Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. júní 2010
Sá misskilningur virðist vera á
kreiki hér í bænum að ekki geti
aðrir fermst í Fríkirkjunni í Hafn
ar firði en þeir sem eru skráðir í
söfnuðinn. Þetta langar okkur að
leiðrétta. Allir geta fermst í
kirkjunni okkar.
Fríkirkjan er í raun
„alveg eins“ söfnuður
og söfnuðir þjóð kirkj
unnar. Hún starfar á
sama kenningargrunni,
eins og það er kallað,
þ.e. að við förum eftir
sömu kristilegu gild
unum og erum lútersk
evangelískur söfnuður
eins og þjóðkirkjan.
Frí kirkjan er hins vegar ekki
ríkiskirkja og hefur því ekki úr
sömu tekjupóstunum að moða.
Einu föstu tekjurnar okkar eru
svo kölluð sóknargjöld. Það er
gjald sem ríkið skilar hverju trú
félagi úr skattheimtu sinni og fer
upphæðin eftir fjölda safnaðar
meðlima yfir 16 ára. Þess vegna
skiptir okkur talsverðu máli að
þeir sem nýta sér þjónustu
Fríkirkjunnar séu í söfnuðinum.
En það er ekki skilyrði. Kirkj
an okkar stendur öllum opin og
prestarnir okkar taka öllum sem
til þeirra leita opnum örmum.
Við erum líka í góðum tengslum
við aðrar sóknir og presta hér í
Hafnarfirði og víðar og erum
þakklát fyrir jákvætt og upp
byggilegt samstarf. Við þökkum
einnig dyggan fjárhagslegan
stuðning Hafnarfjarðarbæjar í
gegnum tíðina.
Skráningar óskast
Fermingarstarfið
hefst í haust og formleg
skráning fermingar
barna fer þá fram. En
það er gott fyrir okkur
að vita af sem flestum
sem vilja fermast í
Fríkirkjunni í Hafnar
firði og því biðj um við
for ráðamenn væntan
legra ferm ing ar barna
að senda okkur sem
fyrst skeyti um það á netfangið
einar@frikirkja.is.
Það að ganga í fríkirkju söfn
uðinn er einfalt mál. Til dæmis
má fara inn á vefinn okkar,
frikirkja.is og þar, vinstra megin
á forsíðunni, stendur einfaldlega:
Viltu skrá þig í söfnuðinn? Með
því að smella á þann tengil er
leiðin greið. Svo má hafa
samband við okkur í safnaðar
heimilinu að Linnetsstíg 6 í síma
565 3430 eða senda póst á prest
ana; Einar Eyjólfsson, einar@
frikirkja.is eða Sigríði Kristínu
Helgadóttur, sigga@frikirkja.is.
Höfundur er formaður
safnaðarstjórnar
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Allir geta fermst í Fríkirkjunni
Jóhann Guðni
Reynisson
Þriðjudaginn 22. júní standa
leikjanámskeiðin í Hafnarfirði
fyrir hinni árlegu dorgveiði
keppni við Flens borgar
bryggju. Keppnin er opin öll
um börnum á aldrinum sex til
tólf ára.
Í ein 20 ár hefur Hafnar
fjarð arbær staðið fyrir þessari
dorgveiðikeppni og í fyrra
tóku rúmlega 300 börn þátt.
Sigurvegarinn veiddi rúmlega
tíu fiska og vó þyngsti fiskur
keppninnar um 500 g Þessi
keppni hefur þótt takast vel og
verið ungum keppendum og
sumarstarfi Vinnuskólans til
mikils sóma. Þeir sem eiga
ekki veiðarfæri geta fengið
þau lánuð á keppnisstað en
nóg verður til af veiðarfærum.
Einnig verður hægt að fá beitu
og leiðbeiningar frá starfs
mönnum. Verðlaun verða veitt
fyrir stærsta fiskinn, þeim sem
veiðir flestu fiskanna og þeim
sem veiðir svokallaðan furðu
fisk. Styrktaraðili keppninnar
er Veiðibúðin við lækinn sem
gefur verðlaun, veiðarfæri og
góð ráð.
Leiðbeinendur íþrótta og
leikjanámskeiðanna verða
með öfluga gæslu auk þess
sem Siglingaklúbburinn Þytur
verður með björgunarbát á
svæðinu. Keppnin hefst um kl.
13.30 og lýkur um kl. 15. Allir
krakkar á aldrinum sex til tólf
ára eru velkomnir og hvattir til
að taka þátt.
Dorgveiðikeppni barnanna
Á leið í dorgveiðikeppni í Flensborgarhöfn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Í frétt af heiðrun á sjó
mannadaginn voru upplýsingar
um Pétur Vatnar Hafsteinsson,
vélstjóra ekki alveg réttar. Pétur
Vatnar fór 15 ára til sjós á
togaranum Goðanesi og
útskrifaðist frá Vélskólanum
1962. Hann starfaði m.a. hjá
útgerðunum Tryggva Ófeigssyni,
Eimskip, SÍS, Land helgis gæsl
unni, Granda, Stálskipum og
Vinnslustöðinn og var síðast á
Breka til ársins 2009 er hann
hætti á sjó.
Pétur Vatnar er kvæntur
Dagnýju Jónsdóttur og eiga þau 6
börn og 22 barna og barnabörn.
Leiðrétting
„Það er ljóst að kosningarnar
í Hafnarfirði munu snúast um
hvort bæjarstjórinn verði kjörinn
eða ekki. Þær snúast um mig. Ég
fór í baráttusætið til að verja
stöðu Samfylkingar inn ar.“ Þetta
var haft eftir Lúðvíki
Geirssyni, bæj ar stjóra í
Hafnar firði, í vef miðl
inum Pressunni þann
29. apríl sl. Í nýliðnum
sveitar stjórnar kosn ing
um ákváðu Hafnfirð
ingar hins vegar að
kjósa ekki bæjar stjór
ann. Samfylkingin tap
aði sætinu sem Lúð vík
hafði setið í og bauð sig
fram í til að verja stöðu
Samfylkingar. Engu að síður
ákveður nýr meiri hluti
Samfylkingar og Vinstra grænna
að endurráða Lúðvík sem
bæjarstjóra fram til ársins 2012.
Og til að bæta gráu ofan á svart
þá ákveður hinn nýi meiri hluti að
Guðrún Ágústa Jóns dóttir, full
trúi Vinstri grænna, verði bæjar
stjóri frá árinu 2012 til 2014.
Aðferð í anda úreltrar helminga
skiptareglu en taka skal fram að
Vinstri grænir fengu 1448 at
kvæði í kosningunum og til sam
an burðar voru það 1578 sem
skil uðu auðum atkvæðaseðli.
Þarna er því um að ræða gjörning
þar sem lýðræðið er fótum troðið
gjörning sem leiddi til þess að
hátt í eitt hundrað
Hafn firðingar mót
mæltu honum á bæjar
stjórn arfundi í Hafn
arborg sl. mánudag kl.
14 auk þess sem nálægt
1200 manns (14. júní
2010) hafa skráð sig á
Facebook síðuna „Við
mótmælum lítils virð
ingu Samfylkingar og
VG við kjósendur í
Hafnarfirði“ sem var stofnuð
fyrir um viku síðan.
Réttlætiskennd fjölda Hafn
firðinga, úr öllum stjórnmála
flokk um og engum stjórn mála
flokkum, er misboðið. Þetta er
ekkert persónulegt gagnvart
Lúð víki eða Ágústu. Sú leið sem
nýr meirihluti valdi við val á
nýjum bæjarstjóra er einfaldlega
röng að okkar mati.
Við hvetjum nýjan meirihluta
Samfylkingar og Vinstri grænna
að hætta við fyrrgreinda ráðningu
en auglýsa þegar í stað starf
bæjar stjóra og ráða faglegan ein
stakling til að stýra einu stærsta
sveitarfélagi landsins. Fjárhags
staða bæjarins er með því
al versta sem þekkist og því er
löngu tímabært að kjörnir bæjar
fulltrúar snúi bökum saman og
velji hag bæjarbúa fram yfir
eigin hagsmuni.
Þó svo að fæstir nenni eða hafi
gaman af að taka þátt í mót mæl
um sem þessum þá er það neyðin
sem mun reka okkur áfram. Sum
ir þeirra sem mót mæltu sl.
mánudag voru að taka þátt í slíku
í fyrsta sinn á ævinni. Þetta er
afleikur hjá nýjum meirihluta en
flesta slæma leiki má laga. Við
munum halda áfram á Facebook
síðunni ,,Við mót mælum lítils
virðingu Sam fylkingar og VG
við kjósendur í Hafnarfirði“ og
tilkynna frekari aðgerðir þar, við
erum hvergi nærri hætt. Við
hvetj um jafn framt fleiri sem eru
sömu skoð un ar til að taka þátt og
hafa áhrif á umræðuna og til að
koma með hugmyndir.
Höfundur er íbúi í
Hafnarfirði.
Við mótmælum lítilsvirðingu Samfylkingar
og VG við kjósendur í Hafnarfirði
Halldór Jón
Garðarsson
Heitir þetta ekki að hafa auga fyrir ljósmyndaranum – ekki öfugt? Ungir Haukamenn á hlaupum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n