Prentneminn - 01.11.1982, Qupperneq 38
Nýjungar frá Linotype.
CRTronic 200
ljóssetningarvélin
/
Ahersla lögð á hraða og gæði.
Hér á eftir fer yfirlit um helstu
eiginleika nýjustu Ijóssetning-
arvéla frá Linotype fyrir-
tækinu í Þýskalandi. Greinin
gefur nokkra innsýn í nýjustu
þróun tækninnar í prentverki.
Hér á landi eru nú í notkun 11
CRTronic vélar.
Umboðsaðili fyrir Linotype á
íslandi er ACO.
CRTronic 200.
Áður fyrr var talsverður munur á
vinnslu- og notkunarmöguleikum
stakra ljóssetningarvéla annars vegar
og hins vegar þeirra samsettu. Síðast-
liðin tvö ár hefur munurinn á þessum
gerðum minnkað jaft og þétt. Þess er
vænst að sú þróun haldi áfram en þó
verði svokölluð maxi-kerfi áfram sér á
báti. Þau hafa sérstakan hugbúnað
fyrir bóka-, timarita- og dagblaða-
prentun.
Hjá Linotype fyrirtækinu var tekið
mið af þeirri þróun þegar lokið var
endurkönnun á CRTronic vélunum.
Fullkomnust þeirra er CRTronic 200.
Hún myndar kjarna CRTronic
kerfisins vegna þess hve hraðvirk hún
er. Þessi vél hefur vakið einstaka
athygli á markaðnum eftir að fram-
leiðsla hennar hófst.
Hámarksgœði i vinnslu
fjölþœttra verkefna
Með CRTronic 200 hefur verið
sannað að nýjasta tækni í prent-
iðnaðinum getur uppfyllt stöngustu
gæðakröfur sem gerðar eru til prent-
listarinnar. Hvers konar leturgerðir og
leturstærðir mótast ótrúlega skýrum
dráttum með þeirri tækni sem hér er
beitt (1000 skanlinur á centimeter og
notkun súper-fonta). Fínni „resol-
ation“ er einkum beitt við smátt og
meðalstórt letur og örmuóa fonta og
leturgerðir.
Súper fontanir, sem geyma u.þ.b.
tvöfalt efnismagn, tryggja aftur á móti
mjúkar linur í stærri leturgerð. Þessi
tækni gerir kleift að spanna leturstærð
á bilinu l,5-48mm (4-128p). Hægt er
að velja stærð hvar sem er á bilinu og
fikra sig upp eða niður um l/100mm.
Mismunandi leturgerð fæst meö
beinum aðgangi að 24 fontum og raf-
eindastýrðri jöfnun með digital
CRTronic tækni sem gefur möguleika
á 12 gráðu halla og stöðugri smækkun
eða stækkun jafnvel í sambandi við
skáletur.
í sambandi við vandaminni verk er
að sjálfsögðu hægt að nota venjulega
fonta og 500 skan-linur á centimeter
eins og venja er.
CRTronic 200
er auðveld í notkun.
Áhersla hefur verið lögð á að gera
CRTronic vélarnar auðveldar og ein-
faldar i notkun.
Hinir fjölbreyttu vinnslumöguleikar
og hraðvirkni vélanna felst meðal
annars í þvi að hægt er að færa depil-
inn um allan skerminn og leiðrétta
aðeins það sem lagfæra þarf án þess að
taka upp neitt á undan aftur. Margir
valkostir eru um lágmarks-, meðal- og
hámarksorðabil. Sérstök stilling er fyrir
minnsta bókstafafjölda sem flyst á milli
lína eða lendir síðast í línu. Allt flýtir
þetta fyrir vinnslu og réttri útkomu.
Ýmsar fleiri endurbætur voru gerðar
á línuskiptingarkerfinu og byggjast þær
einkum á meiri sjálfvirkni. Format not-
andans og macro-minni var aukið i
meira en 600 letureiningar. Með
ásláttarteljara er hægt að fylgjast með
hve mikið er komið inn í minnið af
þessu tagi.
Yfirlit um textamagn og fyrirmæli
sem búið er að slá inn kemur fram á
skerminum þegar texti er framkallaður
af diskettu. Vélin fylgist með hve mikið
er eftir af rými á diskettu og gefur
viðvörunarmerki þegar það er að verða
fullnotað.
Allt að 200.000 tákn,
á klukkustund.
Hraðvirkni CRTronic 200 er fengin
með þvi að nota fullkomna 16 bita
tölvu (M6800 Motorola) og alveg nýjan
hugbúnað og sérstaka tækni við færslu
úr tölvuminninu. Hægt er að ná meiri
hraða en 200.000 táknum á klukku-
stund með svokallaðri prófarkarstill-
ingu með hálfum venjulegum skan-
linufjölda.
Rými upptökukassettunnar hefur
verið aukið til samræmis við þennan
mikla setningarhraða. Hægt er að
geyma allt að 10 m af myndpappir og
framkalla í einu lagi. Teljarar og við-
vörunarljós gera auðvelt að fylgjast
nákvæmlega með notkun mynapappirs
og geymsluefnis og hvenær skipta þarf
um kassettu. I samræmi við aukna
afkastagetu vélarinnar hefur texta-
minni lika verið aukiö upp i 640 Kb.
Það svarar til u.þ.b. 280 vélritaðra
síðna eða meðalstórrar bókar. (Tví-
hliða míni-kassettur með tvöfaldri
samþjöppun og tvöföldu drifi.
38
PRENTNEM INN