Verktækni - 01.07.2003, Blaðsíða 1
’=^A.
Stéttarfélag verkfræöinga Tæknifræöingafélag íslands Verkfræðingafélag íslands
10
Endurbætur á
rannsóknaskipi
12
Kárahnjúkavirkjun
14
Námskeið
16
NIM 2003
22
VerkTækni
golfmótið
Kárahnjúkavirkjun
Dagana 12. og 13. september s.l. stóðuVFÍ og
TFÍ fyrir skoðunarferð á Kárahnjúkasvæðið.
Mikill áhugi var fyrir ferðinni sem tókst í alla
staði mjög vel. Sagt er frá ferðinni í máli og
myndum á bls. 12
Á myndinni hér að ofan má sjá starfsmenn
verktakaíyrirtækisins Arnarfells á Akureyri skafa
jarðveg af klöppum í hlíð Fremri-Kárahnjúks.
Verkinu er um það bil að ljúka, verður jafnvel
lokið þegar þetta birtist á prenti. Amarfell hóf
þetta verk í sumar langt uppi í fjallshlíðinni.
Tæki fyrirtækisins og tól hafa síðan fikrað sig
niður brattann og rutt á undan sér jarðvegi niður
í beljandi jökulfljótið. Ekki mátti á tæpara standa
að hægt væri að nota þessa aðferð við að koma
jarðefnum í burtu því rennsli árinnar fór að
minnka strax og kólnaði í veðri. Rennslið verður
að vera 200 rúmmetrar en það er lágmark sem
sett var þegar heimild var veitt til að ryðja jarð-
vegi niður í ána. Þess má geta að meðalrennsli
Jöklu að sumri er 600 rúmmetrar en var óvenju
mikið í sumar eða á bilinu 700-900 rúmmetrar.
Þegar hreinsun Arnarfells á hnjúknum er lokið
tekur við undirbúningur fyrir sjálfa stíflugerð-
ina. Kárahnjúkastífa verður 730 m löng og 190
m há grjótstífla með steyptri þéttikápu á vatns-
hliðinni. Stíflan verður meðal þeirra stærstu í
heiminum af þessari gerð og sú hæsta í Evr-
ópu. Austan við Kárahnjúkastíflu, í drögurn
undir Fremri-Kárahnjúki, verður Desjarárstífla
og í dalverpi að vestanverðu verður Sauðár-
dalstífla. Saman mynda þessar stíflur Hálslón
sem verður 57 ferkflómetrar að stærð.
Heimild: www.karahnjukar.is en þar má finna
fréttir af framkvæmdum á Kárahnjúkasvæðinu.
6
NIL 40