Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 7

Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 7
 Samtals hafa því 13 bæst við í söfnuðinn frá því á síðasta aðalfundi. Á sama tíma dóu 17 safn- aðarsystkini og viljum við votta minningu þeirra virðing okkar. Einnig hafa systkini flutst til og frá landinu. Tala safnaðarfólks nú, samkvæmt bókum safnaðarins mun vera 543. Það er sárt að sjá að tala þeirra sem hafa dáið á tímabilinu sé hærri en tala skírðra. Tölur segja þó ekki alla söguna. Þegar við lítum yfir hópinn sjáum við að unga fólkið á meðal okkar er fleira og virkara en oft áður og lofar það góðu um framtíðina. BREYTINGAR í STARFSMANNAHÓPNUM Allmiklar breytingar urðu á starfsmannahópnum á sl. þrem árum. Einar V. Arason lét af störfum sem skólastjóri Hlíðardalsskóla, og Karen Arason kona hans sem kennari, vorið 1985 og við skóla- stjórastarfi tók Jón Hj. Jónsson. Guðni Kristjáns- son lét af gjaldkerastörfum snemma árs 1986 og tókst ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, að fá annan gjaldkera í það rúma ár sem leið þar til Jóhann E. Jóhannsson snéri aftur úr námsleyfi. Þá snéru aftur heim til Danmerkur Henrik og Susanne Jörgensen. Henrik hafði verið prestur Árnes-safnaðar og skátahöfðingi og auk þess síðasta veturinn í hálfu starfi sem vistarstjóri pilta að Hlíðardalsskóla. Susanne var vistarstjóri stúlkna og kenndi einnig. Henrik og Susanne fóru utan sumarið 1986. Um haustið sama ár fara einnig Eygló Guðsteinsdóttir og fjölskylda vestur um haf til Bandaríkjanna en hún hafði þá starfað á skrifstofu Samtakanna í 12 ár. Þannig varð árið 1986 nokkuð erfitt, sérstaklega þar sem ekki var hægt að fylla í þau skörð sem Guðni og Henrik höfðu staðið í. Með Guðs hjálp og góðra manna tókst að sinna flestum störfum skrifstofunnar. Óhjákvæmilega safnaðist mjög mikið fyrir í bókhaldi sem Jóhann glímdi við þegar hann kom heim. Hefur hann unnið afar langa vinnudaga svo til óslitið í heilt ár. Kann ég honum, Jónu Theódórsdóttur og Sigriði Kristjánsdóttur bestu þakkir fyrir allt sem þau lögðu á sig vegna óvenjulegra kringumstæðna. Þá bað stjórn Samtakanna Eric Guðmundsson um að vera formanninum hægri hönd á meðan enginn gjaldkeri var. Leysti hann það verk af hendi ljúfmannlega og af ósérhlífni. Bestu þakkir kann ég honum fyrir það. PRESTSVÍGSLA Eitt af því ánægjulegasta á s.l. þriggja ára tímabili var vígsla Erics Guðmundssonar og Þrastar B. Steinþórssonar til prestsskapar. Það er mikils virði fyrir söfnuði Sjöunda dags aðventista á íslandi að eiga slíka starfsmenn, unga, vel menntaða og Guði helgaða menn. Þá er ekki síður mikils virði að við hlið sér hafa þeir fórnfúsar og helgaðar eiginkonur. FOSSVOGSBYGGINGIN Skóla- og námstefnubyggingin í Suðurhlíðum er eitt stærsta verkefni sem söfnuðurinn hefur ráðist í síðan hann byggði Hlíðardalsskóla. Um þetta verkefni er fjallað sérstaklega í skólamála- skýrslunni. Þó vil ég taka fram hér tvennt sem ég tel rétt að komi fram í skýrslu formanns. Hið fyrsta er að Stór-Evrópudeildin okkar, ákvað 1986 að ísland fengi 13. hvíldardagsskólafórnina 1991. Nokkrum mánuðum síðar bættu þeir um betur og flýttu dagsetningunni um 2 ár, þ.e. til 3. árs- fjórðungs 1989 og sögðu að við fengjum helming fórnarinnar. Oft skiptist hún í fleiri en tvö verkefni. Svo þetta voru stór og góð tíðindi. í öðru lagi hafði núverandi skólastjóri Barna- skólans gefið til kynna að hún teldi rétt að sér yngri maður tæki við skólastjórninni þegar flutt yrði í nýja húsnæðið. í framhaldi af því var Jón Karlsson, kennari kallaður til að veita nýja skól- anum forstöðu, og hefur hann tekið því kalli. Hann hefur undanfarinn vetur starfað sem fulltrúi byggingarnefndar með arkitektinum svo og annast öll samskipti við borgaryfirvöld. Tel ég að starf okkar í skólamálum hafi styrkst mjög með til- komu Jóns Karlssonar i starfsmannahópinn: Megi Guð blessa hann, samstarfsmenn hans og nem- endahópinn. NÁMSKEIÐ í STAÐ OPINBERRA SAMKOMA Á undanförnum árum hefur átt sér hægfara en markviss þróun frá opinberum samkomum yfir i námskeið ýmis konar. Þau sem við þekkjum hér á landi eru: "Fimmdaga áætlun gegn reykingum", "matreiðslunámskeið", "að sigra sorgina", "streitunámskeið", "Daníelsbókarnámskeið" og "komandi atburðir". Á þessu ári er svo væntanlegt viðamesta námskeiðið, "Námskeið í Opinberunarbókinni". Það verður prentað í fjórum litum. Víða um hinn vestræna heim, einnig á Norðurlöndum, er þetta námskeið eitt hið öfl- ugusta boðunartæki sem söfnuðurinn á. Væntum við mikils af því þegar það kemur. SAMSTARFSNEFND KRISTILEGRA TRÚ- FÉLAGA Sjöunda dags aðventistar hafa nú átt aðild að Samstarfsnefnd kristilegra trúfélaga í 9 ár, eða frá upphafi nefndarinnar. Helsta verkefni Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.