Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 10
10/RYNI 2004
veldi
Ítalía í öllu sínu
TFÍ hefur á undanförnum sjö árum skipulagt námsferöir erlendis fyrir
tæknifræðinga og verkfræðinga undir nafninu: Rýnisferðir. Rýni 2004 var
farin 9.-16. september s.l. Þátttakendur í ferðinni voru 118 og eru þá makar
taldir með. Hér eru nokkrir punktar úr ferðasögunni sem Jakob Hálfdanarson
tók saman en frásögnina í heild má lesa á heimasíðu TFÍ (www.tfi.is).
Lagt var upp frá Keflavík í fjögurra stunda
flug til borgarinnar Bologna í sunnanverðum
Pódalnum á Norður-Italíu. Þaðan var 38 km
akstur til norðvesturs eftir hraðbraut A1 til
borgarinnar Modena, en þar dvaldi hópurinn
allan tímann og gert út í skoðunarferðir.
Padova - Selco
Farið til Padova sem er á NA-Ítalíu, 25 km
vestur af Feneyjum. Þar var heimsótt fyrir-
tækið Selco, sem sérhæfir sig í málmsuðu
og framleiðslu tækjabúnaðar fyrir hana.
Fyrirtækið er á tveimur stöðum í borginni,
samtals á 30.000 m2 og starfsmenn eru 122,
þar af 18 tæknimenn. Framleiddar eru 40
rafsuðuvélar á dag af stærstu gerð. Skoðuð-
um við vélar sem voru allt frá smá töskuvél-
um upp í stórar rafsuðuvélar. Fræðingar
sýndu þessum vélum og framleiðslu þeirra
mikinn áhuga, sem m.a. kom fram í fjölda
spurninga. Einkum voru menn áhugasamir
um framleiðslu „heilans" í vélunum, eða
PC-borðsins, eins og framleiðendurnir köll-
uðu þetta. Móðurborðin voru sett saman í
sjálfvirkum vélum, sem röðuðu á þau 20
þúsund hlutum á klukkustund. Vélarnar
réðu þó ekki við stærstu hlutina, þannig að
konur voru fengnar til þess að raða þeim á
borðin. Að sögn fulltrúa fyrirtækisins ráða
þeir eingöngu konur í þetta starf, því „konur
eru nákvæmari og þolinmóðari en karlar".
Da Vinci og Flórens
Vegurinn til Flórens, hraðbraut Al, liggur
suður yfir Appennína fjöll og fer hæst í 726
m hæð yfir sjó. Þorpið Vinci er nokkuð
vestur af Flórens. Þar skoðuðum við hið
stórkostlega Leonardo-safn: „Museo Leon-
ardo daVinci". Þar voru til sýnis ótrúlegar
teikningar listamannsins Leonardo da Vinci
(1454-1519) og seinni tíma módel, sem
smíðuð höfðu verið nákvæmlega eftir
teikningum hans. Þarna mátti meðal
annars sjá módel af þyrlu, reiðhjóli, flot-
skíðum, byggingakrönum, skriðdreka og
fjölda margt annað.
Þá var haldið til Flórens og borgin skoðuð
í fylgd leiðsögumanna, m.a. dómkirkjan.
Modena - Tecnotest
Haldið til Tecnotest í Modena. Þar voru
okkur sýnd tæki til rannsókna á jarðvegi í
mörkinni og rannsóknarstofutæki til jarð-
tækniprófana. Við sáum tæki til rannsókn-
ar á malarefnum, asfalti, malbiki og stein-
steypu.
Starfsmenn frá Tecnotest sýndu okkur
framkvæmdir við nýja háhraða járnbraut
sem verið er að leggja á milli Mflanó í norðri
og Napólí í suðri, sem er rúmlega 800 km
löng leið. Framkvæmdir hófust árið 2001
og áætlað er að þeim ljúki árið 2006. ítalir
borga allan brúsann. Enginn styrkur kemur
frá Evrópusambandinu. Hraði lestarinnar
verður 300 km/klst. Brýr eru 4 samhliða,
hver fyrir eitt spor og er hæð þeirra mest 7
m yfir jörðu og haflengd 31,50 m. Lestarnar
verða í nokkurs konar stokki, sem nær upp