Verktækni - 01.07.2003, Blaðsíða 12
Ferðasaga
Skoðunarferð að Kárahnjúkavirkjun
Dagana 12. til 13. september héldu tækni-
fræðingar og verkfræðingar í skoðunarferð
að Kárahnjúkavirkjun. Hluti hópsins fór á
eigin jeppum á föstudagsmorgni og ók
sem leið liggur að Hrauneyjum og síðan
yfir Sprengisand að Mývatni þar sem
ferðafólkið gisti. A laugardaginn var síðan
haldið að Kárahnjúkum. Annar hópur
flaug til Egilsstaða að morgni laugardags.
Á Egilsstöðum tók Guðmundur Pétursson,
staðarverkfræðingur Landsvirkjunar við
Kárahnjúkavirkjun á móti hópnum. Guð-
mundur fór fyrst með hópinn í Upplýs-
ingamiðstöð Landsvirkjunar á Egilsstöðum
þar sem ferðalangar fengu gott yfirlit yfir
virkjunarsvæðið og línustæði. Þar er að
finna líkan af svæðinu, einnig af borvél
eins og þeim sem notaðar verða.
Á leiðinni frá Egilsstöðum var farið inn að
stöðvarhúsi og komið við á Teigsbjargi við
aðkomugöng 1. Um eitt hundrað manns
munu vinna við byggingu stöðvarhússins
sem verður neðanjarðar. Fulltrúar Lands-
virkjunar og Fosskrafts JV undirrituðu
nokkrum dögum áður samning upp á 8,3
milljarða króna um gerð stöðvarhússhvelf-
ingarinnar. Heildarfallhæð, frá Hálslóni í
stöðvarhús, er um 599 metrar. Mesta mögu-
Iega rennsli er 144 rúmmetrar á sekúndu.
Á leiðinni að Kárahnjúkum nutu ferða-
langar Iifandi frásagnar Guðmundar Pét-
urssonar, sem svaraði einnig fjölmörgum
spurningum. Þegar í Kárahnjúka kom bauð
Landsvirkjun til málsverðar. Að málsverði
loknum bættust jeppamenn í rútuna og var
haldið í skoðunarferð um svæðið í fylgd
Páls Ólafssonar verkfræðings. Páll starfar
hjá fyrirtækjahópnum VIJV við fram-
kvæmdaeftirlit. Hópurinn samanstendur af
Línuhönnun, Hnit og Fjarhitun og erlendu
fyrirtækjunum Mott MacDonald Limited,
SWECO Intemational AB, Norconsult AS
og Coyne et Bellier. Eftirlitið nær yfir verk
sem varða stíflurnar við Kárahnjúka, að-
rennslisgöng og göng að Jökulsá í Hjótsdal.
Óhætt er að segja að umhverfi virkjun-
arinnar er afar stórbrotið og áhugavert að
skoða og ekki spillti fyrir fróðleg frásögn
Páls. Að lokinni skoðunarferð fóru jeppa-
menn áleiðis til Akureyrar en flugfarþegar
fóru áleiðis til Egilsstaða með viðkomu við
Laugafell og síðar í Skriðuklaustri.
Sveinn Sigurbjarnarson hjá TANNI
Travel var bilstjóri í ferðinni og tók við
leiðsögn af þeim Guðmundi og Páli. Sagði
hann margar skemmtilegar sögur af Fljóts-
dælingum, gamlar og nýjar.
Heim komu menn fróðari um stærstu
framkvæmd Islandssögunnar og gróðurfar
og mannlíf á austurlandi.
Rútu-punktar
Ferðalangar nutu frábærrar leiðsagnar
Guðmundar Péturssonar og Páls Ólafssonar.
Hér fyrir neðan má lesa minnispunkta sem
vom hripaðir niður í flýti eftir þeim félögum.
Lesendur virða vonandi viljann fyrir verkið.
Notaðar verða þrjár 3 Mw borvélar sem
á ensku em kallaðar „mole" eða mold-
varpa.Vélarnar eru ferlíki að stærð, 80-100
metrar og hver þeirra vegur 1000 tonn. Þær
naga sig inn í bergið og miklir stálarmar
spyrna vélinni áfram eftir því sem verkinu
miðar og jafnóðum em lagðir teinar til að
flytja efni frá. Stærsta stykkið í borvélunum
vegur 120 tonn. Tvær vélanna em spánnýj-
ar en sú þriðja er uppgerð og var notuð við
neðanjarðarlestarkerfið í NewYork. Fyrsta
borvélin kemur hingað til lands í október.
í fyrsta sinn verða færibönd notuð hér á
landi við stíflugerð. Impreglio flutti þau
hingað til lands frá Kína. Grjótið er
sprengt og flokkað og flutt frá mulnings-
stöð í stíflu með færibandi.
Hálslónið verður að svipaðri stærð og
Lögurinn, Blöndulón og Mývatn. Miðlun-
arrýmið er 2100 gígalítar og vatnsborðs-
sveiflan er óvenju mikil, 75 metrar.
Utlendingar sem starfa á svæðinu nú em
um 500. Framkvæmdirnar skullu hastarleg-
ar á búist var við og því ekki að undra að
ýmis vandkvæði komi upp. Mikið hefur
verið flutt inn af tmkkum og öðmm farar-
ZRLU)
J Lampar og perur
FiliPPÍ
Veko
-ŒsnniiBD-
B«ö)
www.falkinn.is
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKIN N
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 540 7000
Fax: 540 7001 • Netfang: falkinn@falkinn.is
- Lætur Ijós sitt skina