Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Blaðsíða 7
www.fjardarposturinn.is 7 Miðvikudagur 16. júní 2010
Fjarðarpósturinn
– fyrir fólkið í bænum
Höldum saman uppá 10 ára afmæli Max1
athuga bremsurnar hjá Max1
Fáðu 20% afslá
tt af
bremsuviðgerð
um,
varahlutum og
vinnu,
í dag!
Afmælistilboð
Reykjavík: Bíldshöfði 5a og 8, Jafnasel 6,
Knarrarvogur 2, sími 515 7190.
Hafnarfjörður: Dalshraun 5, sími 515 7190.
Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050.
cw100087_brimborg_max1_salajuni210_bremsur_augldagbl_2x14_03062010_END.indd 1 11.6.2010 16:53:25
Samkvæmt samningi sem
undirritaður var á dögunum
mun Fríkirkjan í Hafnarfirði
leggja nemendum í fjöl skyldu
meðferð við Endur menntunar
stofnun Háskóla Íslands til
að stöðu fyrir Nema setur í safn
aðar heimili kirkjunnar en með
al nemendanna eru þær sr. Sig
ríður Kristín Helgadóttir, frí
kirkju prestur og Ragnheiður B.
Guðmundsdóttir sem á sæti í
stjórn Fríkirkjunnar.
Samningurinn er milli Frí
kirkjunnar í Hafnarfirði, EHÍ
og Félagsráðgjafadeildar
Há skóla Íslands.
Nám í fjölskyldumeðferð er
framhaldsnám á meistarastigi
sem sett er upp í samstarfi við
Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag
fagfólks í fjölskyldumeðferð,
Rannsóknarstofu í barna og
fjölskylduvernd og Diakon
hjemmets Högskola í Noregi.
Námið er 90 eininga nám á
meist ara stigi og spannar 4
misseri auk meistararitgerðar.
Nemasetrið hluti af
námsferlinu
Allir nemar koma til með að
sinna fjölskyldu með ferðar við
tölum. Lágmarksaðkoma nema
á haustönn mun vera með þeim
hætti að þeir sinni þremur við
tölum þar sem þeir eru með
ferðaraðilar auk þess sem þeir
sitja þrisvar sinnum í ígrund
unarteymi. Handleiðsluhópum
gefst einnig færi á að handleiðari
geti setið viðtal ýmist í ígrund
unarteymi og/eða sem með
ferðaraðili með nema og nýtt
þann ig einhvern af hand leiðslu
tímum hópsins.
Framtakinu er ætlað að efla
og styrkja meðferðarúrræði
fyrir fjölskyldur en þjónustan
stendur öllum til boða og verður
veitt í safnaðarheimili Frí
kirkjunnar að Linnetsstíg 6.
Samningurinn gildir frá 1.
september nk. til næstu áramóta
og verður þá endurskoðaður.
Fjölskyldumeðferð í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar
Fulltrúar Fríkirkjunnar og Háskóla Íslands við gerð samningsins.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Sjötugasta Vormót Hraunbúa
var haldið undir hlíðum Bæjar
fells í Krýsuvík um helgina.
Skátar komu víða að en líklega
var sjálfboðaliðinn Zeynep,
sem var á sínu fyrsta skátamóti,
kominn lengst að, hún er frá
Tyrklandi. Hún var reyndar lítið
hrifin af íslensku veðri og á
laugardeginum var heldur
ekkert spariveður því það
helltist niður rigningin og það
blés ágætlega.
Dagskráin var aðlöguð að
veðrinu enda margir að koma í
sína fyrstu alvöru útilegu og
áttu eftir að fara reynslunni
ríkari heim.
Skátamótin í Krýsuvík eru
reyndar landsþekkt fyrir
rigninguna svo hún átti ekki að
koma neinum á óvart. Enda
sungu skátarnir og léku sér og
brostu enda skein heimatilbúin
sól í hlíðum Bæjarfells.
Kakópottinum var haldið
heitum allt mótið öllum til
mikillar gleði. Kvöldvakan var
inni og eldfjörug og ekki
minnkaði stemmningin þegar
hljómsveitin Íslenzka sveitin
steig á stokk. Var dansað í
regngöllum, ungir sem aldnir
og tónlistin ómaði milli
Bæjarfells og Arnarfells.
Þeir blautustu voru sóttir af
foreldrum sínum en þeir hörð
ustu héldu út stoltir og uppskáru
sól og þurrk þegar tekið var
saman á sunnu deginum. Blautu
en bráðskemmtilegu skátamóti
í Krýsuvík var lokið.
Eintóm gleði í rigningunni
Skátafélagið Hraunbúar hélt 70. Vormótið um helgina
Sólin vakti mótsgesti á sunnudaginn og þá var brugðið á leik.
Dagskrá Deiglunar
Í dag Miðvikudaginn 16 júní
kl. 11-12 Jógadans
- Upplifum gleði og innri kraft .
Kl. 16:30 - 18:30 Örnámskeið
-að opna fyrir kærleikann í sjálfum sér
Staðsetning: Sjálfboðamiðstöð Rauðakrossins Strandgötu 24, önnur hæð,
(gengið inn frá Fjarðargötu)
Dagskráin er opin fyrir alla verið velkomin
Fylgist með viðburðum á facebook – síðu Deiglunnar
Með bros á vor hljóp þessi Vogamær með dót úr blautu tjaldinu.
Zeynep frá Tyrklandi.
Íslenzka sveitin vakti lukku.
Þeir fullorðnu fengu líka að
leika sér og hér svífur amma
niður Bæjarfellið.
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n