fyrirtæki og al -
menn ing sem tekur á móti öllu
al mennu rusli. Þar er hægt að
skila án endurgjalds ýmsu
flokk uðu rusli eins og annars
stað ar auk þess er tekið á móti
öðru ruslu gegn gjaldi eftir vigt.
Þetta er eini staðurinn í bænum
sem tekur við öllum garða -
úrgangi, greinum og fl.
Að lokum var bæjar fulltrú -
unum kynnt flokk unar aðstaða
fyrirtækisins þar sem allt rusl er
tekið inn og það flokkað en
veruleg verð mæta sköpun er í
því að flokka allt rusl og
minnka þannig urðun.
Gámaþjónustan sér um alla
sorphirðu hjá íbúum Hafnar -
fjarðar skv. útboði. Fræðist
nánar um endurvinnslu og skil
á www.gamar.is
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 30. apríl 2009
HREINSUNARDAGAR
30. APRÍL – 6. MAÍ
Hafnarfjarðarbær hvetur Hafnfirðinga til að
hreinsa lóðir sínar og garða í árlegri
hreinsunar viku bæjarins.
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Hafnar -
fjarðar fara um bæinn á meðan á hreinsun -
ar dögum stendur og fjarlægja garðaúrgang
sem settur er út fyrir lóðamörk.
Að hreinsunarvikunni lokinni þurfa bæjarbúar
sjálfir að sjá um að koma garðaúrgangi til
endur vinnslustöðva SORPU og Gáma þjónust -
unnar. Íbúar eru hvattir til að taka höndum
saman og hreinsa lóðir sínar og nánasta
umhverfi.
Nánari upplýsingar um hreinsunarvikuna er að
finna á www.hafnarfjordur.is
Til eigenda og ábyrgðarmanna lausamuna
á hafnarsvæðum Hafnarfjarðarhafnar
Hafnarfjörð til fyrirmyndar
Til athugunar með hækkandi sól:
Vinsamlegast fjarlægið lausamuni af hafnar -
svæðum Hafnarfjarðarhafnar sem eru á víð og
dreif um hafnarsvæðin sem fyrst og ekki síðar
en 25. maí nk.
Sé þessum tilmælum ekki sinnt, verða viðkom -
andi munir fjarlægðir og fargað á ábyrgð og
kostnað eigenda og/eða umráðamanna.
Látum hendur standa fram úr ermum og höfum
Hafnarfjörð til fyrirmyndar.
Hafnarstjóri
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. –
0
90
4
Á sunnudaginn verður stend -
ur Hafnarfjarðarkirkja fyrir
göngu upp á Helgafell, en þar
fara fram stuttar helgistundir.
Lagt verður af stað í bílum frá
Hafnar fjarðarkirkju eftir stutta
bæna stund þar kl. 11 og ekið að
Kaldárbotnum og gengið þaðan
á Helgafell. Göngustjórar verða
þeir Claus Hermann Magnús -
son, skátaforingi og Sigurjón
Péturs son, formaður sóknar -
nefndar. Lesið verður úr Fjall -
ræðu Jesú í helgistundum við
rætur Helgafells, í miðjum hlíð -
um og uppi á tindi þess, bænir
lesnar og sálmar sungnir. Nesti
verður snætt á Helgafelli í boði
kirkjunnar áður en haldið verð -
ur niður af fjallinu. Prestar
Hafnarfjarðarkirkju sr. Gunn -
þór Þ. Ingason og sr. Kjartan
Jónsson munu leiða helgi stund -
irnar. Ferðatími er áætlað ur
einir þrír tímar. Allir eru vel -
komnir í för. Gott væri að þeir
sem hygðust koma í helgi göng -
una létu Ottó Jónsson stað ar -
haldara vita í síma 898 9540
með einhverjum fyrir vara.
Helgiganga á Helgafell
Horft að Helgafelli.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Bæjarfulltrúar skoða ruslið
Gámaþjónustan útvíkkar stöðugt starfsemi sína í bænum
Ingþór stöðvarstjóri t.v. sýnir bæjarfulltrúum flokkunarstöðina.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Við jarðgerðargámana. Ókurlaðar trjágreinar í forgrunninn.
Þetta reyndist þyngd bæjar -
fulltrúanna í öllum herklæðum
er þeir stigu á vigtina.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Á sunnudaginn verða fram -
halds prófstónleikar í Tón -
listarskóla Hafnarfjarðar og
hefjast þeir kl. 17. Á tónleikun -
um leikur Bjarni Helga son sem
er að ljúka fram haldsprófi í
gítarleik en kennari hans hefur
verið Þórarinn Sigurbergsson.
Á tónleikunum leikur Bjarni
verk eftir M. Praetorius - M.
Pasieczny - H. Villa-Lobos E.
Granados og A. Vivaldi. Allir
eru hjartanlega velkomnir og er
aðgangur ókeypis.
Með gítarinn á tónleikum
Bjarni Helgason leikur á framhaldsprófstónleikum