Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 9

Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 9
LOKAORÐ Allt safnaðarstarf beinir sjónum sínum að endurkomu Krists. Kristur bíður eftir því að uppskeran verði fullþroskuð. "Eins og plantan skýtur rótum í moldinni þannig eigum við að skjóta djúpum rótum í Kristi. Eins og plantan tekur við sólskininu, dögginni og regninu, þannig eigum við að opna hjörtu okkar fyrir Heilögum anda. Þetta verk á að vinnast "ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn segir Drottinn allsherjar" (Sak 4.6) Hveitið þroskast, "fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu" Hinn guðlegi kornræktarmaður lítur til uppskerunnar sem umbun vinnu sinnar og fórnar. Kristur leitar eftir því að hann verði myndaður í hjörtum manna, og hann gerir þetta fyrir tilstilli þeirra sem trúa á hann. Markmið hins kristna lífs er að bera ávöxt - eftirmynd lyndiseinkunnar Krists í hinum trúaða, svo að hún megi myndast í öðrum ... Hinn kristni er í heiminum sem fulltrúi Krists til þess að aðrir megi öðlast hjálpræðið. Það verður enginn vöxtur né ávöxtur í því lífi sem snýst um sjálft sig. Ef þú hefur tekið við Kristi sem persónulegum frelsara þá áttu að gleyma sjálfum þér og reyna að hjálpa öðrum. Talaðu um kærleika Krists, segðu frá gæsku hans. Uppfylltu sérhverja skyldu þína. Ber hjartans umhyggju fyrir öðrum sálum og reyndu á allan hátt að bjarga hinum glötuðu. Þegar þú meðtekur Anda Krists - Anda óeigingjarns kærleika og starfs fyrir aðra - muntu vaxa og bera ávöxt. Fegurð Andans mun þroskast í lyndiseinkunn þinni. Trú þín mun vaxa, æ betur og betur muntu endurspegla mynd Krists í öllu sem er hreint, göfugt og elskuvert. "Ávöxtur Andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild trúmennska, hógværð og bindindi" (Gal 5.22-23). Þessi ávöxtur mun aldrei undir lok líða, heldur mun hann framleiða, eftir sinni tegund, uppskeru til eilífs lífs. "En þá er ávöxturinn er fullþroska, lætur hann þegar bera út sigðina, þvi að uppskeran er komin" Kristur bíður með óþreyju eftir að sjá mynd sína birtast í söfnuði sínum. Þegar lyndiseinkunn Krists hefur myndast fullkomlega í fólki hans, mun hann koma og gera kröfu til sinnar eigin eignar. Það eru forréttindi sérhvers kristins einstaklings ekki aðeins að vænta heldur einnig að flýta fyrir komu Drottins vors Jesú Krists (2Pt 3.12). Ef allir sem játa nafn hans bæru ávöxt honum til dýrðar, hversu skjótt myndu allur heimurinn verða sáður sæði fagnaðarerindisins. Skjótt myndi hin síðasta stóra uppskera verða fullþroska og Kristur myndi koma og safna saman hinu dýrmæta hveiti COL. 67-69. Erling B. Snorrason < SKÝRSLA GJALDKERA INNGANGUR "En Guð er þess megnugur að láta alla náð hlotnast yður ríkulega, til þess að þér í öllu og ávallt hafið allt, sem þér þarfnist, og hafið gnægð til sérhvers góðs verks, eins og ritað er: Hann miðlaði mildilega, gaf hinum snauðu, réttlæti hans varir að eilífu. En sá sem gefur sáðmanninum sæði og brauð til fæðu, hann mun og gefa yður sáð og margfalda það og auka ávexti réttlætis yðar, svo að þér verðið í öllu auðugir til hvers konar örlætis, sem fyrir oss kemur til leiðar þakklæti við Guð." 2. Kor 8.7,11,12; 9.8-11. Nærri því allir hinna trúuðu í Makedóníu voru fátækir af gæðum þessa heims, en hjörtu þeirra voru yfirfull af kærleika til Guðs og sannleika hans, og þeir gáfu með gleði til að styðja fagnaðarerindið. Þegar almennar gjafir voru teknar upp í söfnuðum sem stofnaðir höfðu verið meðal heiðingjanna, til aðstoðar við gyðinglega trúbræður þeirra, var gjafmildi þeirra sem trú höfðu tekið í Makedóníu svo mikil, að athygli var vakin á þvi sem fordæmi fyrir aðra söfnuði. "En svo viljum vér, bræður, skýra yður frá þeirri náð Guðs, sem veitt hefir verið í söfnuðinum í Makedóníu, hversu ríkdómur gleði þeirra og hin djúpa fátækt þeirra hefir í ljós leitt ríkdóm örlætis hjá þeim, þrátt fyrir mikla þrenging, sem þeir hafa orðið að reyna. Ég get vottað það, hversu þeir hafa gjört það eftir megni - já fram yfir megn, af eigin hvötum, þar sem þeir lögðu fast að oss og báðu um þá náð, að mega vera í félagi við oss um samskotin til hinna heilögu. 2 Kor 8.1-4. Vilji Makedóníumanna til að fórna var ávöxtur heilshugar helgunar þeirra. Undir leiðsögn Heilags anda gáfu þeir sjálfa sig Drottni (2 Kor 8.5); eftir það voru þeir fúsir til að gefa örlátlega af efnum sínum til að styðja fagnaðarerindið. Það var ekki nauðsynlegt að hvetja þá til að gefa, heldur fögnuðu þeir yfir þeim forréttindum að mega neita sjálfum sér jafnvel um nauðsynlega hluti til að geta uppfyllt þarfir annarra. Þeir treystu loforðum Guðs um að Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.