Bókbindarinn - 01.03.1962, Qupperneq 6

Bókbindarinn - 01.03.1962, Qupperneq 6
Erik Arentz: Sydhavets vikinger. Bundið í brúnt geitaskinn. Skreyting: Oddgylling eftir Leif Eriksen. Síðan er lagt tvöfalt gull á bókina, þar sem skreytingin á að koma, og teikningin þar of- an á og skal henni fest vandlega á innanvert spjaldið. Við oddgyllingu fara forþrykking og gull- þrykking í rauninni fram í sömu andránni. Meiri hita má nota við oddgyllingu en handgyllingu og er oddgyllirinn því útbú- inn með kúlu ofan við oddinn, sem er eins- konar hitagcymir. (Sjá mynd) Fyrir bragðið er hægt að þrykkja mestum hluta teikningar- innar við hita, sem er um það bil 130 gráður. Þegar gyllingin hefst ber maður oddgyll- inn nákvæmlega að strikunum á teikning- unni, hægt og gætilega, því hitinn þarf sinn tíma til að komast gegnum pappírinn og festa allar línur á skinnið. Þetta verður að lærast smátt og smátt við æfingu. Ef oddurinn skyldi rista gegnum pappírinn, má samt halda gyll- ingunni áfram, því úr því er hægt að bæta, þegar pappírinn er tekinn frá. (Bætt er úr göllunum með því að pcnsla upp með eggja- hvítu gullið sem ekki heldur, draga upp að nýju, leggja pergament yfir og bera gyllinn vel heitan yfir). Þegar lokið er við að gylla bókarspjaldið er allt laust gull fjarlægt með togleðri og síðan er þvegið úr hreinsuðu bensíni til að losna við allt vaselín. Oddgyllingu er einnig hægt að gera með litum í stað gulls. Er þá byrjað á að forþrykkja bókina og litleggur maður síðan tilætlaða hluta (t. d. blóm eða myndir) og fer síðan að eins og áður er lýst. Þegar búið er að oddgylla bók, skal bera á hana safónlakk og fernis, svo gyllingin endist betur. Það getur virzt létt verk og löðurmannlegt að oddgylla, en þó verður sá sem það gerir að kunna góð skil á handgyllingu og allri hennar nákvæmni. Leif Eriksen Osló. Tekið itpp úr Lærebok í handforgylling. — Viðvíkjandi upphleypingunum, þá myndi ég vilja hafa þær eitthvað í líkingu við þetta. (Bokbinderi Arbetaren).

x

Bókbindarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókbindarinn
https://timarit.is/publication/951

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.