Verktækni - 01.09.2004, Page 6

Verktækni - 01.09.2004, Page 6
Aí sfjór«arbor4f SV Vísinda- og starfs- menntunarsjóður hjá Ríki Haldnir eru stjórnarfundir reglulega að jafnaði síðasta miðvikudag mánaðanna: mars, júní, september og síðasti fundur ársins 2004 verður haldinn 15. desember. Umsóknareyðublöð má nálgast á heima- síðu SV: http://www.sv.is/. Hægt er að sækja um styrki sem nema allt að kr. 390.000. Árið 2000 var aftur farið Netföng vegna kjara- könnunar SV 2005 Undirbúningur kjarakönnunar SV árið 2005 er hafinn. Par sem könn- unin er gerð rafrænt er afar mikil- vægt að félagið sé með netföng þátt- takenda. Því eru allir þeir sem vilja taka þátt í kjarakönnuninni hvattir til að tilkynna netföng sín til félags- ins. Tekið skal fram að það er ekki skilyrði fyrir þátttöku að vera félagi í SV. Allir verkfræðingar geta tekið þátt í kjarakönnuninni. að veita styrki til tölvukaupa. Skilyrt er að minnst fjögur ár líði á milli styrkveitinga til tölvukaupa. Upphæð tölvustyrkja eru kr.130.000. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, til kaupa á bók- um, tölvum o.fl. Starfsmenntunarsjóöur hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum Haldnir eru stjórnarfundir reglulega að jafnaði síðasta föstudag mánaðanna: mars, júní, september og síðasti fundur ársins 2004 verður haldinn 17. desember. Upphæð hámarksstyrkja er kr. 390.000. Réttindi aukast um kr. 130.000 á ári sé ekki greiddur styrkur. Sjóðfélagar eru hvattir til að sækja um. Vakin er athygli á því að þeir verkfræð- ingar sem starfa hjá sveitarfélögum sem gefa Launanefnd sveitarfélaga umboð til samninga við SV eiga aðild að sjóðnum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heima- síðu SV: http://www.sv.is/. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, til kaupa á bókum, tölvum o.fl. Upphæð tölvustyrkja er kr.130.000. , SV kynnt fyrir verkfræðinemum Námskeið í samningatækni Stéttarfélag verkfræðinga býður félags- mönnum stutt og hnitmiðað námskeið í samningatækni. Leiðbeinandi er Þuríður Magnúsdóttir. Næsta nám- skeið verður haldið þegar næg þátttaka næst. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu SV til að skrá sig á námskeiðið. Tölvupóstfangið er: sv@sv.is og sími: 568-9986. Námskeið fyrir konur í SV Eins og áður hefur komið fram ætlar Stéttarfélag verkfræðinga að bjóða námskeið í samningatækni sem er sérsniðið fyrir konur. Námskeiði er ókeypis fyrir félagsmenn SV og verður haldið í janúar á næsta ári. Leiðbein- andi verður Silja Bára Ómarsdóttir, MA í alþjóðastjórnmálum, sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og er námskeiðið nú að verða fullskipað. Konur eru hvattar til að skrá sig á námskeiðið. Tilkynna skal þátttöku á netfangið: sv@sv.is. I skoðun er að halda annað námskeið. Stéttarfélag verkfræðinga hefur í haust unnið ötullega að kynningu félagsins meðal verk- fræðinema. Föstudaginn 22. október síðastliðinn hélt félagið kynningu fyrir lokaársnema í HÍ. Á kynningunni var starfsemi SV kynnt og Lára V. Júlíusdóttir ræddi við nemana um starf sitt fyrir félagsmenn SV. Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verk- fræðinga kynnti sjóðinn á líflegan hátt. Hulda Guðmundsdóttir, formaður SV og Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri héldu kynningu á SV fyrir lokaársnema í DTU laugardaginn 29. október sl. Fundurinn var vel sóttur og segja má að á báðum þessum kynningum hafi komið fram almennur áhugi nemanna á að fræðast um vinnumarkaðinn og hvað bíður þeirra þegar námi lýkur. Tilkynning frá SV Mjög mismunandi er hvernig stofnanir raða störfum í launaramma og launa- flokka.Verkfræðingar sem hyggjast ráða sig hjá ríki og Reykjavíkurborg eru hvattir til að leita sér upplýsinga um röðun hjá viðkomandi stofnun áður en þeir ráða sig þangað til vinnu. Kjarasamningar haustið 2004 Viðræður SV/KTFI við FRV um nýjan kjarasamning eru á lokastigi þegar þetta er ritað. Ef samningar takast verða þeir strax kynntir félagsmönnum og bomir undir atkvæði. Kjarasamn- ingsviðræður SV við samninganefnd ríkisins eru hafnar en ekkert bendir til að samningar náist í bráð. Þá hefur samninganefnd SV við Reykjavíkurborg hist og er að vinna að undirbúningi kjarasamningsviðræðna á næsta ári. Stefán Halldórsson framkv.stj. Lífeyrissjóðs verkfræðinga.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.