Verktækni - 01.09.2004, Page 16

Verktækni - 01.09.2004, Page 16
AC sfjórnarbor<li Ttí Tæknidagar 2004 Tæknidagar voru haldnir í Smáralind dag- ana 28. október til 2. nóvember og voru að þessu sinni helgaðir 100 ára afmæli raf- væðingar á fslandi. Að sýningunni stóð Orkuveita Reykjavíkur í samvinnu við Tæknifræðingafélag fslands, Verkfræðinga- félag íslands, Arkitektafélag íslands, Félag húsgagna- og innanhússarkitekta og Ljós- tæknifélag íslands. Tæknidagarnir, sem báru yfirskriftina: Orkan okkar heimili morgundagsins, tókust einstaklega vel. Talið er að sýningargestir hafi verið um 60 þúsund. Tveggja daga ráð- KYNNING: Þensludúkur Vídd ehf. í Kópavogi flytur inn og selur Ditra þensludúk frá þýska fyrirtækinu Schluter-Systems KG. Dúknum er ætlað að slíta í sundur hreyfingu milli gólf- plötu og gólfflísa og hefur þegar sannað ágæti sitt hérlendis. Þensludúkurinn er ætlaður til notkunar bæði inni og úti, og hentar sérstaklega vel á svalir og aðra slika erfiða fleti þar sem hita- og raka- þensla er mikil. Sprungur í gólfum, allt að einum millimetra, þarf ekki að gera við áður en dúkurinn er límdur niður. Sérstaða Ditra dúkurinn, sem er um 3,5mm á þykkt, er með ístimpluðum kónískum töppum og álímdri gegndræpri grisju að neðan. Þetta gerir það að verkum að þegar dúkurinn er límdur niður, verður límfyilingin heil undir grisjunni, en loft- og rakaflæði verður undir dúknum. Dúkurinn er úr plastefni og 100% vatns- heldur. Til að þétta samskeyti og kverkar fást Kerdi borðar sem einnig eru frá Schluter-Systems. Kerdi borðarnir eru vatnsheldir trefjaborðar sem límdir eru niður með flísalími. Ditra dúkurinn er á eins metra breiðum rúllum og fæst bæði 5 og 30 metrar á lengd. Einfalt Til að ná hámarksárangri við notkun dúksins er ráðlegt að líma hann niður með hraðlími.Við niðurlímingu á slétt- um gólffleti þarf að nota 4mm límspaða á gólfið undir dúkinn, leggja hann síðan í blautt límið og pressa hann niður með glattara. Þegar límið undir dúknum er orðið þurrt er hægt að ganga frá vatns- stefna var haldin fyrstu tvo dagana og sýn- ing á tæknivæddu heimili framtíðarinnar var alla dagana íVetrargarði Smáralindar. Þar var reist 350 fermetra einbýlishús með öllum nútíma þægindum og tækninýjung- um sem fyrirfinnast á markaðnum í dag. Menntunarnefnd Á síðasta fundi Menntunarnefndar fengu sex tæknifræðingar inngöngu íTFÍ. Það er vert að geta þess að fimm þeirra hafa lokið sveinsprófi. Sem kunnugt er hefurTFÍ vilj- að standa vörð um mikilvægi þéttinum með Kerdi borða ef þörf er á s.s. á svölum. Þegar komið er að sjálfri flísalögninni er fyllt ofan í tappana í dúknum jafn óðum og hver flötur er smurður með lími. Áhrifin Samanlögð áhrif dúksins og límsins gefa mjög mikið þensluþol milli gólfs og flísa sem þýðir í reynd að hættan á að flísar annað hvort springi eða spennist af vegna hreyfinga gólfsins minnkar til muna. Þar sem tapparnir í dúknum eru kónískir, binst flísalímið mjög vel inn í tappana og styrkur og viðloðun verður mjög góð. Sá raki sem kemst niður að dúknum í gegnum fúgur og lím sest neðst í tappana og við frostspennu gefur plastið í dúknum talsvert eftir þannig að ekki verða skemmdir á flísunum. Rakinn gufar síðan upp aftur sömu leið og hann kom. Þegar um stærri fleti er að ræða er ráðlegt að setja þenslulista til viðbótar dúknum eftir þörfum. Þenslu- og frá- gangslistar cru einnig til í miklu úrvali frá Schluter-Systems. Góður árangur Þeir sem þekkja vel tíl þessara þenslu- vandamála og kynnst hafa Ditra dukn- um hafa tekið honum fagnandi.Vídd ehf í Kópavogi og á Akureyri er leiðandi fyr- irtæki í sölu flísa og fylgiefna, og hefur verið í fararbroddi í þekkingu og þjón- ustu á þessu sviði byggingariðnaðarins. iðnmenntunar sem undirbúning að námi fræði. Er sérstaklega mikilvægt að halda því sjónarmiði á lofti í ljósi þeirra breytinga sem eru að verða við samruna Tæknihá- skóla íslands og Háskólans í Reykjavrk. Sameining félaga? Fyrr í haust var skipaður vinnuhópur sem er ætlað að útfæra nánar hugmyndir um hugsanlega sameiningu TFÍ, VFÍ og SV. Hópurinn mun væntanlega skila fyrstu niðurstöðum fyrir jól. Heimsókn til Danmerkur í tengslum við fyrirhugaða sameiningu THÍ og HR hefur orðið mikil umræða um menntunarmál tæknifræðinga. Undirritað- ur og varaformaður TFÍ, Bergþór Þormóðs- son, munu í lok nóvembermánaðar heim- sækja tækniháskóla í Danmörku og IDA, danska verkfræðinga- og tæknifræðingafé- lagið, til að kynna sér hvernig málum er háttað þar í landi. Einar H. Jónsson, formaóur TFÍ. Akstursstýringar sendibíla - Samskip styrkja meistara- prófsnema í verkfræði Samskip veittu nýverið Þorsteini Rafni Johnsen, nema í iðnaðarverkfræði við Verk- fræðideild Háskóla íslands, styrk til að vinna meistraraprófsverkefni um bætt fyrir- komulag akstursstýingar sendibila á höfuð- borgarsvæðinu. Styrkurinn, sem er 1,5 milljónir króna, er hluti af þriggja ára sam- starfssamningi Samskipa ogVerkfræðideild- ar HÍ sem var undirritaður haustið 2003. Markmið samstarfssamningsins er að gefa nemendum Verkfræðideildar kost á að kynn- ast starfsemi og hugmyndafræði Samskipa, efla tengsl deildarinnar við atvinnulífið og nýta þekkingu og krafta hennar til framþró- unar og rannsókna á sviði flutningafræða. Samingurinn tekur til fimm þátta og er styrk- ur til meistaranema við Verkfræðideildina stærsti liður hans. Samkomulag um styrk vegna lokaverkefnis Þorsteins var undirritað- ur í byrjun októbermánaðar. Sem fyrr segir greiða Samskip námsstyrk vegna verkefnisins og á móti tryggirVerkfræðideild HÍ að verk- efnið stuli að framþróun á þessu sviði og að því verði lokið fyrir miðjan maí á næsta ári. Samskipum, Háskóla Islands og styrkþegan- um verður heimilt að nýta og þróa áfram þær lausnir sem verkefnið kann að leiða til.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.