Verktækni - 01.09.2002, Qupperneq 4
Stefnumarkandi álit kærunefndar útboösmála:
Vinna við undirbúning eða mat á
umhverfisáhrifum útilokar ráðgjafa frá úboði
Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) óskaði
eftir ráðgefandi áliti kærunefndar út-
boðsmála vegna útboðs á hönnun snjó-
flóðavarnargarða á Siglufirði. í útboðinu
var óskað eftir tilboðum í fullnaðarhönn-
un þvergarða yfir byggðina í Siglufirði
og gerð útboðsgagna fyrir garðana. Verk-
fræðistofan Línuhönnun ehf. annaðist
mat á umhverfisáhrifum vegna fram-
kvæmdarinnar. Verkefni stofunnar sem
ráðgjafa fólust í gagnaöflun og samskiptum
við frumhönnuð, verkkaupa og umsjón-
armann verkkaupa, gerð matsáætlunar
og endanlegrar matsskýrsiu vegna fyrir-
hugaðra snjóflóðamannvirkja. Línu-
hönnun gerði síðan tilboð í fullnaðar-
hönnun mannvirkjanna en við opnun
tilboða gerðu aðrir bjóðendur athuga-
semdir við það. í framhaldi af því leitaði
FSR eftir áliti kærunefndarinnar.
I áliti kærunefndarinnar segir að taka
verði afstöðu til þess hvort aðkoma Línu-
hönnunar ehf. við undirbúning verksins
og útboð þess hafi skapað félaginu for-
skot eða valdið vafa um hvort svo sé,
þannig að dregið sé úr trúverðugleika út-
boðsins. Sérstaka athygli vekur að kæru-
nefndin telur ekki máli skipta hvort ráð-
gefandi aðila var gert ljóst í upphafi eða
ekki að hann yrði útilokaður frá útboði.
Kærunefnd útboðsmála telur að vinna
við mat á umhverfisáhrifum geti haft
það í för með sér að ráðgefandi aðili
öðiist forskot miðað við aðra bjóðendur.
Nefndin telur að í undantekningartilvik-
um geti störf ráðgjafa við mat á um-
hverfisáhrifum verið þess eðlis að þeir
teljist hæfir til að taka þátt í útboði. I
umræddu tilviki hafi verkefni Línuhönn-
unar verið mun víðtækari en einföld að-
stoð við gerð matsáætlunar og mats-
skýrslu í þágu mats á umhverfisáhrifum.
Einnig beri að líta til þess að fyrirtækið
er beinlínis tilgreint sem ráðgjafi í samn-
ingi við bæjarsjóð Siglufjarðar og í út-
boðsgögnum. Það er því álit nefndarinn-
ar að það samræmist ekki jafnræðisreglu
11. gr. laga nr. 94/2001 að Línuhönnun
taki þátt í útboðinu.
Sjónarmiö Framkvæmdasýslu ríkisins
ÓskarValdimarsson, forstjóri FSR, segir
álitið stefnumarkandi og mikilvægt að
vekja athygli ráðgjafa á því. „Sjónarmið
Línuhönnunar voru m.a. þau að þar sem
ekki var tekið fram upphaflega í samningi
að fyrirtækið myndi gera sig vanhæft til að
bjóða í hönnunina þá ætti ekki að útiloka
það. Við töldum að með þvf að taka þátt í
undirbúningi hefði Línuhönnun meiri
upplýsingar en aðrir og ákveðið forskot.
Það var því sameiginleg ákvörðun að fá
kærunefndina til að fjalla um málið."
Óskar segir mikilvægt að ítreka að um er
að ræða formlegt álit sem mjög ólíklegt er
að gengið yrði gegn í dómi. „Þar af leiðandi
tel ég þetta vera mikilvægt og stefnumark-
andi. Þá vekur athygli að þama er fjallað um
mat á umhverfisáhrifum sem segja má að
standi nokkuð til hliðar við annan undir-
búning verksins. Það er því athyglisvert að
jafnvel slík vinna er talin gefa forskot."
Óskar telur að þetta muni hafa breyt-
ingar í för með sér. „Við getum nefnt
sem dæmi útboð á ráðgjöf vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. I því tilviki var samið
við ráðgjafahóp en sömu aðilar höfðu
einnig unnið að undirbúningi verksins.
Samkvæmt áliti kærunefndarinnar stenst
þetta ekki áðurnefnt jafnréttisákvæði
laga nr. 94/2001. - Hafi menn forskot er
bannað að láta þá keppa við aðra."Rétt
er að geta þess að FSR hefur unnið
samkvæmt þeirri meginreglu að sá sem
t.d. hefur unnið við frumathugun getur
ekki boðið í hönnunina en hann getur
hins vegar boðið í eftirlitið.
En er þetta ekki erfitt
í framkvæmd á litlum markaði?
„Jú það getur verið það, en þetta er í
sjálfu sér ekki vandamál ef menn eru
meðvitaðir um hverjar reglunar eru.
Þarna er ekki verið að spá í hvað er
sanngjarnt eða skynsamlegt hverju sinni,
reglurnar eru skýrar og eftir þeim á að
fara til að gæta jafnræðis. I þessu sam-
bandi er rétt að benda á að þróunin hef-
ur orðið sú að kærur eru fleiri nú en
áður, enda eiga menn að gæta réttar síns
og við hvetjum menn til að kæra ef þeir
telja að brotið hafi verið á þeim."
Álit kærunefndar útboðsmála sem hér
hefur verið fjallað um verður birt í heild
sinni á vef Framkvæmdasýslunnar:
www.fsr.is (Mál nr. 14/2002)
Með ECL stjórnstöð á hitakerfinu fæst hámarks
nýting á heita vatninu
Danfoss hf.
SKUTUVOGI 6 • SÍMI 510 4100 • www.danfoss@danfoss.is
kill sparnaður í atvinnuhúsnæði