Verktækni - 01.09.2002, Qupperneq 6

Verktækni - 01.09.2002, Qupperneq 6
A? sfjór«arbor4( SV Vísinda- og starfsmenntunarsjóður hjá Ríki Næsti fundur verður haldinn um miðjan desember. Sjóðsfélagar eru beðnir um að skila umsóknum fyrir þann tíma. Um- sóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu SV: http://www.sv.is/. Sjóðurinn er mjög sterkur og eru því sjóðsfélagar enn og aft- ur hvattir til að sækja um styrki. Umsókn- um fjölgaði á síðasta ári og lætur nærri að fjórði hver verkfræðingur sem starfar hjá ríkinu hafi fengið vilyrði um styrk í fyrra. Hægt er að sækja um styrki sem nema allt að kr. 390.000. Árið 2000 var aftur farið að veita styrki til tölvukaupa. Þeir voru þó háðir því að umsækjendur hefðu ekki fengið slíka styrki áður. Nú hefur einnig verið ákveðið að gefa þeim sem áður hafa hlotið tölvustyrk kost á að sækja um slík- an styrk aftur. Skilyrt er að minnst fjögur ár líði á milli styrkveitinga til tölvukaupa. Upphæð tölvu- sfyrkja hefur verið hækkuð í kr. 130.000. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, til kaupa á bók- um, tölvum o.s.frv. Starfsmenntunarsjóöur hjá Reykjavíkurborg Næsti fundur verður haldinn um miðjan desember. Sjóðsfélagar eru beðnir að skila umsóknum fyrir þann tíma. Búið er að hækka upphæð hámarksstyrkja í kr. 390.000 Þá aukast réttindi um 130.000 kr. á ári sem er 30% hækkun. Sjóðsfélagar eru hvattir til að sækja um styrki. Um- sóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu SV: http://www.sv.is/ . Styrkir eru veittir til að sækja nám- skeið og ráðstefnur, til kaupa á bókum, tölvum o.s.frv. Upphæð tölvustyrkja er 130.000 kr. Sporntwg wiána4arít>s hjá SV: Getur verkfræðingur greitt til Lífeyrissjóðs verkfræðinga ef hann starfar erlendis? Svar: Það getur hann gert ef hann svo óskar. Ráði verkfræðingur sig til starfa í Dan- mörku og þiggur laun þar þá getur hins vegar reynst dýrt að greiða til Lífeyrissjóðs verkfræðinga. Ástæðan er sú að skilyrði fyir skattfrelsi greiðslna í lífeyrissjóð af tekjum í Danmörku er að greiðslurnar fari ekki úr landi. Þetta þýðir í raun tvísköttun fyrir þann sem skilar greiðslum í lífeyrissjóð á Islandi af tekjum í Danmörku. Röng upphæð á greiðsluseðli Vegna mistaka er röng upphæð tilgreind á greiðsluseðlum vegna seinni hluta félags- gjalda SV 2002. Upphæðin á seðlinum er kr. 7.700. - en á að sjálfsögðu að vera 7.200,- Akveðið hefur verið að senda ekki út nýja greiðsluseðla en ofgreiddar 500 krónur verða dregnar frá þegar greiðsluseðlar verða sendir út fyrír fyrri hluta árgjalds 2003. Þeir félagsmenn sem greiða með greiðsluseðlum eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Frá Orlofssjóði SV Vakin er athygli á því að þeir sem keypt hafa greiðslumiða fyrir EDDU hótel geta skilað ónotuðum miðum og fengið þá endurgreidda hjá SV. Haust- og vetrarleiga 2002/2003 Hinn nýi sumarbústaður OSV í Hraunborgum í Gn'msnesi stendur félagsmönnum til boða í vetur. Al- menn ánægja er með bústaðinn sem er mjög vel búinn. Bústaðurinn verð- ur til leigu frá fimmtudegi til fimmtudags (á sumrin frá föstudegi til föstudags). Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða á haustin og veturna en áhugasamir eru beðnir að snúa sér beint til skrif- stofu SV: tölvupóstfang: sv@sv.is og sími: 568-9986. Leiguverð: kr. 10.000:-/viku fyrir sjóðsfélaga í Orlofssjóði SV kr. 15.000:-/viku fyrir félagsmenn SV sem ekki eru félagar í Orlofssjóði SV. Uthlutunarregiur eru þær að sá sem fyrstur sækir um viku fær hana að því tilskyldu að hann greiði leigu- gjaldið tveimur dögum eftir úthlutun. r Endurgreiöslur til LIN Á undanförnum mánuðum hefur SV tekið þátt vinnu 17 félagasamtaka um breytingar á endurgreiðslum til Lána- sjóðs íslenskra námsmanna. Grunnur hefur verið lagður að þessari vinnu með verkefni sem Elínborg Sigurðardóttir vann og Þórólfur Mattíasson stýrði. Þar var kannað samspil námslána, lengdar náms og starfstekna. Verið er að vinna að tillögum um málið og verða þær kynntar síðar. Tilkynning frá SV Mjög mismunandi er hvernig stofnanir raða störfum í launaramma og launa- flokka. Verkfræðingar sem hyggjast ráða sig hjá ríki og Reykjavíkurborg em hvattir til að leita sér upplýsinga um röðun hjá viðkomandi stofnun áður en þeir ráða sig þangað til vinnu. Námskeiö í samningatækni Stéttarfélag verkfræðinga býður félögum stutt og hnitmiðað námskeið um samningatækni. Leiðbeinandi er Þuríður Magnúsdóttir, frá fræðslu- og ráðgjafarsviði Iðntækni- stofnunar. Tilefnið er einkum stofnanasamningar ríkisstofnana. Næsta námskeið verður haldið eftir áramót og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við skrif- stofu SV til að skrá sig á námskeiðið. Tölvupóstfangið er: sv@v.is og sími: 568-9986.

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.