Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 1
Starfsmat
8
NIL41
10
Rýni 2004
12
Útkall
til Haítí
Rainrace
14
IEEE
viðurkenningar
Borhola á Hellisheiði.
Fyrsta djúpborholan
Kaflaskil eru að verða í íslenska djúpborun-
arverkefninu - IDDP (Iceland Deep Drilling
Project) því nú er í sjónmáli að bora fyrstu
djúpborholuna hérlendis. Undirbúningur hefur
staðið yfir undanfarin 4-5 ár. Markmiðið er að
kanna rætur háhitasvæðanna og hvort unnt sé
að ná 5-10-falt meira afli úr slíkum holum um-
fram venjulegar háhitaholur, sem að meðaltali
gefa 4-5 MWe. Guðmundur Ómar Friðleifsson,
sérfræðingur í jarðfræði hjá íslenskum orku-
rannsóknum (ISOR) kynnti verkefnið á Sam-
lokufundi WÍ ogTFÍ 4. nóvember s.l.
Stefnt er að því að bora þrjár djúpborholur,
eða IDDP-borholur, á næstu fimmtán árum.
Fyrsta holan verður á vinnslusvæði Hitaveitu
Suðumesja. Holan verður boruð í þremur áföng-
um á næstu þremur árum. Fyrst verður borað
niður á 2,7 km dýpi, sem er dýpt venjulegrar
vinnsluholu, en síðan verður holan dýpkuð í
tveimur áföngum, fyrst í 4 km og síðan niður á 5
km dýpi. Markmiðið er að finna jarðhitavökva í
svokölluðu yfimrarksástandi (supercritical
condition). Á svo miklu dýpi vonast menn til að
geta nálgast 400-600 gráða heita háhitagufu.
Venjuleg háhitagufa er er um 240-280 gráða
heit. Áætlaður bor- og rannsóknakostnaður við
fyrstu holuna er á bilinu 1,5-2,5 milljarðar króna.
Mörgum spurningum er ósvarað um eðli há-
hitasvæðanna á 4-5 km dýpi, en stærstu spurn-
ingamar snúa að vatnslekt og hita. Ef hvort
tveggja er til staðar er vel hugsanlegt að marg-
falda megi orkuvinnslu á núverandi vinnslu-
svæðum orkuveitnanna. Djúpborunarverkefnið
varðar því í raun orkubúskap þjóðarinnar.
Nánari upplýsingar eru á vef íslenska djúp-
borunarverkefnisins: www.iddp.is
Ljósm. Morgunblaðið