Fjarðarpósturinn - 12.11.2009, Page 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 12. nóvember 2009
Undirritaður hefur fengist við
rekstur eigin fyrirtækis í Hafnar -
firði um árabil. Fyrirtækið hefur
smá vaxið ár frá ári. Heildar -
markmiðin hafa verið skýr, eiga
fyrir innkaupum,
borga alla reikninga á
rétt um tíma og vera
heiðarlegur, hvort sem
er við viðskiptavini
eða birgja.
Þetta hefur gengið
ágætlega og okkur lið -
ið vel með að hafa get -
að staðið við alla
samn inga. Nú er svo
kom ið fyrir öllum fyr -
ir tækjum í landinu eftir efna hags -
hrunið, að erfiðara er að stunda
viðskiptin eins og áður, þar kemur
til hægara sjóðsstreymi, þannig að
fyrirtækin eiga mun hærra hluta
útistandandi reikn inga.
Undanfarið höfum við orðið
þess áskynja að margir notfæra
sér ástandið til að hægja á greiðsl -
um og jafnvel sleppa við að borga.
Dæmi eru um að aðilar með rekst -
ur eiga nokkur skúffufélög og láta
þau nú hvert af öðru á hausinn og
sleppa þannig við að borga reikn -
ingana, en halda áfram rekstrinum
undir sama merki en í öðru félagi.
Sveinn Hannesson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Samtaka iðn -
að ar ins, var fremstur margra að
vara við slíkum aðilum, löngu fyr -
ir bankakreppuna. Á hann var lítið
hlustað og sagt að aðil ar í rekstri
gætu hæg lega og löglega skýlt sér
á bak við önnur félög. Laga -
umhverfið býður upp á svindlið.
Dæmi er um að menn í prent -
smiðju rekstri séu nú á fimmtu
kenni tölunni og enginn gerir neitt.
En hvað er hægt að gera, þegar
bankar hjálpa slíkum aðilum á
lappirnar hvað eftir annað, ein -
göngu til að gæta sinna eigin
hags muna? Gengur þetta öllu
lengur? Getur ríkið núna verið
fremst í flokki við að halda mönn -
um við rekstur, sem gera út á svik
og pretti, meðan aðrir í sam -
keppninni eru stálheiðarlegir og
fara að lögum, reglum og al -
mennu siðferði?
Opinberir aðilar bera þarna
mikla ábyrgð, t.d.
skatt yfirvöld og sýslu -
menn, sem pissa upp í
vindinn, þegar kemur
að umræðu um þessi
mál og segja bara að
hlutafélagalög séu
gölluð. Lífeyrissjóðir
hafa framlengt skuld -
irnar hjá þessum ónýtu
fyrirtækjum til að
„tryggja störf fólksins“
en auka bara enn við þær. Að lok -
um fer svo að rekstrarfélagið
verð ur gjaldþrota, en vélum og
tækj um haldið í „hreinu“ félagi til
að geta haldið svindlinu áfram.
Eftir sitja birgjar og þjónustuaðilar
með sárt ennið og vanefnda samn -
inga um viðskipti. Við hinir sem
rekum fyrirtækin vel, líðum fyrir
skemmdarverk skussanna.
Þetta er aðeins lítið dæmi um
gjör spillt viðskiptaumhverfi á
Íslandi. Stjórnmálamenn verða að
breyta lögum um almenn við -
skipti og koma í veg fyrir að hver
sem er geti gert hvað sem hann
vill. Rótin að efnhagsvanda
íslensku þjóðarinnar er spilling í
viðskiptum, hvert sem litið er.
Til hvers að vera heiðarlegur, ef
maður þarf þess ekki?
Ástæðan fyrir skrifum þessum
er, að Samfylkingin í Hafnarfirði
var að gefa út blað í síðust viku,
sem prentað er af kenni tölu -
flökkurum sem nú eru á a.m.k.
fimmtu kennitölunni. Þetta er
ekkert annað en hluti af spill -
ingunni sem viðgengist hefur hér
á landi um árabil og er Sam fylk -
ingin í Hafnarfirði þar greinilega
eng inn eftirbátur.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Stafrænu prentsmiðjunnar í
Hafnarfirði.
Opið bréf til Samfylkingarinnar í Hafnarfirði:
Til hvers að vera
heiðarlegur?
Guðlaugur
Sigurðsson
Þann 1. janúar 2007 tóku
gildi lög um fjármál stjórn -
málasamtaka og frambjóðenda
og upplýsingaskyldu þeirra.
Með þeim voru settar reglur um
fjárframlög til stjór nmála sam -
taka og sveitarfélögum með
fleiri en 500 íbúa skylt að veita
stjórnmálasamtökum, sem
feng ið hafa a.m.k. einn mann
kjör inn í sveitarstjórn eða hlot -
ið a.m.k. 5% atkvæða í næst -
liðn um sveitar stjórnar kosning -
um, fjárframlög til starfsemi
sinn ar. Ákvörðun um slík fram -
lög tekur sveitarstjórn samhliða
sam þykkt fjárhagsáætlunar.
Fjár hæðinni skal úthlutað í
hlutfalli við atkvæðamagn.
Við afgreiðslu á fjár hags -
áætlun fyrir árið 2007 var ekki
gert ráð fyrir framlagi af hálfu
Hafnarfjarðarbæjar enda tóku
lögin ekki gildi fyrr en 1. janúar
2007. Hugtakið framlög í skiln -
ingi laganna er skilgreint með
víðtækum hætti, sbr. 2. gr., og
tekur til hvers kyns gæða sem
metin verða til fjár allt frá bein -
um fjárframlögum til af slátta,
auglýsinga í blöðum o.sfrv.
Ekki er kveðið á um í lög -
ununum hversu háir styrk irnir
skuli vera enda sé ákvörðunin
tekin við afgreiðslu á fjár hags -
áætlun.
Hafnarfjarðarbær hefur dreg -
ið þá ályktun í ljósi þess að á
sama tíma var álögum um
kostnað sveitarfélagsins við
for seta- og alþingiskosningar
aflétt, að eðlilegt sé að miða við
svipaða upphæð. Mótframlag
ríkisins til Hafnarfjarðarbæjar
vegna kosninganna sl. vor var
tæplega 8,5 millj. kr. og því
hefur verið miðað við tvöfalda
þá upphæð (forseta- og alþing -
is kosningar) deilt á 4 ár.
Samfylkingin fær 2½ milljón á ári
Flokkarnir fá styrki eftir atkvæðamagni síðustu kosninga
Það kostar að stjórna bænum. Frá afmælisfundi bæjarstjórnar.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Listi % atkvæða Upphæð 2.007 2.008 2.009 2.010
S-listi 56,4% 9.894.737 2.473.684 2.473.684 2.473.684 2.473.684
D-listi 28,1% 4.929.825 1.232.456 1.232.456 1.232.456 1.232.456
V-listi 12,4% 2.175.439 543.860 543.860 543.860 543.860
B-listi 3,1%
100,0% 17.000.000 4.250.000 4.250.000 4.250.000 4.250.000
Um 210 ánægðir veislugestir
skemmtu sér vel á árlegri
Villibráðarhátíð Kiwanis klúbbs -
ins Hraunborgar sem er aðal
fjáröflun klúbbsins. Hátíðin
hófst með setningu forseta sem
bauð Óskar Guð jónsson um -
dæmisstjóra, ki wan isfélaga og
gesti velkomna og sendi
Jóhannesi Kristjáns syni
skemmti krafti bestu óskir um
góðan bata en hefur verið
fastagestur á þessum hátíðim.
Fyrir mat söng Flens borgar -
kórinn nokkur lög undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg en
síðan gæddu veislugestir sér á
einu flottasta villibráðar -
hlaðborði landsins sem mat -
reiðslumeistarinn Francois L.
Fons og hans lið göldruðu fram.
Heiðursgestur var Guðni
Ágústs son f.v. ráðherra og
alþingismaður sem hélt ræðu og
fór á kostum. Magnús Axelsson
sá um málverka uppboð og
dregið var í happ drætti
Forseti klúbbsins, Gylfi
Ingvarsson afhenti Elísabetu
Val geirsdóttur for manni Mæðra -
styrksnefndar Hafn ar fjarð ar
styrk að upphæð 250.000 kr.
Að lokum þakkaði forseti
gestum fyrir að leggja góðum
málum lið með framlögum
sínum á skemmtuninni og sleit
vel heppn aðri 23. Villi bráðar -
hátíð Hraunborgar.
Elísabet Valgeirsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar tekur við
styrknum frá klúbbnum úr hendi Gylfa Ingvarssonar forseta.
Kiwanis gaf kvartmilljón
Vel heppnuð villibráðarhátíð Hraunborgar
Hún er í fönk popp fíling
segir María Magnúsdóttir, 25
ára Garðbæingur um plötu sína
Not Your Housewife sem hefur
fengið góða dóma. Hún ólst
upp á Eystri Dysjum og horfði
því yfir Hafnarfjörð en hún
starfar nú m.a. við Tónlistar -
skóla Hafnarfjarðar þar sem
hún kennir tónfræði. María
stjórnar Gospelkór Jóns Vídalín
og er með sönghóp í félags -
miðstöðinni Garðalundi auk
þess að kena í Tónsölum í
Kópavogi, einum af fáum
rytmískum skólum á landinu.
Hún spilar í nóvember á
tvennum styrktartónleikum
með hljómsveit sinni, Mama’s
Bag og á fleiri tónleikum en
stefnir á útgáfutónleika í janúar
þegar um hægist. María gefur
plötuna út sjálf.
Hægt er að hlýða á nokkur
lög á Myspace síðu hennar
/mariamagnusdottir
Not Your Housewife
María Magnúsdóttir gefur út sína fyrstu plötu
Gjaldþrotahrina sömu aðila sem halda áfram
Það varð nokkur fjölmiðla -
umræða þegar Íslandsprent
varð gjaldþrota á síðasta ári en
það hafði verið stofnað upp úr
Prisma-Prentco sem hafði farið
á hausinn en það var aftur byggt
á rústum Prisma-Prentbæjar
sem líka hafði orðið gjaldþrota.
Upp úr Íslands prenti var svo
fyrirtækið Prent heimar stofnað,
sem reyndar hóf starfsemi sína
á að nota í heimildarleysi nafn,
síma núm er og netfang Íslands -
prents.
Prentheimar er með kenni -
töluna 680408-0170 sem gefur
til kynna að fyritækið hafi verið
stofnað í apríl 2008. Það fyrir -
tæki var svo tekið til gjaldþrota
í júní. Sömu aðilar stofna svo
nýtt fyrirtæki PH-prent á sama
heimilisfangi og nota enn nafn -
ið Prentheimar. Það er stofnað í
mars í ár og hefur kennitöluna
650309-0650. Sömu aðilar
koma meira og minna að öllum
fyrirtækjunum.