Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Side 9
www.fjardarposturinn.is 9 Miðvikudagur 16. júní 2010
Grillaður
kjúklingur
+ franskar og 2 l Coke
1.198 kr.
Tilboðið gildir fimmtudag og föstudag – Samkaup úrval, Hafnarfirði
Golfskóli fyrir börn og
unglinga fædd 1997 - 2002 er
starfræktur hjá Golfklúbbnum
Keili í sumar. Farið er yfir
helstu grunnatriði og börnunum
kennt að umgangast golfvöllinn.
Kennsla fer fram á 9 holu
Golfvelli Keilis á Hvaleyri og í
Hraunkoti. Haldin verða fimm
námskeið og fer kennsla fram á
eftir töldum dögum:
Námskeið 3 og 4: 21. júní –
1. júlí, kl. 9 – 11.45 eða kl.
12.30-15.15
Námskeið 5: 3. ágúst – 12.
ágúst, kl. 9 – 12.
Hámarksfjöldi í hverjum hóp
er tuttugu. Í lok hvers námskeiðs
verður verðlaunahátíð þar sem
allir fá viðurkenningarskjal og
boðið verður upp á grillveislu.
Umsjónarmaður og leið-
beinandi er Jóhann K Hjaltason
PGA – golfkennari og honum
til aðstoðar verða ungir kylf-
ingar úr afrekshópum Keilis.
Innritun fer fram í síma 565
3360. Kúlur og kylfur eru á
staðnum en þeir sem eiga kylfur
mega gjarnan koma með þær.
Unglingar sem hafa sótt
golfskóla Keilis hafa forgang
um að gerast félagar í Golf-
klúbbnum Keili.
Börn og unglingar læra grunnatriði í golfi
Ungir golfáhugamenn á Keilisvellinum á Hvaleyri.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Leikjaskóli Hauka fer vel af
stað og aðsókn góð. Krakkarnir
sem fá mat í hádeginu fengu tvo
bæjar fulltrúa, Guðmund Rúnar
Árna son, forseta bæjarstjórnar
og Guðrúnu Ágústu Guð-
munds dóttur, formann bæjar-
ráðs auk Lúðvíks Geirssonar
bæjarstjóra í mat á mánu daginn.
Í mat hjá Haukum
Stjórnmálamennirnir með Heimi Heimissyni framkvæmdastjóra Hauka.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n