Prentneminn - 01.11.1982, Qupperneq 27

Prentneminn - 01.11.1982, Qupperneq 27
verið þyngt að mun eftir erlendri licenciatprófs fyrirmynd. Tími til aðalritgerðar var nú ferfalt lengri en áður hafði verið og kröfurnar vitanlega auknar eftir því. Ég hef ekki orðið annarri stundu fegnari en þegar þessum ósköpum var lokið!“ „Hvað tók svo við?“ „Kennsla við 4 skóla næsta vetur, 1928-1929.“ „ Við hvaða skóla?" „Iðnskólann í Reykjavík, Menntaskólann í Rvík, Kvenna- skólann og Kvöldskóla K.F.U.M., en við síðast nefnda skólann hafði ég kennt á stúdentsárum mínum.“ „Hvernig líkaðiþér að kenna iþessum skólum?" „Þú getur nú nærri hvemig 24ra ára manni hefur liðið innan um hinar blómstrandi fegurðardísir i Kvennó. I M.R. átti ég að nemendum afburða gáfaða námsmenn eins og Bjöm Sigurðsson frá Veðramóti, siðar dr. i læknavísindum og forstjóra Tilraunastöðvar Háskólans i meinafræði á Keldum i Mosfellssveit; Guðmund Amlaugsson, síðar rektor við Hamrahliðarskóla, og Klemenz Tryggvason hagstofustjóra, svo að nokkur nöfn séu nefnd. Mér var mjög hlýtt til Kvöldskóla K.F.U.M og Iðnskólinn var mér einnig mjög kær. Þar fannst mér gott að starfa. Ég var þá enn yngri en flestir nemanda minna þar, en ég fann brátt að meðal vinnandi fólks, sem þráði aukna fræðslu i islensku máli og bókmenntum, átti ég heima og svo hefur ávallt verið siðan.“ „Fannstu snemma til köllunar til kennarastarfsins?" „Það er von þú spyrjir,“ svarar Sigurður og hlær við. „Ég hef liklega verið 10 ára gamall eða um það bil þegar ég kenndi i fyrsta sinn. Þetta atvikaðist þannig að Einar Magnússon, frændi minn, siðar rektor Menntaskólans i Reykjavik, átti að ganga undir eitthvert bamapróf i íslandssögu austur i Biskupstungum. Hann kom þá til mín og bað mig að hlýða sér yfir einhvem erfiðan kafla í kennslubókinni. Ég hafði þá aldrei séð þessa námsbók, en Einar heimtaði þetta af mér með harðri hendi! Ég renndi af miklum vanmætti augunum yfir um það bil 5 bls. i skmddunni og sagði Einari siðan að byrja að þylja. Hann gerði það svo skilmerkilega að ég gaf honum fyrstu ágætiseinkunn! Einar varð seinna skóladúx Bamaskólans í Reykjavik, enda afburða námsmaður. Þama sérðu. Mjór er mikils vísir. Ég valdi mér síðar Islandssögu sem aðalnámsgrein til háskólaprófs!“ „En hvað um nám þitt erlendis, Sigurður?" „Ég held að það yrði of langt upp að telja“ svarar Sigurður. „Ég fór fyrst til Þýskalands, var þar á sumamámskeiði i Þýsku, en næsta vetur stundaði ég allfjölbreytt framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla og reyndar i Uppsölum í Svíþjóð vorið eftir.“ „En hefurðu ekki verið við nám i Paris?“ ;rJú, við hjónin stunduðum sumamám við Sorbonnehá- skólann (Svarta skóla) frá 1954 til 1960.“ „Hvers minnistu helst frá þvi nárni?" „Afburða kennara sem höfðu veruleg áhrif á kennslutækni mína og það til þeirra muna að sumir Iðnskólanemenda minna brostu stundum að handapati minu. Frakkar kenna nefnilega ekki með munninum einum, heldur með heilmiklum hreyfingum. Hjá þeim er þvi erfitt að sofna i timum! Einn af bekkjarbræðmm mínum þama suður frá, virðulegur lögfræðingur frá Brasiliu, varð að láta sér nægja að geispa um 40 sinnum i tíma. Hann sagðist lika vera orðinn hálfgerður heimagangur í flestum næturklúbbum Parisar!“ „Hvað er þér helst i huga þegar þú litur yfir liðin starfsár við Iðnskólann?" „Það skal ég segja þér,“ansar Sigurður og brosir við. PRENTNEMINN 27

x

Prentneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.