Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. júní 2010
Ný bæjarstjórn er tekin við. Staðfest hefur
veirð í bæjarstjórn að Lúðvík haldi áfram og að
Guðrún Ágústa taki við 2012 og verði fyrsti
kvenbæjarstjórinn í Hafnarfirði. Var það
kannski plottið í þessu? Einhverjir tugir
bæjarbúa mættu og gáfu bæjarfulltrúum gula
og rauða spjaldið en varla er hægt að segja að
mótmælin hafi verið kröftug. Fjölmiðlafólk
var ekki síður áberandi enda mótmæli spenn
andi frétt. Hins vegar verða Lúðvík og Guðrún Ágústa að eiga það
við sig hvort þau hafi það traust sem þarf. Bæjarbúar sögðu sitt.
Framundan eru ærin verkefni bæjarstjórnar og mikilvægt að enn
betri sátt myndist en upplifa mátti á köflum á fyrsta fundinum.
Ýmislegt áhugavert var lagt til, m.a. um Hafnarfjarðarstofu þar
sem betur verður samþætt starf sem tengist ferðaþjónustu og
markaðssetningu bæjarins en báðir þessir málaflokkar hafa verið á
brauðfótum undanfarin ár. Þó Samfylkingin hafi fullyrt að staða
bæjarins sé í raun góð var samþykkt tillaga allra flokka að kaupa
úttekt frá óháðu ráðgjafafyrirtæki á stöðu bæjarsjóðs. Ný lýðræðis
og stjórnsýslunefnd á að fara yfir stjórnkerfið á grundvelli úttektar
sem fyrri bæjarstjórn lét vinna og vinna með bæjarbúum m.a.
annars á Gaflaraþingi í haust. Aðrar tillögur voru m.a. um
framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum, um atvinnuátak í
skógrækt, um miðbæjarmarkað og um svæði fyrir hundaeigendur.
Allir flokkarnir stóðu samhuga að tillögunum nema um lýðræðis
og stjórnsýslunefndina, þar steytti á skerjum og ekki einu sinni
vildi nýi meirihlutinn samþykkja að vísa málinu til bæjarráðs.
Það kæmi mér ekki á óvart að það verði ósköp venjulegt
meirihlutavald sem stjórnar hér eftir stuttan tíma, mikið má
breytast og tónninn var ekki lagður á þessum bæjarstjórnarfundi.
Verði samstarfsviljinn raunverulegur hjá báðum aðililum fagna ég
því en þó held ég að Samfylkingin muni eiga nóg í fangi með
samstarfið við VG enda er greinilegt að einn fulltrúi VG vó mikið
í gerð málefnasamningsins og ekki víst að Samfylkingarmenn
verði jafn eftirgefanlegir þegar líður á.
Guðni Gíslason
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Loftnets og símaþjónusta
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
www.vidistadakirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 20. júní kl. 20
Helgistund á sumarkvöldi
Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn
Arngerðar Maríu Árnadóttur
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Stífluþjónusta Geirs
Stíflulosun, myndun lagna,
endurnýjun frárennslis- og
drenalagna, gröfuþjónusta,
efnisflutningar, múrbrot,
malbikssögun, kjarnaborun.
Geir s. 697 3933
TÖLVUHJÁLPIN
Viðgerðir, vírushreinsanir,
uppfærslur og uppsetningar
á PC tölvum. Kem í heimahús.
Sanngjarnt verð
Sími 849 6827
www.fjardarposturinn.is
Ökukennsla
Kenni á bíl og mótorhjól
Ökuskóli
Hafnarfjarðar
sími 864 8600
Merkjum öll bílastæði
Gerum tilboð
etmerking@simnet.is
s. 862 3002
Kvennahlaupið
Í ár er yfirskrift kvennahlaupsins
„Kon ur eru konum bestar“ og er
unn ið í samstarfi við Kven félaga-
samband Íslands sem fagnar 80 ára
afmæli sínu á árinu. Hlaupið er á um
85 stöðum á landinu og stærsta
hlaupið er í Garðabæ og hefst kl. 14
á laugardaginn.
Dagsferð
Hraunpýðiskvenna
Hraunprýðikonur. Farið verður í dags-
ferð 26. júní. Nánar auglýst síðar.
17. júní dagskrá
Kl. 8 Skátar draga fána að hún og
fánahylling.
Kl. 13.30 Ávarp fjallkonu, helgistund
og fl. í Hellisgerði. Skrúðganga frá
Hellisgerði. Gengið niður Reykja-
víkur veg, eftir Fjarðargötu, inn
Strand götu, út Vesturgötu og inn
Hraun brúnina að Víðistaðatúni.
Kl. 11-17 Fjölskyldudagskrá á Víði-
staðatúni. Frjálsíþróttamót, knatt-
spyrna, strandhandbolti, leikir og
þrautir. Leikfangabílar, litlu húsdýrin
á tennisvellinum, bílar og mótorhjól.
Kaffisala Skátafélagsins Hraunbúa í
skátaheimilinu Hraunbyrgi.
Kl. 16 Hjólabrettahátíð við Víðistaða-
skóla.
Kl. 15 Fjölskylduskemmtun á sviði.
Ávörp, söngur, skemmtiatriði.
Kl. 20 Kvölddagskrá á Thorsplani.
Lúðrasveit, ávarp nýstúdents, kór-
söngur, Haffi haff, Ari Eldjárn, Hera,
Jogvan og Í svörtum fötum. Töfra-
maður í bænum.
Dagskrárlok um kl. 23.
Kl. 20 Dansleikur í Hraunseli, Hljóm-
sveitin Bræðrabandið.
Dagskrá Víkingahátíðar
Miðvikudagur 16. júní.
19.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum.
23.30 Dansleikur í Fjörukránni.
Víkinga sveitin, Hermann Ingi, Helgi
og Smári, Víkingarokksveitin Gutl
hitar upp.
Fimmtudagur 17. júní.
13.00 Markaður opnaður.
14.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
14.30 Víkingaskóli barnanna.
15.00 Bardagasýning.
15.00 Rósin okkar, þjóðlagasveit
verður á svæðinu til kl. 17.30
16.30 Bogfimikeppni víkinga.
17.00 Bardagasýning.
18.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
18.30 Sagnakonur í Hellinum.
19.00 Bardagasýning.
20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum.
20.00 Lokun markaðar.
22.30 Tónlist í Fjörugarðinum.
Trúbador, Ólafur Árni Bjarnason.
02.00 Lokun.
Föstudagur 18. júní.
13.00 Markaður opnaður.
Frítt inn fyrir leikskólahópa.
14.30 Víkingaskóli barnanna.
15.00 Bardagasýning.
16.30 Bogfimikeppni víkinga.
17.00 Bardagasýning.
19.00 Bardagasýning.
20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum.
20.00 Lokun markaðar.
23.00 Dansleikur í Fjörukránni.
Þjóðhátíðarhljómsveitin Dans á rós-
um frá Vestmannaeyjum.
05.00 Lokun.
Laugardagur 19. júní.
13.00 Markaður opnaður.
13.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver.
14.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
14.20 Kraftakeppni Magnúsar Ver.
14.40 Víkingaskóli barnanna.
15.00 Bardagasýning.
16.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver.
16.30 Bogfimikeppni víkinga.
17.00 Bardagasýning.
18.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
18.30 Sagnakonur í Hellinum.
19.00 Bardagasýning.
20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum.
20.00 Lokun markaðar.
23.00 Dansleikur í Fjörukránni.
Þjóð hátíðarhljómsveitin Dans á
rósum frá Vestmannaeyjum.
05.00 Lokun.
Sunnudagur 20. júní.
13.00 Markaður opnaður.
14.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
14.30 Víkingaskóli barnanna.
15.00 Bardagasýning.
16.30 Bogfimikeppni víkinga.
17.00 Bardagasýning.
18.00 Hringhorni sýnir forna leiki.
18.30 Sagnakonur í Hellinum.
19.00 Bardagasýning.
20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum.
20.00 Lokun hátíðar.
23.00 Tónlist í Fjörugarðinum.
Trúbador, Ólafur Árni Bjarnason.
02.00 Lokun.
Útfararþjónusta
Hafnarfjarðar
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Sími 565 9775 - ALLAN SóLARhRiNgiNN - uth.iS
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n