Prentneminn - 01.11.1982, Síða 18
Hans Pétur Jónsson:
Nýjungar f rá KOD AK
EASTMAN KODAK og dótturfyrirtæki þess hafa um
langt árabil verið leiðandi á sínu sviði. Vísinda-
mönnum fyrirtækisins hefur hvað eftir annað tekist
að koma með nýjungar og endurbætur á ljósmynd-
avörum sem hafa verið stefnumarkandi fyrir iðnað-
inn. Árið 1982 var sannkallað nýjungaár hjá Kodak.
Þeir kynntu byltingarkenndar nýjungar á ýmsum
sviðum.
DISK-TÆKNIN ER SANNKÖLLUÐ BYLTING.
Disk-filman ásamt filmuhylkinu er aðeins 7mm breið, en
samt er filman sjálf þykkari og stifari en hefðbundnar
rúllufilmur. Á hverri disk-filmu eru 15 myndrammar, 8 x
10,5 mm að stærð. Þetta er mun minni rammi en á
vasavélafilmu. Smæð myndrammans og litil fyrirferð filmu-
hylkisins er ástæðan fyrir nettleika disk-myndavélarinnar
sem þó er búin fullkomnustu tækni.
Normallinsa fyrir þessa stærð myndramma hefur margfalt
meiri dýpt sjónsviðs en normallinsa fyrir stærri
myndramma. Engin skerpustilling er þvi nauðsynleg, þvi
segja má að allt sem er 1,2 m eða lengra frá vélinni sé i
fókus.
Disk-filman er tvöfalt ljósnæmari en 100 ASA filman sem
algengust er og býður því meiri lokarahraða og færri
hreyfðar myndir. Við litið ljós kemur ljósnæmnin til góða
og mun færri myndir verða undirlýstar.
Disk-myndavélin er búin hágæða linsu, sjálfvirkri filmu-
færslu, sérlega orkurikri rafhlöðu og al-sjálfvirkri ljós-
mælingu og leifturljósi.
Disk-tæknin er ekki keppinautur vandaðra myndavéla með
stærri myndramma. Disk-ramminn er það litill að meiri
stækkun en 13 x 18 cm er ekki fýsileg. Finustu atriði
myndefnisins aðgreinast ekki á filmunni og verða þvi ekki
stækkuð útúr myndinni. En vegna hagstæðs verðs og
tæknilegs fullkomleika auk lítillar fyrirferðar og auðveldrar
notkunar, verður disk-myndavélin tækifærismyndavél
niunda áratugsins.
EKTAFLEX - LITMYND í EINUM ÁFANGA.
EKTAFLEX heitir önnur byltingarkennd nýjung frá
Kodak.
Er þetta ný aðferð til stækkunar á litmyndum eftir
pósitivum og negativum filmum. Aðeins einn vökva þarf til.
Hitastig framköllunar er herbergishiti. Ekkert vatn eða
rafmagn þarf við framköllunina.
Ektaflex Printmaker-tækið er framköllunarbakki úr
niðsterku plasti.A honum er lok sem einnig er pappirsbakki.
Við annan enda tækisins er rauf milli loks og neðri bakka.
Filmubrautin sem er eins konar hilla liggur skáhalt að
þessari rauf. I hinum enda tækisins eru tveir valsar spenntir
saman með fjöðrum. Eini vökvinn er til þarf, Ektaflex-
activator, kemur tilbúinn á flöskum og er hellt í neðri bakka
tækisins. Ektaflex-pappír sem ekki er ljósnæmur er settur í
efri bakkann við herbergisijós. Lýsing á Ektaflex-filmuna
fer fram í myrkri.
Til þess er notaður litstækkari. Ektaflex-filman fæst bæði
pósitiv og negativ og er þvi hægt að stækka bæði negativa
og slides filmu. Lýst Ektaflex-filma er siðan sett í
filmubrautina. Henni er stýrt ofan í vökvabakkann og höfð
þar i 20 sek; að þeim tima liðnum er filmunni og
pappímum stýrt að völsum tækisins sem gripa hvortveggja
og skila samlímdu útúr tækinu. Þessi samloka er ljósheld, og
má þvi kveikja ljós að nýju. Samlokan þarf 5 — 15 min.
áður en hægt er að skilja að filmu og pappír og fer það eftir
herbergishita.
Pappírinn er svo til þurr og myndin fullkláruð.
Tvær stærðir af filmum eru fáanlegar, 13 x 18 cm og 20 x 25
cm. Pappírinn má nota með hvort sem er negatívri eða
pósitívri filmu og kemur hann í sömu stærðum og filman en
tveimur áferðum, glansandi og mattur.Með tækinu fylgir
leiðarvísir og litaprufuspjald með leiðbeiningum fyrir
lýsinguna.
Litur myndanna er sérlega skýr og endingarbetri en áður
hefur þekkst.
Segja má að þessi nýja tækni opni áhugamönnum leiðina að
litframköllun.
Nú nýverið kynnti Kodak enn eina nýjungina, 1000 ASA
litfilmu, sem kemur væntanlega á markaðinn á næsta ári. í
henni eru notuð ný litakom sem hafa aukna mótstöðu án
þess að vera stærri. Gæti hér verið um að ræða nýja filmu
fyrir öll tækifæri.
Af þessu má sjá að fróðlegt verður að fylgjast með þróun hjá
Kodak fyrirtækinu í framtiðinni jafnt sem hingað til.
18
PRENTNEMINN