Bókbindarinn - 01.03.1962, Síða 2
2
BÓKBINDARINN
NÝIR BÓKBINDARAR
Auðunn Björnsson.
Hann er fæddur á Kvígsstöðum, Andakíls-
hreppi í Borgarfjarðarsýslu, 5. júlí 1940. Hóf nám
í bókbandsvinnustofu Prentsm. Hólar h.f. 6 marz
1957. Sveinsbréf hans er gefið út 30. nóv. 1961.
Hann vinnur í Hólum.
Egill Rúnar Friðleifsson.
Hann er fæddur í Hafnarfirði 16. des. 1940. Hóf
nám í bókbandi hjá Prentsm. Hafnarfjarðar 16.
júlí 1957. Sveinsbréf hans er gefið út 14. desember
1961. Hann vinnur í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
?--------—----------------------------
BÓKBINDARINN
Utgefandi:
BÓKBINDARAFÉLAG ÍSLANDS
Ritnefnd: i
HELGI HRAFN HELGASON !
! VIÐAR ÞORSTEINSSON ;
SVANUR JÓHANNESSON
1 ábyrgðarmaður ■
1 Prentun: Alþýðuprentsmiðjan h.f. !
Myndamót: Litróf h.f.
Bókbandsvinna: Bókfell h.f.
Forsíðumynd.
Að þessu sinni birtum við mynd af bók eftir
Paul Éluard, „A Pablo Picasso". Bandið á þessari
bók hlaut gullverðlaun á sýningu í Kassel í
Þýzkalandi árið 1959. Það er eftir Hugo Peller,
Solothurn, Schweiz. Bókin er bundin í rautt
maroquin skinn og gult og svart skinn fellt inn
í. Hún er skreytt með gulli og svörtum lit. —
Myndin er tekin úr blaði sænska bókbindarsam-
bandsins, „Bokbinderi Arbetaren".
Leiðrétting.
I síðasta blaði Bókbindarans urðu þau mistök
í fyrirsögn minningargreinar um Sveinbjörn Ar-
inbjarnar, að þar stóð Arinbj arnarson í staðinn
fyrir Arinbjarnar. Hlutaðeigendur eru beðnir af-
sökunar á þessum mistökum.
Gamli vaninn — eða sjónvarp bókbindarans.
(Bokbinderi Arbetaren).