Bókbindarinn - 01.03.1962, Síða 3
Kvennadeild B.F.L 10 ára
1952 - 13. marz - 1962
Aðdragandi að stofnun Kvennadeildar Bók-
bindarafélags Islands var sá, að haustið 1949
átti félagið í vinnudeilu. Stúlkur voru þá
fjölmennar í félaginu og vildu fá verulega
kauphækkun. Fengu þær því framgengt, að
tekið var upp í kröfur félagsins það sem
þær höfðu til málanna að leggja. Kröfur
sveinanna voru þá eins og endra nær mjög
svipaðar eða eins og kröfur prentara, en prent-
arar voru með miklu lægri kröfur fyrir stúlkur
í prentverki, en kaup stúlkna í þessum tveim-
ur iðngreinum hefur oftast fylgst að.
Á meðal bókbandskvenna \'ar áhugi um
kröfurnar fyrst í stað, en dofnaði þegar á leið
og var loks samþ. að fallast á tilboð atvinnu-
rekenda, en það hljóðaði upp á kröfu prent-
ara fyrir stúlkur í prentverki.
Á fundi í Bókbindarafélagi Reykjavíkur
sem haldinn var í Goodtemplarahúsinu urðu
nokkrar deilur um þetta brambolt í stúlkun-
um og upp úr því var farið að tala um að
hafa stúlkurnar í sárdeild.
Stofnfundurmn var haldinn 13. marz 1952.
1 stjórn voru kosnar:
Form. Jóna Einarsdóttir.
Ritari, Jóhanna Jónsdóttir.
Gjaldkeri, Hrafnhildur Eiríksdóttir.
Stjórninni var falið að semja reglur fyrir
deildina.
Á aðalfundi 1953 var lagt fram frumvarp
Jóna Einarsdóttir
(form. 1952—57).
Jónína Sigurbergsd.
(form. 1957—60).
að reglugerð fyrir deildina og var það sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum.
Nokkur atriði úr reglugerðinni:
2. gr. Formaður deildarinnar tekur sæti í
stjórn B. F. I.
3. gr. Félagar kvennadeildarinnar greiða
lögskilin gjöld til B. F. I. og njóta lögákveð-
inna réttinda í félaginu. Félagssjóði B. F. I.
ber að greiða allan sérkostnað við rekstur
deildarinnar eftir samkomulagi beggja stjórn-
anna þar að lútandi.
Auk þess greiði félagsjóður B. F. I. 20%
af venjulegum gjöldum deildarfélaga í sér-
sjóð deildarinnar, og getur deildin tekið hann
í sína vörzlu og sett honum nánari reglur,
þegar henni þykir ástæða til.
4. gr. Félagar Kvennadeildar B. F. I. hafa
rétt til að sitja alla fundi þess, með málfrelsi
og tillögurétti svo og atkvæðisrétti eftir því
sem ákveðið er í lögum félagsins, (en þar
segir: Þær hafa atkvæðisrétt um ákvarðanir
varðandi sjóði þá, sem þær eru þátttakendur
í og við fulltrúakjör til Alþýðusambands Is-
lands).
5. gr. Kvennadeildin tekur ákvarðanir um
uppsögn og gerð samninga við atvinnurek-
endur um kaup og kjör, í samráði við stjórn
B. F. I.