Verktækni - 01.09.2002, Blaðsíða 8
Námsstefna Steinsteypufélags Islands:
Sprungur í mannvirkjum
í tilefni af 30 ára afmæli Steinsteypufélags ís-
lands á síðasta ári stendur félagið fyrir opinni
námsstefnu um sprungur í mannvirkjum.
A námsstefnunni verður
m.a. komið inn á eftirfarandi þætti:
• Sprungumyndun í steypu á fyrstu sólar-
hringum hörðnunar. Af hverju stafa þær,
hvers eðlis eru þær, hvaða áhrif hafa þær?
• Undirstöðuatriði rýrnunar, ytri áhrif
s.s. vegna vatns og vinds, áhrif steypu-
þekju og yfirlagna.
• Hvenær er mest hætta á rýrnun?
• Ahrif hefðbundinnar bendingar á
sprungumyndun. Hvernig er tekið á
þessum þáttum í Eurocod 2 staðlinum?
• Aðrar reikniaðferðir til að reikna
sprungubendingu járns og stáltrefja.
• Ný efni og aðferðir til að draga úr
sprungumyndun s.s. með notkun rýrn-
unarvara.
• Ný kynslóð burðarþolstrefja, við hvað
aðstæður henta slíkar trefjar eða önnur
úrræði?
Félagið hefur fengið valinkunna menn til
að ffytja erindi á námsstefnunni. Þeir eru:
• Bruce Perry frá Grace fyrirtækinu en það
er einn stærsti framleiðandi íblöndunar-
efna í heiminum.
• Torfi Sigurðsson, verkfræðingur hjá verk-
fræðistofunni Hönnun hf.
• Thor Arne Hammer frá Sintef rannsókn-
arstofnunni í Noregi.
• Ólafur Wallevik og Hreinn Jónsson verk-
fræðingar hjá Rb.
Námsstefnan verður haldin á Scandic Hótel
Loftleiðum, föstudaginn 6. desember n.k.
kl. 13.00 til 17.00. Ráðstefnugjald er 7.000
krónur og eru ráðstefnugögn innifalin.
Skráning fer fram hjá Steinsteypufélaginu
í síma 860 5044 eða með því að senda tölvu-
póst til steinsteypufelag@steinsteypufelag.is
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst.
fUKTUyJAHíAMBAMD
FLÓA'OC (KflDA
Q^íða leynist auður í iðrum jarðar
við sækjum hatm fyrir þig
Borum eftir heitu og köldu vutni,
gufu, gasi og gulli.
Rannsókna- og vinnsluholur
í llOOm.dýpi.
Ræktunarsamband Flóa og Skeióa ehf.
Gagnheióí 35, 800 Selfoss, Sími 482-3500 Fax 482-2425
www.raekto.is - raekto@raekto.is