Verktækni - 01.09.2002, Page 12
VÖRUHÓTEL EIMSKIPS
framtídin í vörustjórnun
Guðmundur Nikulásson byggingarverk-
fræðingur hefur verið forstöðumaður
rekstrardeildar gámahafnar hjá Eimskip
í Sundahöfn frá 1997. Frá árinu 2000
hefur hann auk þess verið verkefnis-
stjóri með vöruhótelframkvæmdum hjá
Eimskip. í þessari grein segir hann frá
verkefni Eimskips um uppbyggingu á
nýju vöruhóteli á athafnasvæði félagsins
í Sundahöfn en þar er nú verið að reisa
eina af stærstu byggingum landsins sem
er nýtt 300.000 m3 vöruhús, 23.500 m2 að
gólffleti með allt að 18 metra lofthæð.
Þar verður starfrækt vöruhótel sem m.a.
mun leysa af hólmi flestar núverandi
vörugeymslur Eimskips á höfuðborgar-
svæðinu.
Frá fortíð til framtíðar
Allt frá stofnun hf. Eimskipafélags íslands
árið 1914 hafa vörugeymslur gegnt veiga-
miklu hlutverki í starfsemi fyrirtækisins.
Fyrstu áratugina voru vörugeymslur Eim-
skips á víð og dreif um höfuðborgina, en
árið 1968 reis ný vöruskemma Eimskipafé-
lagsins við Austurhöfnina í Reykjavík,
Faxaskáli, og var hún þá stærsta vöru-
skemma landsins. í byrjun áttunda áratug-
arins hófst uppbygging á athafnasvæði
Eimskips í Sundahöfn og á árunum 1973-
1975 voru teknar í notkun fyrstu vöru-
geymslur Eimskips í Sundahöfn, en þar var
um að ræða 14.000 m2 hús með 6 m nýt-
anlegri lofthæð.
Árið 1994 markaði upphafið að þeirri
nútímavæðingu í geymslu og vörudreif-
ingu hjá Eimskip sem í dag telst vera hluti
af hagkerfi nýrrar aldar. Þá opnaði félagið
1.100 m2 vöruhótel í Sundahöfn og hóf að
bjóða upp á sérstaka birgðahaldsþjónustu
fyrir allan vörulager fyrirtækja. Á næstu
árum jókst eftirspurn eftir þessari þjónustu
verulega og var brettaplássum bætt við
jafnt og þétt til að mæta auknum umsvif-
um í starfseminni. Árið 1998 var starfsem-
in rekin í Sundaskála 4 sem þá var orðinn
fullnýttur en það er 4.000 m2 vöruhús með
5.700 brettaplássum.
Vörudreifingarmiðstöðvar (Third Party
Distribution Centers)
Grunnþættir í starfsemi vörudreifingar-
miðstöðva eru birgðahald og dreifing.
Notendur/viðskiptamenn vörudreifing-
armiðstöðva samnýta þar aðstöðu og fá
þannig aðgang að sveigjanlegu og hag-
kvæmu kerfi. Á liðnum áratug hefur út-
hýsing á birgðahaldi og dreifingu á vöru
í Evrópu vaxið mjög og samkvæmt
könnunum hafa nú um 65% alþjóðlegra
fyrirtækja úthýst birgðahaldi og vöru-
dreifingu. Skýringar á þessu eru marg-
víslegar, þar má m.a. nefna nýtt sameig-
inlegt efnahagssvæði án landamæra
(ESB), breytingar og tilfærslur í aðfanga-
keðjunni og stöðugar kröfur um lægri
kostnað ásamt gríðarlega hraðri þróun í
upplýsingatækni sem gerir breytt og
hagkvæmari vinnubrögð möguleg.
Af hverju vöruhótel?
Ástæður fyrir því að fyrirtækjum þykir
hagkvæmt að úthýsa vöruhótelstarfsemi
eru fjölmargar. Á vöruhóteli samnýta aðilar
framleiðslugetu, húsnæði, mannskap,
flutningakerfi, upplýsingakerfi og njóta
frekar hagkvæmni stærðarinnar.Viðskipta-
vinir vöruhótels greiða einungis fyrir það
pláss sem þeir nota hverju sinni og þannig
verður fastur kostnaður í rekstrinum
breytilegur. Sveigjanleiki verður allur meiri