Prentneminn - 01.11.1982, Side 39

Prentneminn - 01.11.1982, Side 39
C RTronic200-kjarninn í CRTronic kerfinu. Hraðvirkni CRTronic 200 gerir vél- ina ákjósanlegri til að þjóna nokkrum CRTjaðartækjum í samstæðu. Þá er stuðst við nýjustu tengingartækni þannig að allar einingarnar geta starfað sjálfstætt og enginn þeirra hefur sér- stakt vægi (“shared intellingence“). Notandinn getur byggt kerfið upp eftir þörfum byrjað með einni CRTronic 200 og einu jaðartæki og siðan byggt á þeim grunni. Fræðilega séð eru tengingarmöguleikamir ó- takmarkaðir. Þegar unnið er með slika samstæðu gegnir setjarinn á CRT vélinni sérstöku hlutverki gagnvart þeim sem vinna á jaðarstöðvunum. Hann tekur við efni sem er tilbúið til ljóssetningar frá þeim. Með sjálf- virkum hætti fer það yfir á diskettur og er svo skotið út samkvæmt ákvörðun setjarans á CRTronic vélinni og ljóssett i baksviði hennar. Aukahlutir opna nýja möguleika. Auk tengingar milli CRTronic vélar- innar og jaðartækja er um ýmsa fleiri möguleika að ræða í CRTronic kerf- inu. Þeir byggjast á aukahlutum sem gera kleift að fullnægja ólikum óskum notenda. Með prentara er hægt t.d. að prenta fyrstu prufur á pappir og spara þannig dýran myndapappír. Prentarann er hægt að nota með ýmsu móti t.d. prenta út upplýsingar ef vélin hefur fjarskiptabúnað. Einnig er hægt að nota hann i ritvinnslu með aðstoð CRTronic hugbúnaðar. Sé notað CP/M stýrikerfið og við- eigandi hugbúnaður i CRTronic vélina og jaðartæki opnast nýir vinnslumögu- leikar; s.s í útskiftum sem byggist á einhverjum útreikningum, bókhaldi, reikningyfirliti o.þ.u.l. Með CRTronic er einnig hægt að vinna úr efni sem slegið er inn utan samstæðunnar á vélar af annari gerð. Er þá notuð ,4nodem“ tenging (tengist gegnum símalínu). CRTronic ljóssetningarvélarnar hafa náð miklum vinsældum og höfðu verið settar upp 3500 slíkar vélar viða um heim s.l. sumar. Hinni nýju CRTronic 200 ljós- setningarvél er ætlað forystuhlutverk að þvi er hraöa og gæði i prentun varðar auk þess sem hún opnar marga nýja möguleika í prentvinnu. Linotype fyrirtækið væntir þess að nýja vélin auki enn hróður þessarar gerðar af ljóssetningarvélum enda er hér horft bæði til nútiðar og framtiðar. Hrein vél — gott prentverk Valsaþvottaefni _________________J Color-Change 1 und 2. Litaskifti 1 og 2. Wash V-120. Dúkaþvottaefni til daglegrar notkunar. Revitol 1. Djúphreinsandi valsaþvottaefni. SRR. Djúphreinsandi dúkaþvottaefni. Sav-Rol. Þvottaefni fyrir vatnsvalsa. Total. Fontur. Dúkaþvottaefni A.P. BENDTSEN HF — vörugeymsla Bolholti 6 sími 32030 J PRENTNEMTNN 39

x

Prentneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.