Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 9
VERKTÆKNI / 09
flutningi hámenntaðs vinnuafls og könnun
meðal 2000 verkfræðinga og verkfræði-
nema í Póllandi. Varðandi könnunina í Pól-
landi kom í ljós að það sem pólskur verk-
fræðingur leggur áherslu á varðandi flutn-
ing til Danmerkur er starfsöryggi og góð
laun sem og starfsþróun. Sérstaklega töldu
pólskir verkfræðingar eftirsóknarvert að
vinna hjá þekktum fyrirtækjum. Margir
höfðu spáð því að pólskir verkfræðingar
myndu flykkjast til Danmerkur eftir stækk-
un ESB 1. maí 2004 en sú var alls ekki
raunin. Aðeins 4 pólskir verkfræðingar
hafa fengið atvinnuleyfi frá maí 2004-
október sama ár.
Helstu niðurstöður könnunar IDA voru
þær að stækkun ESB væri áfangi á leið al-
þjóðavæðingar sem aldrei tekur enda.
Staða Norðurlandanna væri sterk þar sem
þar væri tæknimenntað fólk mjög „fram-
takssamt". Fyrirtæki myndu frekar opna
útibú í austur- Evrópu en að sækja þangað
verkfræðinga. Stór fyrirtæki beggja vegna
Atlantsála telja s.k. „brain-circulation" afar
mikilvæga. Hún byggist á því að vel
menntað fólk líti á allan heiminn sem sitt
atvinnusvæði.
Þegar reglur/tilskipanir ESB eru skoðað-
ar nánar kemur í ljós að þær eru lágmarks-
kröfur aðildarlandanna. Reglur og samn-
ingar á vinnumarkaði eru mismunandi
milli landa ESB.
Það sem komið hefur á óvart er hve
flutningur vinnuafls frá austri til vesturs
hefur verið lítill við stækkun ESB. Ýmsar
skýringar hafa verið nefndar bæði ýmiss
konar hindranir í formi reglugerða og
einnig félagslegar ástæður sem talið er að
vegi þungt. Spár um þróunina eru mjög
mismunandi en talið er að flutningur
vinnuafls styrki innviði hvers lands fyrir
sig. Sérstaklega er tekið fram að þetta eigi
við um hámenntað starfsfólk.
Vinnuhópar og verkefni þeirra
Þar sem fundarmenn voru margir var unnið
í hópum og eftirfarandi málefni tekin fyrir:
• Áhrif stéttarfélaga á vinnustöðum
• Vinnutími
• Atvinnuöryggi
• Óhefðbundnar ráðningar
• Starfsþróun/Hæfniskröfur
Þegar rætt var um áhrif stéttarfélaga á
vinnustöðum kom í ljós að t.d. í Svíþjóð,
þar sem rík hefð er fyrir vinnustaðasamn-
ingum, liafa laun verkfræðinga hækkað
minna en margra annarra svokallaðra
viðmiðunarhópa. Ýmsar skýringar voru
nefndar m.a. meiri harka atvinnurekenda,
verra efnahagsástand o.fl. Sérstaklega var
sem hugsanleg skýring í opinbera geiran-
um nefnd lög um áhrif starfsmanna í
stofnunum. Þau hefðu leitt til þess að
yfirmenn ættu auðveldara með að sleppa
við gerð vinnustaðasamninga. CF er með
mjög öflugt trúnaðarmannakerfi en svo
virðist sem æ erfiðara sé að fá fólk til að
gerast trúnaðarmenn.
Vinnutímatilskipun
Búið er að leggja til breytingar á vinnutíma-
tilskipun ESB. Breytingarnar eru í þá átt að
minnka vægi tilskipunarinnar, starfsmönn-
um í óhag. Þar kemur til lenging á því tíma-
bili sem „jafna má út" vinnutíma umfram
48 stundir og einnig að fleiri (laegri stjórn-
endur) verði undanþegnir tilskipuninni.
1 umræðum um atvinnuöryggi kom fram
að á almennum vinnumarkaði er litla
vernd að finna við uppsagnir. Oft er tekist
á um hvort starfsaldur eða hæfni eigi að
ráða þegar ákvarðanir eru teknar um hverj-
um sé sagt upp. Á öllum Norðurlöndun-
um er atvinnuöryggi opinberra starfs-
manna meira en annarra.
Óhefðbundnar ráðningar þ.e. verkefna-
ráðningar, „outsourcing" o.s.frv. aukast
stöðugt. Þetta er hluti alþjóðavæðingarinnar
sem ekki verður stöðvuð. Verkfræðingafélög
á Norðurlöndum þurfa að horfast í augu við
þetta og veita þjónustu þeim félagsmönnum
sem starfa við slíkar aðstæður.
PQchemtic
Sérhæft teikniforrit
fyrir
rafmagnshönnuði,
til að teikna
og hanna
rafmagnskerfi
Forritið heldur
utan um tengilista
og efnislista
Tekur inn
teikningar frá
AutoCAD
Viðamikið táknasafn
fylgir forritinu
PC Schematic
er mjög
öflugt og
jafnframt
auðvelt í
notkun
Hæfnismarkaöur
í inngangserindi um málefnið starfsþró-
un/hæfniskröfur kom margt athyglisvert
fram. Danska ríkisstjórnin hefur sett það
sem markmið að landið verði eitt af mestu
hátækniríkjum heims innan tíu ára. Heitið
er auknu fjármagni í verkefnið. Danskar
tölur sýna að fyrirtæki með hámenntað
starfsfólk hafa vaxið fjórum sinnum hraðar
en fyrirtæki sem eru í hefðbundinni frarn-
leiðslu. Nefnt var að í framtíðinni yrði jafn-
vel talað um hæfnismarkað verkfræðinga
en ekki vinnumarkað verkfræðinga.
Hátæknifyrirtæki eru talin mun líklegri
til að spjara sig í alþjóðlegri samkeppni.
Fram kom að ein skýring á samkeppnis-
hæfni Danmerkur í alþjóðasamhengi
skýrist að hluta til með frjálslegri vinnulög-
gjöf en til dæmis í Þýskalandi. IDA leggur
gríðarlega áherslu á endurmenntun sinna
félagsmanna. Til dæmis eru þeir sem hafa
fengið viðvörun um uppsögn hvattir til að
drífa sig í endurmenntun.
I umræðum kom fram að endurmenntun
verkfræðinga sé hlutfallslega dýr og því
eigi þeir oft erfiðara með að fá leyfi til end-
urmenntunar en aðrir starfsmenn.
Fjöldi notenda
á íslandi
Næsta námskeið
í PC Schematic
verður
jan/feb 2005
__________________J
www.vista.is
1/ISM
Verkfræðistofan Vista
sími: 587 8889
^WTNATIONAL
INSTRUMENTS
www.ni.com
© 2002 Ntbontl Intlruments Corporetion. AR rightt reterved. Product end compeny
nemei liited ere tredemerti or trede nemei of their reipective compeniei.