Verktækni - 01.09.2002, Qupperneq 3
Samlokufundir
Samlokufundir eru að jafnaði haldnir
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, kl.
12:00 íVerkfræðingahúsi Engjateigi 9.
Félagsmenn fá samlokur og drykki án
endurgjalds en utanfélagsmenn geta
keypt veitingar á vægu verði. Samloku-
fundir eru auglýstir á heimasíðum VFI
ogTFÍ.
Tölvupóstföng
Félagsmenn eru minntir á að senda
upplýsingar um tölvupóstföng sín til
skrifstofunnar, audur@vfi.is eða
audur@tfi.is Einungis þeir sem það vilja
eru settir á póstlista og minntir sérstak-
lega á viðburði á vegum félaganna.
Skilafrestur
Stefnt er að því að næsta tölublað
Verktækni komi út milli jóla og nýárs.
Skilafrestur er til 12. desember. Þeir
sem vilja koma efni í blaðið og/eða
skilaboðum til ritstjóra eru beðnir um
að senda tölvupóst á sigrun@vfi.is eða
sigrun@tfi.is.
Tölvupóstföng félaganna
Verkfræðingafélag íslands: vfi@vfi.is
Tæknifræðingafélag íslands: tfi@tfi.is
Stéttarfélag verkfræðinga: sv@sv.is
Takið frá laugardaginn 1. febrúar 2003!
^ Árshátíð VFÍ verður að venju haldin í Súlnasai Hótel Sögu
fyrsta laugardag í febrúar, sem á næsta ári er 1. febrúar.
Fjóla Sigtiyggsdóttir, verkfræðingur hjá VST, er nú
formaður árshátíðarnefndar. Með henni í nefndinni eru
, Torfi Sigurðsson, verkfræðingur hjá Hönnun og .
Þorvaidur Árnason, verkfræðingur hjá ístak.
Mikil og góð stemmning hefur verið á árshátíðum
undanfarin ár og góð aðsókn. Árshátíðin er mikilvægur þáttur
í starfsemi félagsins þar sem verkfræðingar og
makar þeirra hittast og skemmta sér saman.
Sérstök ástæða er til að þakka fráfarandi formanni,
Ólafi Pétri Pálssyni dósent, sérlega góða frammistöðu
sem formaður árshátíðarnefndar síðastliðin fjögur ár.
Dagskrá verður kynnt síðar en takið strax frá
•yT fyrsta laugardag í febrúar 2003.
LEIÐARINN
Stefnumarkandi álit
Að þessu sinni er rétt að vekja sér-
staka athygli á grein á blaðsíðu 4 um
álit kærunefndar útboðsmála frá því í
september s.l. Þar kemur fram að
vinna ráðgjafa við undirbúning fram-
kvæmda eða mat á umhverfisáhrifum
útilokar þá frá útboði. Búast má við að
álitið muni leiða til nokkurra breyt-
inga á þessu sviði að mati Óskars
Valdimarssonar, forstjóra Fram-
kvæmdasýslu ríkisins. Athygli vekur
að vinna við mat á umhverfisáhrifum,
sem segja má að standi til hliðar við
annan undirbúning framkvæmda, er
talin gefa forskot sem brýtur í bága
við jafnræðisreglu gildandi laga.
Af öðru efni í blaðinu má nefna ít-
arlega grein Guðmundar Nikulásson-
ar, byggingarverkfræðings, um vöru-
hótel Eimskips sem nú er að rísa við
Sundahöfn. Um er að ræða eina
stærstu byggingu landsins sem mun
leysa af hólmi flestar núverandi
vörugeymslur Eimskips á höfuðbor-
garsvæðinu. Gólfflötur er 23.500 fer-
metrar og lofthæðin allt að 18 metr-
ar! I greininni kemur fram að afar
strangar kröfur voru gerðar um slét-
tleika þess hiuta gólfsins sem er
undir þrönggangahillukerfi hússins
en þar er leyfilegt frávik í hæð aðeins
um tveir millimetrar.
Framkvæmdir eru í fullum gangi
og eru að jafnaði 70-100 manns við
störf á svæðinu. Gert er ráð fyrir að
verkinu verði lokið samkvæmt áætl-
un í febrúarmánuði n.k., ellefu mán-
uðum eftir að skrifað var undir verk-
samning.
Verktækni kemur að jafnaði út í
lok hvers mánaðar. Stefnt er að því
að næsta tölublað komi út milli jóla
og nýárs. Að þessu sinni er því skila-
frestur óvenju skammur, efni í næsta
tölublað verður að berast til ritstjóra
eigi síðar en 12. desember n.k.
Sigrún S. Hafstein, ritstjóri.
VERKTÆKNI Engjateigi 9 • 105 Reykjavik Sími: 568 8510 • Simbréf: 568 9703 • Tölvupóstur: sigrun@vfi.is • sigrun@tfi.is Blaðið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaðnefnd: Einar H. Jónsson (TFÍ), Árni Geir Sigurðsson (SV) og Kristinn Andersen (VFÍ) auk ritstjóra. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram i blaóinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Gutenberg • Mynd af Perlunni á forsíðu: Rafn Sigurbjörnsson ■ Aðstoð við útgáfu: Hænir sf. Sími: 533 1850 ■ Fax: 533 1855 utgafa@haenir.is