Fjarðarpósturinn - 16.06.2010, Page 11
www.fjardarposturinn.is 11 Miðvikudagur 16. júní 2010
www.fjardarposturinn.is
Íþróttir
Næstu leikir
Fótbolti:
18. júní kl. 20, Ásvellir
ÍH - Víkingur Ólafsvík
(2. deild karla)
21. júní kl. 19.15, Selfoss
Selfoss - FH
(úrvalsdeild karla)
21. júní kl. 20, Hlíðarendi
Haukar - Grindavík
(úrvalsdeils karla)
Fótbolti úrslit:
Karlar:
FH - KR: 3-2
Keflavík - Haukar: 1-1
Víðir - ÍH: 5-1
Konur:
Breiðablik - FH: (þriðjud.)
Haukar - Grindavík: (þri.)
Dindlarnir hafa þegar í sumar
farið í nokkrar hjólaferðir.
Félagarnir eru velþroskaðir
hjólamenn sem hafa um
áraraðir stundað sportið. Lögð
er áhersla á öryggi og gætilegan
akstur. Allir áhugasmir og
gætnir vél hjóla menn eru
velkomnir að koma með og
njóta félagsskaparins.
Hjóladagar eru á þriðju-
dögum þegar veður leyfir og er
mætt við Atlantsolíu við
Kaplakrika kl. 17.30.
Velþroskaðir hjólamenn
Óli Ársælsson, Hrafn Adólfsson, Hjörtur Guðmundsson og Ellert
Eggertsson tilbúnir í hjólaferð.
Anton Sveinn
setti
piltamet
Ungur Hafnfirðingur, Anton
Sveinn McKee, í sundfélaginu
Ægi synti 1500 m skriðsund á
16,28.84 mín. á alþjóðlegu móti
í Canet á sunnudaginn. Með
sundinu bætti hann árangur
sinn um 3 sekúndur og setti nýtt
pilta met en fyrra metið átti
hann sjálfur frá í vor.
Þessi árangur skilaði honum í
14. sæti fullorðinna á mótinu.
Anton Sveinn á mótinu í Canet.
www.mp.is • 540 3200 • Ármúla 13a • Borgartúni 26
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg
vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Yfir 70% viðskiptavina okkar mæla
með MP banka við ættingja sína
og vini. Það eru ánægjuleg meðmæli.
Svanhvít Sverrisdóttir
viðskiptastjóri Ármúla
*skv. þjónustukönnun MP banka febrúar 2010
*
Siglinganámskeið
Í sumar mun Siglingaklúbburinn Þytur bjóða
upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga
10 ára og eldri, fædd 2000 og fyrr.
Kennt er eftir nýrri námsskrá sem Siglingasamband
Íslands hefur látið þýða og staðfæra.
Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum
aðstæðum, siglingar á kayak og seglbátum,
siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra.
Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hoppum i
sjóinn, buslum og endum á grillveislu.
Hvert námskeið er í tvær vikur hálfan daginn
kl. 9-12 eða kl. 13-16.
Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88
og við Hafnarfjarðarhöfn.
Hvert námskeið kostar 12.500 kr.
og er 20% systkinaafsláttur,
einnig er 20% afsláttur fyrir framhaldsnámskeið.
Námskeiðin verða haldin eftirfarandi daga:
21. júní – 2. júlí.
5. júlí - 16. júlí.
19. júlí - 30. júlí.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 555 3422
alla virka daga kl. 8.30 - 16.30
og á heimasíðu félagsins, http://sailing.is
Mæðginin Guðmundur Óð -
inn og Nína spókuðu sig í mið-
bænum á kjördag. Það er ekki á
hverjum degi sem ljósmyndari
Fjarðarpóstsins mætir flottum
ungum mönnum með hatt.
Flottur með
hattinn
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Helena Mjöll Jóhannsdóttir, formaður Foreldraráðs, Magnús
Baldursson fræðslustjóri, Guðmundur Ragnar Ólafsson og
Pálmar Sigurðsson talsmenn Frístundabílsins og Árni S.
Mathiesen frá Foreldraráðinu.
Foreldraráð Hafnarfjarðar
veitti sín árlegu foreldraverðlaun
á mánudaginn. Í ár voru veitt
tvenn verðlaun, Skólavefritið
sem gefið er út af Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar og Vigfús Hall-
grímsson ritstýrir fékk verðlaun
en einnig fékk Frístundabíllinn
verðlaun Foreldraráðs en það er
frumkvöðlaverkefni Hópbíla
og Hafnarfjarðarbæjar.
Foreldraverðlaunin veitt
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n