Prentneminn - 01.11.1982, Side 3

Prentneminn - 01.11.1982, Side 3
Ágæti lesandi! Hér ber fyrir sjónir þínar all nýstárleg útgáfa af PRENTNEMANUM. Það var út af umræðum um kynnisferð til útlanda, sem kennari okkar, Óli Vestmann Einarsson vakti, að við hófumst handa um útgáfu þessa blaðs. Allur ágóði af blaðinu mun renna í utanfararsjóð bekkjar okkar, 3.BG. Ætlunin er að fara og skoða ýmis prentfyrirtæki á meginlandi Evrópu næstkomandi vor. Jafnhliða blaðaútgáfunni var hafist handa við að útbúa jólakort, sem ætlunin er að ganga með í hús og selja. Mun ágóðinn af þeim einnig renna í ufanfarar- sjóð 3.BG. Þegar við tókum til við að gera þetta blað, settum við okkur það markmið að blaðið yrði sem allra mest faglegs eðlis og ennfremur að auglýsingar skyldu bera megin kostnað við blaðið og jafnframt skila hagnaði sem rynni í utanfararsjóðinn. Þetta virðist okkur hafa tekist vonum framar og er því að þakka hve vel bóka- gerðarmenn, kennarar okkar og aðrir velgjörðarmenn hafa stutt okkur. Við sendum þeim kærar þakkir og vonum að þú, lesandi góður, hafir gagn og gaman að þessu riti. 3.BG. Ritstjórn: Leó Geir Torfason Halldór Friögeir Ólafsson Helgi Jón Jónsson Aðrir í ritnefnd: Anna Dóra Þorgeirsdóttir Bjarni Rúnar Beck Bryndís Guðmundsdóttir Guðrún Hrönn Guðbjörnsdóttir Gunnlaugur Einarsson Helga Tómasdóttir Jón Guðmundur Jónsson Ivar Hauksson Mark Ólafsson Rúnar Þór Vilhjálmsson Sigrún Arnórsdóttir Stefán Reynir Ásgeirsson Stefán Þorsteinsson Þórður Kárason Jólakortanefnd: Stefán R. Ásgeirsson Mark Ólafsson Stefán Þorsteinsson Ef nisyf irlit: 6 Prentlistinbreytirheiminum. Óla fur Ingi Jónsson. 12 „Gutenberg varlíkafúskari“. Viðtal við OlavHanson. 16 Prentnemarfyrrog nú. 18 Nýjungar frá Kodak. Hans PéturJónsson. 22 Iðnskólinn í Reykjavík Viðtal við skólastjóra um framtíðaráform o.fl. 24 3M. Viðtal við Aage Haugard. 26 „Iðnskólinn hefur ávallt verið mér mjög kær“. Viðtal við Sigurð Skúlason magister. 32 Norræn kennararáðstefna ígrafískumiðnum. Óli Vestmann Einarsson. 34 ModularCompositionSystem. Nýjung frá Compugraphic. 37 Silfur og þýðing þess fyrir Ijósmyndun. Ásgeir Einarsson. 38 CRTronic200ljóssetningarvélin. Nýjungarfrá Linotype. 40 Skapandilitstækkanir. Hford Cibachrome. Ljósmyndari: Halldór F.ÓIafsson Öll vinnsla blaðsins fór fram í Iðnskólanum í Reykjavik. Sérstakar þakkir fá eftirtaldir aðilar fyrir aðstoð: A. P. Bendtsen hf. Ásgeir Einarsson hf. Gutenberg Ólafur Þorsteinsson og Co Umslag sf. Iðnskólinn í Reykjavík PRENTNEMTNN 3

x

Prentneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.