Verktækni - 01.09.2004, Page 14

Verktækni - 01.09.2004, Page 14
14 / ÝMISLEGT Verkfræðingar og viðurkenningar Oft er því haldið fram, og að nokkru leyti með réttu, að verkfræðingar megi gjarnan halda betur fram því sem þeir fást við og því sem þeir áorka í störfum sínum. IEEE hefur ýmsar leiðir til að vekja athygli á verkfræðingum fyrir árangur í starfi og af- rekum sem vert er að halda á lofti. Auk ým- issa viðurkenninga og verðlauna býðst aðild að félaginu í nokkrum stigum. I framhaldi af fullgildri félagsaðild er unnt að tilnefna einstaklinga til þess sem kallast „senior member" og „fellow". Til þess að verða „senior" félagi er skilyrði að hafa starfað við verkfræði í tiltekinn árafjölda og náð árangri í þeim störfum, samkvæmt nánari leiðbein- ingum IEEE. Um þessar mundir eru slíkir félagar IEEE aðeins fjórir á íslandi en ljóst er að meðal okkar eru mun fleiri sem unnið hafa til þess bætast í þann hóp. Til þess að verða útnefndur „fellow" eru kröfur enn meiri. Um er að ræða æðstu viðurkenningu IEEE til félaga sinna og veitir stjórn IEEE þessa viðurkenningu ein- staklingum sem hafa: „extraordinary record of accomplishments in any of the IEEE fields of interest", eins og það er orðað. „Fellow" tilnefning er ítarleg, sá sem til- nefndur er þarf að vera orðinn „senior" fé- lagi og tilnefning þarf að koma frá ein- hverjum sem þegar er „IEEE fellow". Síðan þarf í það minnsta fimm meðmælendur til viðbótar, einnig úr hópi „IEEE fellows", til þess að hún teljist fullgild. Farið er mjög vandlega yfir allar tilnefningar og er tak- markast fjöldi útnefninga á hverju ári, sam- kvæmt lögum IEEE, við einn af hverjum þúsund fullgildum félögum. Jón Atli Benediktsson útnefndur „IEEE Fellow“ 2004 Á þessu ári var Dr. Jón Atli Benediktsson, pró- fessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við HJ, útnefndur „fellow" hjá IEEE og hann er fyrsti ís- lendingurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu. Jón Atli hlaut viðurkenn- inguna fyrir framlag sitt til mynzturgrein- ingar og samtvinnunar fjarkönnunargagna („pattern recognition and data fusion in remote sensing"). Jón Atli lauk doktorsprófi frá Purdue há- skóla í Indiana, Bandaríkjunum, árið 1990. Ásamt störfum sínum sem prófessor við Háskóla Islands hefur hann verið gestapró- fessor við háskóla og stofnanir í Bretlandi, Italíu, Danmörku og Bandarrkjunum. Þá hefur hann gegnt fjölmörgum trúnaðar- störfum undanfarin ár og m.a. er hann í nýskipuðu vísinda- og tækniráði. Jón Atli hefur verið félagi í IEEE síðan 1986, hann beitti sér fyrir stofnun Is- landsdeildar félagsins árið 2000 og var fyrsti formaður hennar. Hann er núna varaformaður íslandsdeildarinnar og jafn- framt er hann ritstjóri tímaritsins „IEEE Transactions on Geoscience and Remote Sensing". Kallað eftir fleiri tilnefningum Meðal félaga IEEE á Islandi eru margir sem hafa unnið til þess að bætast í hóp þeirra sem teljast „senior" félagar og hugsanlega eigum við líka kandídata í „fellow" stigið. Það er full ástæða til að hvetja verkfræð- inga til að huga að þessum kostum og koma á framfæri ábendingum eða fyrir- spurnum. Nánari upplýsingar um „senior" félagsaðild má finna á vefsíðunni www.ieee.org/organizations/rab/md/- smprogram og um „fellows" félagsaðild á síðunni www.ieee.org/fellows. Einnig má hafa samband við undirritaðan eða ein- hvern stjórnarmanna IEEE á íslandi (www.ieee.is). Það er vert að halda því á lofti sem verk- fræðingar starfa við og þeim „afrekum" sem við vinnum í daglegum störfum. Fyrsta skrefið er að við komum sjálf auga á það sem vel er gert í okkar röðum og ger- um það sýnilegt. Kristinn Andersen formaður íslandsdeildar IEEE Jón Atli Benediktsson. íslandsmynd á forsíðunni Eins og glöggir les- endur sjá er ný mynd í „haus" þessa tölu- blaðsVerktækni. Rafn Sigurbjörnsson tók myndina, eins og þá fyrri sem var af Perlunni. Hann hefur sýnt blaðinu þann velvilja að leyfa afnot af myndunum án endurgjalds. Eru hon- um hér með færðar bestu þakkir fyrir. Rafn er rafeindavirkjameistari, Ijósmynd- ari og grafískur hönnuður. Hann starfar hjá verkfræðistofunni Rafteikningu hf. Ljósmyndir í áskrift Rafn hefur fengist við ljósmyndun og listmálun frá unga aldri. Hann leggur áherslu á fallegar landslags- og stemningsmyndir og hafa myndir hans birst víða í blöðum, ferðabæklingum, á netinu og ýmsum samsýningum, nú síðast í Ráðhúsinu. Rafn á og rekur Ijósmyndavefinn „íslandsmyndir" (www.islandsmyndir.is) þar sem er að finna úrval ljósmynda af landi og þjóð. Hægt er að gerast áskrifandi af myndasafninu og fá myndir sendar reglulega á geisladiskum gegn vægu gjaldi.Verð byggist ekki á notkun. Eitt samningsgjald er greitt fyrir aðgengi og diskana þannig að viðskiptavinum er frjálst að nota myndirnar að vild án þess að greiða sérstaklega fyrir. (Ekki er heimilt að framselja myndir til þriðja aðila). Þetta er vænlegur kostur fyrir fyrirtæki sem vilja fá fallegar myndir til að myndskreyta vef fyrir- tækisins eða prentað efni. Nánari upp- lýsingar á www.islandsmyndir.is Einnig má senda fyrirspurnir til Rafns: rafn@austurvegur.is

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.