Verktækni - 01.09.2002, Page 22
Landvinningar íslenskra tæknimanna
Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræð-
ingur og starfsmaður Fjarhitunar var ný-
verið í Peking í Kína vegna samstarfs-
verkefnis Islendinga og Kínverja um gerð
hitaveitu þar í borg. Um er að ræða lagn-
ingu hitaveitu fyrir nýtt hverfi í Peking
sem svarar til um 400.000 fermetra hús-
næðis. Fjarhitun hefur áður komið að
verkefnum tengdum hitaveitu í Kína, m.a.
hannað hitaveitu íTanggu.
A meðfylgjandi mynd sést Þorleikur
gnæfa yfir"Alþýðuherinn"!
Talan 2002 er eins hvort sem hún er lesin
aftur á bak eða áfram. Slíkar tölur kallast
palindromiskar tölur. Við erum svo heppin
að upplifa tvö palindromisk ártöl þ.e. 1991
og 2002. Eftir árið þúsund er það einungis
í kringum árþúsundaskipti sem slík ártöl
eru með svo stuttu millibili. Yfirleitt eru
110 ár á milli slíkra ártala.
I stórum dráttum er hægt að breyta öllum
tölum í palindromiskar með aðstoð ein-
faldrar reglu: Veljið tölu, t.d. 87.Víxlið tölu-
stöfunum og leggir tölurnar tvær saman. 87
+ 78 = 165. Þetta er ekki palindromiskt svo
við endurtökum leikinn. 165 + 561 = 726.
Enn þurfum við að skipta. 726 + 627 = 1353.
Og enn einu sinni. 1353 + 3531 = 4884. -
Og þama er komin palindromisk tala.
Lengi var talið að niðurstaðan yrði alltaf
palindromisk ef fyrrgreindri aðferð væri
beitt, óháð því hver upphafstalan
væri. En nú eru menn
famir að efast. A ámn-
um 1987-1990 rann-
sakaði maður að
nafni John Walker
töluna 196. Áður en
tölvan hans gafst
upp, eftir þrjú ár,
gerði hann
2.415.836 aðgerðir
og endaði með tölu
með meira en milljón stöfum. -
En hún var ekki palindromisk. Þegar síðast
fréttist af verkefninu var búið víxla og reikna
9,5 milljón sinnum og komin tala með næst-
um fimm milljón stöfum en hún var ekki
palindromisk. Hvort sú niðurstaða fæst
nokkurn tímann er ekki vitað. Eitt er víst.
Einhvers-
staðar í heiminum
er tölva sem heldur áfram að reikna. Aðeins
einni annarri tölu lægri en 1000 hefur ekki
verið breytt í palindromiska tölu en það er
talan 887 (summan af 196 og 691).
(Ingeni0ren nr. 1/ 2002)