Verktækni - 01.09.2004, Side 15
VERKTÆKNI /15
Af ríkidæmi íslendinga
Það mun hafa verið um 1978 að ég var beð-
inn að fara með þrjá þekkta kanadíska arki-
tekta í skoðunarferð urn Reykjavík. Fómm við
um Árbæjarhverfi og víðar þar sem hús vom í
smíðum. Er við vomm á heimleið spurði ég
þá hvort eitthvað væri, sem hefði vakið at-
hygli þeirra umfram annað. Jú, það var ís-
lenskt múrverk. Þeir sögðust aldrei hafa séð
eins fallegt og vandað múrverk. Var það bæði
vönduð og falleg áferð og ekki síður frábær
afrétting veggja, sem vakti athygli þeirra.
Oneitanlega var þetta skemmtileg
umsögn um góða fagmennsku.
Er við nálguðumst Hótel Sögu, þar sem
þeir héldu til, gerðum við stuttan stans við
grunn Þjóðarbókhlöðunnar, sem þá stóð
opinn. Þannig hagaði til að grafinn hafði
verið rúmlega 3.000 m2 grunnur, 4 til 5 m
á dýpt. Girðing var umlrverfis hann að
minnsta kosti að Hringbraut og Birkimel.
Boðinn hafði verið út áfangi, sem náði yfir
steypu á undirstöðum. Verktakinn, sem
hafði hreppt verkið, hafði komið fyrir um
það bil bílhlassi af mótatimbri niðri í
grunninum og vinnuskúr,
um 6 m2 að stærð, stóð á
bakkanum. Niðri í þessum
rúmlega 3.000 m2 grunni
var einn smiður að störfum
með ungan handlangara
sér til aðstoðar.Voru þeir
félagar eins og „krækiber í
helvíti" þarna niðri. Búið
var að rnóta fyrir einu hús-
horninu og slá upp mótum
úr l"x6" fyrir sökkulveggj-
um svo sem eins og 3-4
metra út frá horninu í
norður og austur.Var þetta nánast að sjá
eins og á smíðavelli barna í sumarskólum.
Eg sagði arkitektunum hvaða bygging
væri hér í uppsiglingu og nefndi til arki-
tektana Manfreð Vilhjálmsson og Þorvald
S. Þorvaldsson og staðsetti þá í íslensku
þjóðfélagi. Arkitektarnir þrír stóðu góða
stund alveg hljóðir uns einn þeirra sagði.
„Mikið hljótið þið íslendingar að vera rík
þjóð." Eg spurði hann af hverju hann dragi
þá ályktun. „Jú" svaraði hann, „aldrei hefð-
um við Kanadamenn ráð á því að hafa
svona fáa menn við vinnu í svona stórum
grunni fyrir svo dýru húsi."
(Til gamans skal þess getið að hönnunar- og
byggingartími Pjóðarbókhlöðunnar varfrá
1972 til 1996 eða wn 24 ár. Heildargólfflötur
byggingarinnar er um 13.000 m:)
Gunnar Torfason, byggingarverkfræóingur.
Við vinnum með þér.
^eriisg^.
o//
Smáralind
Samskipti ehf
Síðumúla 4 sími 580 7800
Hverfisgötu 33 sími 580 7860
Hæðasmára 4 sími 580 7880
www.samskipti.is
S4/HSKIPTI »5*
prentlausnir
fyrir skapandi fólk
tiÉliÉÍ
J 1 —-| | JH III 1 IJM 1 1 j