Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.05.2011, Page 11

Fjarðarpósturinn - 12.05.2011, Page 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 12. maí 2011 Sumardagar á Reykja víkur veginum Sumardagar á Reykja víkur veginum Ingi Valur Grétarsson, versl­ unar stjóri tekur á móti gestum í Tölvulistanum að Reykja­ víkurvegi 66. Tölvulistann þekkja flestir enda á Tölvu­ listinn sér langa sögu og rekur nú 6 verslanir. Verslunin í Hafnarfirði var opnuð 6. mars 2008 og Ingi Valur hefur verið þar frá haustdögum 2009. Hann segir viðskiptavini koma víða að. Þeir leiti eftir allt frá smáhlutum upp í öflugar tölvur en úrvalið er mjög gott auk þess sem Ingi Valur útvegar vörur frá höfuðstöðvunum ef þær eru ekki til í versluninni og fær þær í verslunina samdægurs eða daginn eftir. Tölvulistinn selur tölvur og tölvutengdar vörur og má þar finna prentara, blek og tóner, skanna, minniskort, harða diska, snúrur, hátalara, heyrnar­ tól, diska, spólur í dv mynd­ bandstæki svo eitthvað sé nefnt. Sífellt eru í gangi tilboð sem kynnt eru á öflugri heimasíðu Tölvulistans, www.tl.is og í sérblöðum. Ef þú ert að leita að einhverju í tölvuna þína, þá liggur leiðin fyrst í Tölvulistann og engin ástæða að aka á dýru bensíni út úr bænum þegar hægt er að fá þjónustuna innanbæjar. Verslunin er opin virka daga kl. 9­18 og kl. 11­16 á laugar­ dögum. Blekhylki og öflugar tölvur ... Erna föt er tískuverslun á 2. hæð á Reykjavíkurvegi 68 og er einnig netverslun. „Ég er að flytja inn vörur frá London, Paris og Amsterdam. Erna föt hefur tekið þó nokkrum breytingum frá því að ég byrjaði í febrúar 2010 en fyrsta hálfa árið var ég eingöngu að selja fatnaðinn í heima kynn­ ingum,“ segir Erna Lúðvíks­ dóttir eigandi. „Í ágúst byrjun 2010 fékk ég þetta fína húsnæði á 2. hæð á Reykjavíkurveginum þar sem ég er með verslun og vinnustofu og opnaði netversl­ unina ernafot.is. Verslun á netinu er í stöðugum vexti og kom mér á óvart hversu mikið er pantað af höfuðborgarsvæðinu. Ég held að fólk sé að átta sig á því að þetta er öruggur verslunarmáti og lítið mál að skila og skipta vörum eins og í öðrum versl­ unum. Ég veiti góðar ráð­ leggingar um val á stærðum í gegnum síma þegar verslað er á netinu. Í febrúar á þessu ári byrjaði ég síðan að bjóða uppá mina eigin hönnun í bland við innfluttu vör urnar. Og hefur henni verið tekið frábærlega vel. Ég er enn með fatakynningar og er með frábæra aðstöðu í versluninni til að taka móti hópum og fólk getur sent mér póst á erna@ernafot.is ef það vill fá nánari upplýsingar en ég set alltaf saman ýmis tilboð sem sniðin eru að hverjum hóp fyrir sig,“ segir Erna. Með fatakynningar fyrir hópa Reykjavíkurvegi 66 • sími 414 1750 • www.tl.is • opið kl. 9-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum United Pets • Carnello • Happy Dog • Happy cat • Hurtta • Red Dingo • Greenfields 15% afsláttur af öllu gæludýrafóðri föstudag 13. maí Reykjavíkurvegi 68 sími 533 2700 Opið kl. 12-18 Erna Lúðvíksdóttir í versluninni Erna föt á Reykjavíkurvegi 68. Lilja Ægisdóttir og Ragnhildur Ægisdóttir við hið mikla úrval af Solgar bætiefnum og vítamínum Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Ingi Valur Grétarsson, verslunarstjóri í Tölvulistanum Reykjavíkurvegi 66 þar sem vöruúrvalið er ótrúlega mikið. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Heilsubúðin að Reykjavíkur­ vegi 62 er ein elsta verslun í Hafnarfirði, 24 ára gömul. Eigendur hennar eiga sér langa sögu í verslunarrekstri í Hafnar­ firði, þau Guðný Arnbergsdóttir og Ægir Bessason. Dætur þeirra, Lilja og Ragn­ hildur segja vítamín og bætiefni frá Solgar vera vinsæl og seljist ávallt vel enda hágæða marg­ verðlaunaðar vörur frá yfir 60 ára gömlu fyrirtæki. Í versluninni er mikið úrval af ilmkertum frá Greenleaf og Bridgewater, reykelsi, ilmolí um og baðvörum svo ekki sé minnst á sólvörn m.a. frá Bananaboat sem alltaf nýtur mikilla vinsælda. Þá má finna falleg útikerti, útireykelsi og fjölmargt annað til að gera daginn skemmti legri. Heilsubúðin og Kertaheimur verða með tilboð föstudag og laugardag, 15% afslátt af Solgar vítamínum og bætiefnum en 20% afslátt af öllum öðrum vörum í versluninni. Úrvals bætiefni og ilmandi kerti og olíur Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.