Verktækni - 01.07.2003, Page 4
A? sfjórnarbor4i Sv/
Vísinda- og
starfsmenntunarsjóður hjá Ríki
Næsti fundur verður haldinn um miðjan
desember. Sjóðfélagar eru beðnir um að
skila umsóknum fyrir þann tíma. Umsókn-
areyðublöð má nálgast á heimasíðu SV:
http://www.sv.is/. Sjóðurinn er mjög sterkur
og eru því sjóðfélagar enn og aftur hvattir
til að sækja um styrki. Alls voru greiddar kr.
10,6 milljónir til 62 styrkþega á árinu 2002.
Hægt er að sækja um styrki sem nema allt
að kr. 390.000. Árið 2000 var aftur farið að
veita styrki til tölvukaupa. Þeir vom þó háðir
því að umsækjendur hefðu ekki fengið slíka
styrki áður. Nú hefur einnig verið ákveðið að
gefa þeim sem áður hafa hlotið tölvustyrk
kost á að sækja um slíkan styrk aftur. Skilyrt
er að minnst fjögur ár líði á milli styrkveit-
inga til tölvukaupa. Upphæð tölvustyrkja
hefur verið hækkuð í kr. 130.000. Styrkir em
veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur,
til kaupa á bókum, tölvum o.fl.
Starfs-
menntunarsjóður
Reykjavíkurborg og sveitarfélögum
Næsti fundur verður haldinn um miðjan
desember. Sjóðfélagar eru beðnir að skila
umsóknum fyrir þann tíma. Upphæð há-
marksstyrkja er kr. 390.000. Réttindi
aukast um kr. 130.000 á ári. Sjóðfélagar
em hvattir til að sækja um styrki.Vakin er
athygli á því að þeir verkfræðingar sem
starfa hjá sveitarfélögum sem gefa Launa-
nefnd sveitarfélaga umboð til samninga
við SV eiga aðild að sjóðnum. Þegar árs-
reikningur sjóðsins 2002 er skoðaður
kemur í ljós að veittir vom alls tólf styrkir
að upphæð 1,8 milljón króna. Eigið fé
sjóðsins við lok ársins 2002 var rúmlega
sex milljónir. Umsóknareyðublöð má nálg-
ast á heimasíðu SV: http://www.sv.is/ .
Styrkir em veittir til að sækja námskeið
og ráðstefnur, til kaupa á bókum, tölvum
o.fl. Upphæð tölvustyrkja er kr. 130.000.
Spurning wiána4arins hjá SV:
Ef verkfræðingur segir upp störfum á hann þá rétt á
að taka orlof á uppsagnarfrestinum óski hann þess?
Svar: Verkfræðingurinn verður að vinna út uppsagnarfrest sé þess krafist. Hann á þess
einungis kost að semja um að losna fyrr. Eigi hann inni orlof á að gera það upp í lok
ráðningarinnar. Ekki fyrr. Eigi hann inni orlof frá fyrri orlofstímabilum á hann væntanlega
rétt á því að taka það út á uppsagnarfresti. Hvenær á því tímabili er samkomulagsatriði.
Hann gæti því þurft að sæta því að taka það strax út og mæta svo í vinnu eftir einn mán-
uð og vinna út uppsagnarfrestinn. Um það þarf líka að semja. Vinnuveitendur sjá sér oft-
ast hag í því að semja um að starfsmaður taki orlof inn í uppsagnarfrest. Ástæðan er sú
að starfsmaðurinn er oft „með hugann við" nýja starfið á uppsagnarfresti.
Tímabundinn
vinnustaður
Stéttarfélag verkfræðinga minnir á
að í kjarasamningi SV/KTFÍ við FRV
er ákvæði um tímabundinn vinnustað.
Samkomulag um breytingar á þessu
ákvæði var gert í júní síðastliðnum.
Hér er þetta samkomulag birt:
SAMKOMULAG
Við undirritun kjarasamnings milli Félags
ráðgjafarverkfræðinga (FRV) annars vegar og
Stéttarfélags verkfræðinga (SV) og Kjarafé-
lags Tæknifræðingafélags íslands (K'i'F'l) hins
vegar þann 16. febrúar 2001 var jafnframt
undirrituð bókun þar sem samningsaðilar
ákváðu að taka til sérstakrar skoðunar ákvæði
kafla 3.3. um tímabundinn vinnustað.
Samninganefndir aðila hafa orðið ásáttar
um að eftirfarandi breyting verði gerð á kafla
3.3 við næstu endurskoðun samningsins, en
núverandi samningur rennur út í árslok 2003.
Eftirfarandi ákvæði bætist við kjara-
samning aðila sem grein 3.3.2.3:
Sé tímabundinn vinnustaður utan fastrar
byggðar ss. við framkvæmdir á hálendi ís-
lands eða hliðstætt, ber vinnuveitanda og
starfsmanni að gera skriflegan samning sín á
milli um staðaruppbót o.fl. f slíkum samningi
skal að lágmarki kveðið á um eftirfarandi:
Frá Orlofssjóöi SV
Vetrarleiga 2003/2004
I haust og vetur standa félagsmönn-
um til boða tveir bústaðir OSV í
Hraunborgum í Grímsnesi.Verið er
að kanna aðra gistimöguleika og eru
félagsmenn hvattir til að koma með
ábendingar um áhugaverða staði.
Vetrarh'mabilið hófst 30. ágúst. Mikið
er bókað fram að áramótum. Bústað-
irnir, sem eru mjög vel búnir, eru til
leigu frá fimmtudegi til fimmtudags
(á sumrin frá föstudegi til föstudags).
Ekki er um sérstök umsóknareyðu-
blöð að ræða á veturna en áhuga-
samir eru beðnir að snúa sér beint
til skrifstofu SV, tölvupóstfang:
margret@sv.is og sími: 568-9986.
Leiguverð: Kr. 10.000/viku fyrir
sjóðfélaga í Orlofssjóði SV.
Kr. 15.000/viku fyrir félagsmenn SV
sem ekki eru félagar í Orlofssjóði SV.
UthluhinaiTeglur eru þær að sá
sem fyrstur sækir um viku fær hana
að því tilskildu að hann greiði leigu-
gjaldið tveimur dögum eftir úthlutun.
Námskeið í samningatækni
Stéttarfélag verkfræðinga býður félags-
mönnum stutt og hnitmiðað námskeið í
samningatækni. Leiðbeinandi er Þuríður
Magnúsdóttir, frá fræðslu- og ráðgjafar-
sviði Iðntæknistofnunar. Tilefnið er eink-
um stofnanasamningar ríkisstofnana.
Næsta námskeið verður haldið um leið
og næg þátttaka fæst. Áhugasamir eru
hvattir til að hafa samband við skrifstofu
SV til að skrá sig á námskeiðið. Tölvu-
póstfangið er: sv@sv.is og sími: 568-9986.
a) Tímalengd verkefnis
b) Vinnutilhögun starfsmanns
c) Launaauka til starfsmanns (staðamppbót)
d) Tiðni ferða til og frá heimili starfsmanns.
Núverandi ákvæði greinar 3.3.2.3. verður við
endurskoðun kjarasamningsins grein 3.3.2.4.
Aðilar að samkomulagi þessu mælast til
þess að vinnuveitendur og starfsmenn taki
þegar mið af hinu nýja ákvæði ef starfsmað-
ur er settur til vinnu utan fastrar byggðar.
StéttarfélagVerkfræðinga bendir á dæmi á
heimasíðu sinni um launaútreikning vegna
vinnu á fjöllum. Dæmin má finna undir val-
stikunni kjarasamningar, vinstra megin á
síðunni. Slóðin er: http://www.sv.is/