Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. júní 2010
Síðastliðinn þriðjudag afhenti
stjórn Lionsklúbbsins Ásbjarnar
í Hafnarfirði, Björgunarsveit
Hafn ar fjarðar, þrjá nætur
sjónauka til eignar. Að sögn
Hörpu Kolbeinsdóttur, vara for
manns Björg unarsveitarinnar,
sem tók við kíkjunum fyrir
hönd sveitarinnar, munu sjón
aukarnir koma að góðum notum
við leitarstörf við erfiðar
að stæður. Nætursjónaukarnir
eru mjög vandaðir og notaðir af
björg unarsveitum um allan
heim.
Formaður Ásbjarnar, Frið rik
Ólafur Guðjónsson, sagði að
klúbburinn væri ákaf lega
stoltur af því að geta stutt við
starf Björgunarsveitar Hafnar
fjarðar sem unnið hefur frábært
starf við björgunarsstörf í
Hafnarfirði og víðar
Lionsklúbbur gefur nætursjónauka
Koma Björgunarsveit Hafnarfjarðar að góðum notum
Frá afhendingunni f.v.: Harpa Kolbeinsdóttir, varaformaður BH,
Pétur Júlíus Halldórsson, Margrét Hrefna Pétursdóttir, Friðrik
Ólafur Guðjónsson, formaður Ásbjarnar, Grettir Yngvason og
Halldór Kristjánsson.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ég eins og svo margir aðrir bjó
í Danmörku um nokkurt skeið
og þá fátækur námsmaður, not
aði hjólið mikið til að koma mér
á milli staða. Fyrir tæpum fimm
árum flutti ég heim og hóf búsetu
í Hafn ar firði og í fyrstu
kunni ég ekki við að
búa svona langt í burtu
frá Reykja vík en í dag
er ég hug fanginn af
Hafnarfirði, menning
unni sem hér ríkir og
orðin dugleg við að
sannfæra fólk um að
koma og heim sækja
bæinn, kíkja á söfn og
verslanir.
Nú þegar það tók að hlýna hef
ég haft þann brag á að keyra
heim úr vinnunni sem er í
Reykja vík, leggja bílnum og
draga fram hjólið til að hjóla frá
Norður bænum og út á Velli til
að sækja barnið mitt frá dag
mömmu. Það er yndislegt að
hjóla en bara ekki í Hafnarfirði!.
Ég er auðvitað með barnastól á
hjólinu og því dýrmætan farm og
hjóla ekki á götunni heldur á
gangstéttum en þær eru hreinlega
ekki boðlegar hvorki fyrir hjól né
línuskauta. Gangstéttabrúnir þar
sem er gert ráð fyrir að fara yfir
götu eru í flestum tilfellum það
háar að ég þarf að stoppa hjólið
og leiða það upp á svo ég
skemmi ekki gjarðirnar á hjólinu
og að barnið meiði sig ekki. Síð
an þegar maður ætlar að njóta
þess að hjóla flotta göngustíginn
með fram sjónum að þá er ekki í
boði að koma niður Reykja
víkur veginn og þar inn á stíginn.
Ég er ekki á fjallahjóli og á ekki
að þurfa að fara einhverjar fjalla
baks leiðir til að komast
á göngustíginn. Það er
ekki fyrr en þegar þeg
ar stígurinn nær inn á
Herj ólfsgötu að hann er
að gengi legur. Ef ég vel
mér að fara ekki
„fjallabaks leið“ út á
stíginn og hjóla áfram
hjá Vík ingaþorpinu þá
tekur lítið betra við,
meira að segja er þar að
hluta malarstígur og holóttur
göngustígur alla leið að Suður
bæjarlauginni, sem vekur ekki
mikla vinsældir hjá litla
púkanum aftan á hjólinu hjá mér.
Það sem hefur vakið mesta
undrun mína er að þessir háu
gangstéttakantar eru hærri úti á
Völlum ef eitthvað er. Þó hef ég
séð á nokkrum stöðum þar sem
vand lega er gengið frá gang
stéttabrúnum við gangbrautir og
þar sem á við, svo þeir kunna
þetta í Hafnarfirði.
Ég vona svo innilega að hið
ný kosna bæjarráð sjái sér hag í
því að gera Hafnarfjörð að betri
hjólabæ og fari að skoða þessi
mál.
Höfundur er margmiðlunar
hönnuður.
Ég elska að hjóla
– bara ekki í Hafnarfirði!
Hrönn
Jónssdóttir
Nýleg íslensk rannsókn sýnir
að börn og foreldrar eyði
tímanum meira saman en áður.
Rannsóknir sýna að ávinn
ingurinn af því að börn,
ungl ingar og foreldrar
eyði meiri tíma saman
sé um tals verður.
Börnin fá í kjölfarið
mikinn stuðn ing en
jafn framt aðhald frá
foreldrum, eru að öllu
jöfnu ólíklegri til að
neyta áfengis og ann
arra vímuefna. Þau eru
einnig líklegri til að
standast neikvæðan hóp þrýsting,
sem oft hvetur þau til að lífa
óheilbrigðu lífi.
Á sumrin breytast áherslur
foreldra í uppeldishlutverki sínu
og tækifæri gefast til aukinnar
samveru. Áhrif skóla, foreldra
félaga, félagsmiðstöðva og vetr
aríþróttastarfsins eru minni. Síð
ustu ár hafa rannsóknir sýnt að á
sumrin eykst áhættuhegðun ungs
fólks s.s. neysla á tóbaki, áfengi
og vímuefnum.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar hef
ur lagt metnað sinn í að huga að
velferð barna og unglinga í
sumar starfi sínu. Nú í sumar eru
nokkur verkefni í gangi í sumar
starfinu sem hafa það markmið
að hlúa að börnunum og stuðla
að forvörnum með
fræðslu, hreyfingu og í
gegnum leik og vinnu.
Eitt það mikilvægasta
er þó alltaf góð sam
vinna við heimilin og
munu foreldrar og
bæjar búar heyra meir
af jákvæðu og upp
byggi legu starfi sum ar
starfs Hafnar fjarðar
bæjar.
Góðir sumarpunktar sem for
eldrar standa saman um:
• Við kaupum ekki áfengi fyrir
börnin okkar.
• Við reynum að fylgjast með
hvað börnin okkar gera og
með hverjum þau eru?
• Við leyfum ekki eftirlitslaus
heimapartý.
• Við hleypum börnunum okk
ar ekki einum á útihátíðir.
• Við nýtum öll tækifæri til
samveru við hvort annað,
börn, frænkur, foreldra og
aðra í fjölskyldunni.
Höfundur er forvarnafulltrúi.
Unglingar og sumarið
Geir
Bjarnason
Verslum í Hafnarfirði!
... gerum kröfur
og njótum þess að vera Hafnfirðingar
Reykjav íkurveg i 74
Glæsilegur veislusalur fyrir 50 -180 manns
Brúðkaup - fundir - ráðstefnur - erfidrykkjur - árshátíðir
Hótel Hafnarfirði, Reykjavíkurvegi 72
Allar veitingar í boði
Sendum í heimahús og aðra sali
Matbær ehf. veisluþjónusta
steini@veislusalurinn.is • sími 565 5090 • veislusalurinn.is
Á afmælisfundi Rótarý
klúbbs ins Straums Hafnarfirði
þann 10. júní sl. færði klúbb
urinn Björgunarsveit Hafnar
fjarð ar Hvatningarverðlaun
Straums fyrir óeigingjarnt starf
að hjálpar og björgunarmálum.
Forseti rótarýklúbbsins, Þórir
Haraldsson, afhenti Hörpu Kol
beinsdóttur, varaformanni
Björg unarsveitar Hafnarfjarðar
verð launagripinn sem félagi í
klúbbnum, Fríða Jónsdóttir
gullsmiður hannaði. Í merkinu
endurspeglast merki klúbbsins
en einnig eldgos en félagar í
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
hafa lagt mikið af mörkum í
tengslum við eldgosin á Fimm
vörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.
Þetta er í þriðja sinn sem
Hvatningarverðlaun klúbbsins
eru veitt. Síðast var Karmel
klaustrinu í Hafnarfirði veitt
verðlaunin en þar áður og í
fyrsta sinn sem verðlaunin voru
afhent fékk Geir Bjarnason
forvarnarfulltrúi verðlaunin.
Rótarýklúbburinn Straumur
Hafnarfjörður var stofnaður
árið 1997 og eru í dag 42
félagar í klúbbnum.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar fær
Hvatningarverðlaun Straums
Ingólfur Haraldsson og Harpa Kolbeinsdóttir frá Björgunarsveit
Hafnarfjarðar ásamt Þóri Haraldssyni, forseta Straums.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n