Fjarðarpósturinn - 12.05.2011, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. maí 2011
Hafnarfjarðarkaupstaður væri
sennilega ekki til í dag ef ekki væri
fyrir góða náttúrulega höfn og
mikla útgerð og vinnslu í gegnum
aldir. Hafnarfjörður var vagga
togaraútgerðar og bærinn iðaði af
lífi þegar fiskverkunarfólk breiddi
úr fisk á reiti og síðar flykktist til
starfa í stórum fiskvinnslum. Nú fer
minna fyrir útgerðinni en áður og kemur margt til. Annar
iðnaður hefur sótt sig í veðrið og óvíða er meiri þjónusta
í boði við útgerð og í Hafnarfirði. Útgerð og fiskvinnsla
hefur dregist mikið saman en eru samt gríðarlega mikil
væg atvinnugrein í bænum.
Sjómannadagurinn ætti því að vera stærsti hátíðisdagur
bæjarins og við ættum að minnast forfeðranna sem sóttu
sjó við illan leik og byggðu stoðir undir bæjarfélagið. Því
miður var Sjóminjasafn Íslands lagt niður og sjóminjar
eru aðeins í mýflugnamynd og þá aðallega í Byggða
safninu. Það hlýtur að vera kominn tími til að hefja sögu
útgerðar og fiskvinnslu til vegs og virðingar á ný með
öflugum sjómannadegi. Bæjarbúar hafa staðið í
biðröðum í rigningu og blæstri eftir að fá að komast í
stutta sjóferð út á Fjörðinn, nú með hvalaskoðunarbát en
áður var farið með stærri skipum og togurum í boði
útgerðanna. Þetta heldur tengslum bæjarbúa við sjóinn
og mikilvægt er að þau tengsl rofni ekki.
Nú er þrýst á að gera sjómannadaginn að stórhátíð í
Hafnarfirði á ný og er það vel. Mikilvægt er að allir
leggist á eitt við að svo megi verða, almennir bæjarbúar,
útgerðarmenn, sjómenn, yfirvöld og allir þeir sem starfa
við iðnað og þjónustu sem tengist sjómennsku og útgerð.
Það er lítið að sækja í bæjarsjóð í þessu árferði og því
mikilvægt að öflug fyrirtæki í bænum leggi lið svo takast
megi að halda veglegan sjómannadag á næstu árum.
Guðni Gíslason
Hafnfirska
fréttablaðið
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Víðistaðakirkja
Helgistund á sumarkvöldi
Sunnudaginn 15. maí kl. 20:00
Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn
Arngerðar Maríu Árnadóttur
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 15. maí
Vorhátíð kl. 11
Hátíðin hefst með fjölskyldusamkomu í kirkju.
Barna og unglingakórarnir synga undir stjórn
Helgu og Önnu. Prestur er sr. Þórhallur
Heimisson.
Grillveisla fyrir utan kirkjuna eftir samkomuna.
Andlitsmálun. Bátasigling á tjörn.
Harmonikkuleikur og götulistaverk. Leikir og
grín. Fjölmennum og njótum dagsins
Maánudagur 16. maí
Vortónleikar Barna- og unglinga-
kórs Hafnarfjarðarkirkju kl.18
í Hafnarfjarðarkirkju.
Aðgangseyrir fyrir 16 ára og eldri er 500 kr.
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Sunnudagur 15. maí
Messa kl. 11
Prestur er sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu
Þórdísar Guðmundsdóttur.
Þórunn og Hanna Lind syngja Halleluja eftir
Leonard Coendúett við undirleik Hönnu.
Unglingar úr æskulýðsfélaginu Þristinum
taka þátt.
Heitt á könnunni á eftir messu.
www.astjarnarkirkja.is
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudagur 15. maí
Fermingarmessur
kl. 11 og 13
Foreldramorgnar
eru í safnaðarheimilinu
á miðvikudögum kl. 10-12.
Allir velkomnir
í Fríkirkjuna!
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Sverrir Einarsson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242
Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Íslenskar og vistvænar
líkkistur
Jón G. Bjarnason
Hermann Jónasson
Kristín Ingólfsdóttir
Það sem hafa ber í huga
varðandi andlát og útför
Áratuga reynsla
Helluhrauni 12 Hafnarfjörður www.granithusid.is
Sendum frítt
hvert á land sem er
Áttu poka?
Hafnfirska
fréttablaðið
A
..taktu hann með þér út og fyllt‘ann!
..fyrir umhverfið!
leiðarinn