Verktækni - 01.07.2003, Blaðsíða 8
Bækur
Handbók í hönnun rafkerfa
Á vegum Rafstaðlaráðs, er komin út á
netinu: Handbók í hönnun rafkerfa.
Bókin er vistuð á heimasíðu Staðla-
ráðs (www.stadlar.is).
Stjórn Rafstaðlaráðs íslands ákvað í
ársbyrjun 1995 að stofna nefnd, sem
fengi það verkefni að útbúa handbók,
sem fyrst og fremst nýttist til kennslu
fagmanna á raftæknisviðinu og einnig
sem handbók fyrir sömu aðila. Fagmenn
nota mikið mismunandi gögn, og koma
því oft upp þau tilvik, að þessir aðilar
tala ekki sama mál, þegar þeir bera sam-
an bækur sínar.
Reynt var að fá ýmsa aðila til að til-
nefna fulltrúa í nefnd, sem kæmi til með
að sjá um verkið og virkja hina ýmsu
hagsmunaaðila til starfa, en aðeins tókst
að fá fjóra tilnefnda, og heltist einn
fljótlega úr lestinni. Þeir, sem eftir urðu
og hafa séð um útgáfuna, eru þeir Gísli
Júlíusson, fulltrúi Landsvirkjunar, Jón
Björn Helgason, frá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Kjartan Steinbach frá
Verkfræðistofunni Afli og Orku.
Jón Björn Helgason lést á árinu 1997.
Heimir Jón Guðjónsson frá Fræðslumið-
stöð rafiðnaðarins, Sigurður Geirsson frá
Rafiðnaðarskólanum og Sigurður Sig-
urðarson hjá Staðlaráði hafa verið
nefndinni til aðstoðar, og hafa Rafiðnað-
arskólinn og Staðlaráð veitt nefndinni
aðstöðu. Ásgrímur Jónasson raftækni-
fræðingur var fenginn til að halda utan
um starfið með formanni.
Þau gögn, sem handbókin byggist á,
eru nýja IEC 617 staðlaröðin, sem verður
ÍST 617 og kemur í staðinn fyrir ÍST 117
og IEC 1082, sem orðinn er að evrópsk-
um staðli EN 61082 og þar með íslensk-
ur staðall. Einnig er þýski forstaðallinn
DINV 6779-1 og -2 hafður til hliðsjónar
ofl. IST 117 var á sínum tíma þýddur á
íslensku, að mestu leyti af Orðanefnd
rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræð-
ingafélags Islands, og eru þær þýðingar
notaðar, að svo miklu Ieyti, sem ekki
hefur verið breytt frá honum.
Handbókin endurspeglar það nýjasta í
rafstaðlamálum, en breytingar á stöðlum
eru sífellt á ferðinni.
Teknisk Forlag A/S í Danmörku gaf út
handbók, sem nefnist E1 Diagram
Hándbogen í annað sinn 1991, og hafa
þeir vinsamlegast gefið leyfi til að hafa
hana til hliðsjónar fyrir mjög hóflegt
gjald.
Farið hefur verið eftir dönsku hand-
bókinni, í aðalatriðum, en nokkuð stytt,
þar sem þetta er útgáfa, sem vonandi
verður bætt við.
Gísli Júlíusson þýddi dönsku Hand-
bókina, að mestu, og er sú þýðing
grunnur bókarinnar. Hreinn Jónasson
raftæknifræðingur las þýðinguna yfir, og
kom með gagnlegar ábendingar.
Ætlunin með bókinni er að hún nýtist
til að samræma vinnu hönnuða, þar sem
nú virðist ríkja mikið ósamræmi á milli
þeirra. Einnig er von til að hún nýtist til
kennslu í skólum og fyrir þá, sem vinna
eftir teikningum.
Það er von Rafstaðlaráðs að bókinni
verði vel tekið, þar sem greinileg þörf er
fyrir slíka handbók.
Bókinni er ekki að fullu lokið og hefur
verið ákveðið að setja hana á Netið, til
að byrja með, þar sem auðvelt er að
bæta við og breyta.
Sigurður Sigurðarson, ritari Rafstaðla-
ráðs, tók að sér að sjá um það.
Bókin mun líklegast verða í sífelldri
endurskoðun, og eru notendur hennar
vinsamlegast beðnir að láta Rafstaðlaráð
vita um tillögur að endurbótum, sem
þeim kynni að detta í hug.
Unnt er að kaupa afrit hjá Staðlaráði
fyrir 4000 krónur.
Útgefandi: Rafstaðlaráð
Gísli Júlíusson, rafmagnsverkfræðingur.
APC miðlaraskápar
- Rekstraröryggi og skalanleiki í fyrirrúmi
APC InfraStruXure er skalanleg lausn fyrir tölvusali og tölvuherbergi af
öllum stærðum og gerðum.
Byggir á tveggja metra 19" UPS og miðlaraskápum sem hýsa varaaflið
sem samanstendur af útskiptanlegum einingum í fullum rekstri.
Kælikerfi er hannað inn í miðlaraskápana.
Sparar rými og hýsir búnað frá flestum framleiðendum á sviði
netbúnaðar og miðlara.
Lausn fyrir fyrirtæki sem leggja mikla áherslu á rekstraröryggi og
skalanleika upplýsingakerfa sinna.
Mánari upplýsingar veita APC sérfræðingar Mýherja.
Einnig má nálgast upplýsingar á www.apc.com.
CQ>
NÝHERJI
INIÝHERJI HF BORGARTÚNI 37 - SÍMI 569 7700 - http://www.nyhorji.is
„Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á rekstraröryggi
upplýsingakerfa okkar. Við völdum APC InfraStruXure
miðlarasamstæðu frá Nýherja en vörur frá APC hafa
reynst okkur mjög vel. Það er öruggt að
miðlarasamstæðan mun auka við rekstraröryggi
upplýsingakerfa KPMG og erum við sérlega ánægðir með
þá staðreynd að allar einingar lausnarinnar eru
útskiptanlegar í fullum rekstri".
Olafur Róbert Rafnsson
Forstöðumaður upplýsingatæknideildar KPMG