Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 18

Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 18
18 / 100 ARA AFMÆLI RAFVÆÐINGAR 60 þúsund gestir á Tæknidögum 2004 Ný bók VFÍ Tæknidagar 2004 voru haldnir í Smáralind dagana 28. október til 2. nóvember s.l. Voru þeir tileinkaðir 100 ára afmæli rafvæðingar á íslandi og báru yfirskriftina: Orkan okkar heimili morgundagsins. IVetrargarði Smáralindar var byggt tæknilega fullkomið 350 fermetra einbýlishús á örfáum dögum. Markmiðið var að gefa Islendingum hug- mynd um hvernig heimili morgundagsins kemur til með að líta út. Talið er að um 60 þúsund gestir hafi komið á sýningarsvæðið. í tengslum við sýninguna voru ráðstefn- ur í bíósölum Smáralindar. Meðal annars var framhaldsskólanemum boðið til kynn- ingar þar sem m.a. var kynnt nám tengt orkugeiranum og fagfélögin sem stóðu að sýningunni. Að Tæknidögum 2004 stóð Orkuveita Reykjavíkur í samvinnu við Tæknifræðingafé- lag íslands, Verkfræðingafélag íslands, Arki- tektafélag íslands, Félag húsgagna- og inn- anhússarkitekta og Ljóstæknifélag fslands. Vaigerður Sverrisdóttir klippir á borð- ann. Asamt fulltrúum Orkuveitunnar. F.v. Ásgeir Margeirsson , Alfreð Þor- steinsson og Guðjón Magnússon. Byggt var 350 fermetra einbýlishús í Vetrargarði Smáralindar. Komið er út ann- að bindið í af- mælisritröðVerk- fræðingafélags íslands. Það er tileinkað 100 ára afmæli rafvæð- ingar á íslandi og ber heitið: „Afl í segulæðum - Saga rafmagns á íslandi í 100 ár." Fyrir tveimur árum var ritröðinni hrundið af stað í tilefni af 90 ára afmæliVFÍ og fjallaði fyrsta bindið um frumherjana í verkfræði hér á landi. Ritröðinni mun Ijúka árið 2012 með riti um 100 ára sögu félagsins. í nýju bókinni er sögð saga raf- væðingarinnar, bæði upphafsárin og á samveitutímabilinu, en einnig saga iðnaðaruppbyggingar á seinni árum. Dregin eru fram nöfn þeirra manna sem á einn eða annan hátt mörkuðu leiðina, sér í lagi á fyrri hluta tíma- biisins. Höfundur bókarinnar er Sveinn Þórðarson sagnfræðingur. tveir qóðir saman ----XA3> CAD ehf. autodesk authorized reseller CAD ehf. Skúlagata 61 A -105 Reykjavík sími: 552 3990-fax: 552 3992 cad@cad.is - www.cad.is

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.