Verktækni - 01.09.2002, Page 14
14
Vöruhótel Eimskips um miðjan október 2002. (Ljósm: Mats Wibe Lund).
14.000 m2 að stærð og rýma um 50 þús-
und fermetra byggingarsvæði. Trúlega eru
þetta einhver mestu niðurrif á húsum frá
upphafi á Islandi. Þróun í geymsluháttum
og breyttar kröfur um þjónustu og vöru-
meðhöndlun gera það að verkum, að
hagkvæmt er að fjarlægja þessar ramm-
gerðu byggingar, til að rýma fyrir nú-
tímalegri og hagkvæmari aðstöðu. Að
auki þurfti að breyta stofnlögnum veitu-
kerfa og umferðarmannvirkjum til að
skapa viðunandi aðkomu og athafnarými
umhverfis húsið. Agæt samvinna hefur
verið við Reykjavíkurhöfn og Reykjavík-
urborg um tilhögun þeirra verka. Þá hef-
ur þurft talsverðar tilfæringar á ýmsum
Guðmundur Nikulásson verkefnisstjóri Eimskips
ásamt verkefnisstjórum frá Groenewout á bygg-
ingarstað í ágústmánuði.
#
Heimsókn BVFI í vöruhótel Eimskips
Þriðjudaginn 29. október s.l. fór yfir 50 manna hópur úr Byggingarverkfræðingadeild WÍ
(BWÍ) í skoðunarferð íVöruhótel Eimskips við Sundabakka 2 sem nú er í byggingu.
Heimsóknin hófst á því að Guðmundur Nikulásson forstöðumaður hjá Eimskip, kynnti
aðdraganda að byggingu Vöruhótelsins og hve þróunin hefur verið hröð í þessum geira
síðustu ár. Guðmundur sýndi fjölmargar myndir af framkvæmdasvæðinu ásamt því að
sýna tölvugert myndband af innviðum hússins og fyrirhugaðri starfsemi.
Á eftir Guðmundi tók Sævar Þorbjörnsson, verkefnisstjóri hjá IAV til máls og lýsti að-
komu ÍAV að verkinu, en það er unnið í alverktöku. Sævar lýsti helstu atriðum bygging-
arinnar og þá sérstaklega framkvæmdum við botnplötu. Sýnt var nýlegt myndband sem
tekið var við niðurlögn steypu í botnplötu hússins en það verk var alfarið unnið af er-
lendum aðilum sem sérhæfa sig í gólfútlögn með mikilli nákvæmni.
Eftir fýrirlestrana fór hópurinn í skoðunarferð um bygginguna undir leiðsögn þeirra
Guðmundar og Sævars. Heilmiklar umræður spunnust milli manna og var ferðin bæði
fróðleg og skemmtileg.
Gestir þáðu kaffi og meðlæti á meðan byggingin var kynnt. Heimsóknin stóð frá kl.
8.30 til kl. 10.00. Stjórn BWÍ vill þakka Eimskip og íslenskum Aðalverktökum fýrir afar
góðar móttökur.
Ari Guðmundsson, ritari BVFÍ
þáttum í daglegri starfsemi Eimskips í
Sundahöfn og ýmsum bráðabirgðaráð-
stöfunum svo sem uppsetningu á 1.500
m2 geymslutjaldi ofl. Þrátt fyrir truflun á
svæðinu vegna þessara stórframkvæmda
hefur starfsemi Eimskips gengið vel á
framkvæmdatíma enda starfsmenn og
verktakar lagt sig alla fram um að láta
hluti ganga vel. Framkvæmdirnar hafa
einnig mætt afar góðum skilningi meðal
viðskiptavina félagsins.
Eins og áður sagði reisa Islenskir aðal-
verktakar nýbygginguna og annast einnig
allan lóðarfrágang innan lóðar Eimskips.
Fleygtak ehf. hefur annast rif á Sundaskála
1 og 2, en byggingin hefur verið rifin í
áföngum og verða síðustu áfangar gömlu
húsanna ekki rifnir fyrr en starfsemi er haf-
in í nýbyggingunni. Loftorka Reykjavík sá
um breytingar á samgöngumannvirkjum.
Sóknarfæri í birgöahaldi og dreifingu
Vöruhótelið mun taka við allri þurrvöru-
húsastarfsemi Eimskips í Reykjavík og
vöruhúsastarfsemi TVG-Zimsen. Rekstur
starfseminnar verður í sérstöku hlutafé-
lagi, Vöruhótelinu ehf., sem er í eigu Eim-
skips ogTVG-Zimsen. Vöruhótelið ehf.
verður með sjálfstæðan rekstur og býður
fram þjónustu sína á innanlandsmarkaði
þótt viðskiptavinir Eimskips í sjóflutn-
ingaþjónustu verði væntanlega í hópi
stærstu viðskiptavina. Starfsemi vöruhót-
els verður tengd við öflugt samhæft
dreifikerfi Eimskips.
Með nýja húsinu mun vinnupláss
aukast og öll aðstaða batna til muna, auk
þess sem tekið verður í notkun mjög sér-
hæft og fullkomið vöruhúsakerfi sem er
það fullkomnasta á landinu til þessa. Á
aðalgólfi hússins verða vörumótaka og
vöruafhending auk geymslusvæða fyrir
vörur í brettahillum. Nýtanleg lofthæð á
geymslusvæðum hússins er 15 metrar.
Geymslugeta hússins er um 21.000
brettapláss. Á milligólfi verður aðstaða
fyrir geymslu og tínslu á smærri eining-
um og auk þess á þriðja þúsund fermetra
sem innrétta má sem skrifstofur eða
undir aðra starfsemi tengda vöruhótel-
inu. Þar er einnig mötuneyti og önnur
aðstaða fyrir starfsmenn á svæðinu.
Heildarfjárfesting Eimskips í bygging-
um, geymslukerfum, hugbúnaði og öðru
sem tengist þessu verkefni er um 2 millj-
arðar króna. ÞegarVöruhótel Eimskips er
risið og starfsemin komin í gang, mun það
skapa Eimskip aukin tækifæri til að koma
á móts við þarfir viðskiptavina um heildar-
lausnir. Gert er ráð fyrir að vöruhótelið
verði tekið í notkun í mars 2003.